Fréttablaðið - 14.03.2003, Blaðsíða 10
VIRKJANAMÁL „Mér finnst ískyggi-
legt hvernig stjórnvöld nota nið-
urstöður vísindamanna og ganga
lengra í túlkun þeirra en efni
standa til,“ segir Viðar Hreinsson
bókmenntafræðingur, einn fjög-
urra baráttumanna gegn Kára-
hnjúkavirkjun, sem komst yfir
skýrslu Gríms Björnssonar jarð-
eðlisfræðings sem í febrúar árið
2002 setti fram alvarlegar at-
hugasemdir um að Hálslón kynni
að valda þeim breytingum á jarð-
skorpunni að stærsta manngerða
hamfarahlaup
Íslandssögunn-
ar hlytist af.
Grímur taldi á
sínum tíma að
Alþingi ætti að
hafa vitneskju
um þessa áhæt-
tu til að geta
lagt mat á þessa
hættu í því ljósi
að þingmenn yrðu ábyrgir með
samþykkt sinni. Þorkell Helgason
orkumálastjóri sagði í svarbréfi
sínu að skýrsla Gríms væri unnin
að frumkvæði hans sjálfs og um
væri að ræða „persónulegar hug-
leiðingar“. Orkumálastjóri brást
þó við með þeim hætti að kynna
Landsvirkjun álitið. Fyrirtækið
leitaði álits dr. Freysteins Sig-
mundssonar, forstjóra Norrænu
eldfjallamiðstöðvarinnar, sem
skilaði áliti í desember sl. Hann
segir að „telja verði ólíklegt“ að
Hálslón valdi slíkum breytingum
á jarðskorpunni að til kviku-
hreyfinga komi með þeim afleið-
ingum að Kárahnjúkaskýrsla
bresti og hamfarahlaup hljótist
af.
Viðar gagnrýnir að álit dr.
Freysteins sé notað til að afskrifa
þá möguleika sem fram koma í
áliti Gríms.
„Þarna er eitthvað gruggugt á
ferð og túlkun á varfærnu svari
dr. Freysteins undirstrikar þá
skoðun mína. Þetta ber nokkurn
keim af því hvernig farið var með
niðurstöður dr. Ragnhildar Sig-
urðardóttur um áhrifin af Norð-
lingaölduveitu. Þar var skýrslum
ritstýrt til að laða fram álit hag-
stætt Landsvirkjun,“ segir Viðar.
Hann segir að vísindasamfé-
lagið verði að taka á þeim málum
þar sem niðurstöður þeirra séu
slitnar úr samhengi til þess að
tryggja að framkvæmdir fái
framgang. Varðandi þá áhættu
sem Grímur reifaði að yrði vegna
Hálslóns þá spyr Viðar hvort ekki
hefði verið rétt að framkvæmda-
aðilar við Kárahnjúkavirkjun
hefðu vitneskju um málið.
„Þetta er spurning um það
hvort Alcoa og lánastofnanir
hefðu ekki átt að vita af þessari
áhættu,“ segir Viðar.
rt@frettabladid.is
10 14. mars 2003 FÖSTUDAGUR
„Hann segir
að „telja verði
ólíklegt“ að
Hálslón valdi
slíkum breyt-
ingum.“
FRAMKVÆMDIR Sú ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar að veita rúmum 6
milljörðum króna til eflingar at-
vinnulífsins á næstu 18 mánuðum
gæti valdið þenslu þar sem þær
skarast á við stækkun Norðuráls
og virkjanaframkvæmdir tengd-
um henni.
„Það er full ástæða til þess að
hafa áhyggjur af því hvað verið er
að dæla miklum peningum inn í
hagkerfið á tiltölulega stuttum
tíma,“ segir Svanfríður Jónasdótt-
ir, þingmaður Samfylkingarinnar.
„Menn eru að tefla býsna djarft.“
Svanfríður segir líklegt að nú
um mánuði eftir að ríkisstjórnin
tilkynnti um flýtiframkvæmdirn-
ar þurfi að endurskoða þá áætlun.
Forráðamenn Norðuráls hafi lýst
því yfir að framkvæmdir þar
þyrftu helst þegar að vera hafnar
því reyna eigi að ljúka þeim árið
2005 þegar framkvæmdirnar við
Kárahnjúkavirkjun nái hámarki.
„Ef það á að koma í veg fyrir
þenslu verður ríkið að stýra sín-
um framkvæmdum í takt við það
sem verið er að gera annars stað-
ar. Það er ekki víst að þeirra fram-
kvæmda, sem menn töldu sig
þurfa að flýta, sé þörf.“ ■
VIRKJANIR „Ég tel að ekkert nýtt
komi fram í þessu bréfi,“ segir
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar-
ráðherra um bréf sem fjórir and-
stæðingar Kárahnjúkavirkjunar
hafa sent henni og umhverfisráð-
herra vegna þess álits jarðeðlis-
fræðings Orkustofnunar að Háls-
lón kunni að valda hamfarahlaupi
vegna þess möguleika að sprung-
ur opnist með þeim afleiðingum
að stíflan bresti.
Valgerður segir að hún telji að
þetta mál sé upplýst með því að
dr. Freysteinn Sigmundsson, for-
stjóri Norrænu eldfjallastöðvar-
innar, hafi komist að þeirri niður-
stöðu að líklegt sé að lónið valdi
30 sentímetra jarðsigi. Ráðherra
segist trúa þeirri niðurstöðu.
„Niðurstaðan er sú að þetta sé
allt innan marka. Ég mun svara
bréfi fjórmenninganna með form-
legum hætti á næstu dögum,“ seg-
ir Valgerður. ■
Björgunartæki:
Svifnökkvi
á Ölfusá
FRAMFARIR Bæjarráð Árborgar
hefur ákveðið að styrkja björgun-
arsveitina Björg á Eyrarbakka
um hundrað þúsund krónur til
kaupa á svifnökkva:
„Tækið á að nota til björgunar-
starfa á Ölfusá,“ segir Einar
Njálsson, bæjarstjóri Árborgar.
„Svona tæki kostar um þrjár
milljónir króna og kemst upp og
niður Ölfusá án vandræða,“ segir
hann.
Fyrir á björgunarsveitin Björg
annan og minni svifnökkva sem
kominn er til ára sinna. Binda
björgunarsveitarmenn miklar
vonir við nýja tækið sem verður
margfalt öruggara og öflugra en
það gamla. ■
OF MIKLAR FRAMKVÆMDIR
Svanfríður Jónasdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segir líklegt að nú um mánuði eftir
að ríkisstjórnin tilkynnti um flýtiframkvæmdirnar þurfi að endurskoða þá áætlun.
Sex milljarða flýtiframkvæmdir gætu valdið þenslu:
Verið að tefla
býsna djarft
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR
Telur ekki hættu á manngerðu hamfara-
hlaupi vegna Hálslóns.
Iðnaðarráðherra:
Áhættan er innan marka
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
VIÐAR HREINSSON
Bókmenntafræðingurinn gerir alvarlegar athugasemdir við að skýrsla jarðeðlisfræðings Orkustofnunar skyldi ekki vera tekin með í reikn-
inginn þegar ákvörðun var tekin um að leyfa framkvæmdir við Kárahnjúkavirkjun.
Segir túlkun á vísinda-
niðurstöðum ískyggilega
Viðar Hreinsson, andstæðingur Kárahnjúkavirkjunar, komst á snoðir um álit jarðeðlisfræðings
sem lýsir hættu á hamfarahlaupi vegna Hálslóns. Hann gefur lítið fyrir túlkun Landsvirkjunar
á áliti annars vísindamanns.