Fréttablaðið - 14.03.2003, Page 33

Fréttablaðið - 14.03.2003, Page 33
■ ■ FUNDIR  12.00 Ragnar Aðalsteinsson lög- maður flytur erindi um mannlega göfgi í Odda, húsi félagsvísindastofnunar Há- skóla Íslands. Ragnar spyr hvort sumir hópar manna verði sviptir hinum jafn- borna rétti til mannlegrar virðingar.  13.00 Skógræktarfélag Íslands og Landvernd gangast fyrir ráðstefnu um skóga í umhverfinu. Ráðstefnan verður haldin í Mörkinni 6 í Reykjavík. Meðal fyrirlesara verða Arnlín Óladóttir skóg- fræðingur, Ásrún Elmarsdóttir plöntuvist- fræðingur og Einar Þorleifsson leiðsögu- maður og náttúrufræðingur. ■ ■ ÚTIVIST  14.00 Sigurbjörg Karlsdóttir leið- sögumaður býður upp á ferðir um álfa- slóðir í Hafnarfirði á föstudögum yfir vetrartímann. Ferðin tekur um hálfa aðra klukkustund. ■ ■ TÓNLIST  Inge Mandos-Friedland og hljóm- sveitin Kolisha flytja dagskrá með söngv- um og hljóðfæramúsík gyðinga á tónleik- um með Megasi í Stúdentakjallaranum. ■ ■ LEIKLIST  20.00 Hinar einu sönnu Píkusögur eftir Eve Ensler á Þriðju hæð Borgar- leikhússins.  14.00 Leikfélagið Snúður og Snælda sýnir gamanleikritið Forsetinn kemur í heimsókn í Ásgarði, Glæsibæ.  20.00 Kvetch eftir uppreisnar- manninn Steven Berkoff á Nýja sviði Borgarleikhússins í samstarfi við Á senunni.  20.00 Söngleikurinn Sól og Máni eftir Sálina hans Jóns míns og Karl Ágúst Úlfsson á Stóra sviði Borgar- leikhússins.  20.00 Rakstur eftir Ólaf Jóhann Ólafsson á Litla sviði Þjóðleikhússins.  20.00 Veislan eftir Thomas Vinter- berg og Mogens Rukov á Smíðaverk- stæði Þjóðleikhússins.  20.00 Nemendur Verslunarskóla Íslands sýna söngleikinn Made in USA eftir Jón Gnarr í Loftkastalanum.  20.00 Hellisbúinn er mættur til leiks á ný í Gamla bíói. Bjarni Þór Hauksson fer á kostum.  21.00 Beyglur með öllu í Iðnó. Kvöldverður fyrir og eftir sýningar.  20.00 Farsinn Allir á Svið eftir Michael Frayn er sýndur á Stóra sviði Þjóðleikhússins, þýddur og leikstýrð- ur af Gísla Rúnari Jónssyni. ■ ■ SKEMMTANIR  21.00 Finnska hljómsveitin Red Rum leikur írskættaða tónlist í Félags- heimilinu á Hvammstanga.  24.00 Hljómsveitin Spútnik spilar á Champions Café.  New Icon kvöld verður á Grandrokk í kvöld. Ilo, Blake og Funky Moses spila. Tommy White, Lewis Copeland, Buckmaster og VJ Optimus snúa skífum.  Í svörtum fötum verður á Gauki á Stöng í kvöld.  Dj Rallycross mætir á 22 við Lauga- veginn og sér um tjúttið fyrir dansþyrsta.  Hljómsveitin Buffið sér um stuðið á Vídalín.  Hinn einstaki dúett Acoustic skemmtir í Ara í Ögri.  Ingvar Valgeirsson trúbador spilar á Kránni, Laugavegi 73.  Fígúra rokkar á Café Amsterdam.  Spilafíklarnir leika á Celtic Cross. ■ ■ SÝNINGAR  Jóhannes Geir listmálari sýnir 70 verk í Húsi málaranna, Eiðistorgi. Rúm- lega tuttugu ár eru frá því Jóhannes Geir hélt síðast sýningu á verkum sínum. 34 14. mars 2003 FÖSTUDAGUR hvað?hvar?hvenær? 11 12 13 14 15 16 17 MARS Föstudagur Nú verð ég bara að fara að sjáHellisbúann áður en Bjarni verður of gamall,“ segir Karl Örvarsson, tónlistarmaður og auglýsingateiknari. „Ég er reynd- ar búinn að eiga hann á vídeó í ein tvö ár en hef ekki enn komið því við að skoða hann. Skyldumæting er á Sól og Mána og steypuverk Ásmundar Ásmundarsonar í Gall- erí Hlemmi er nokkuð sem enginn má missa af. Svo þarf ég að kynna mér og börnunum álfaslóðir í Hafnarfirði því ég er að pæla í að flytja þangað – nokkuð sem hver maður ætti að bræða með sér.“  Val Karls KARL ÖRVARSSON ✓ ✓ ✓ ✓ Þetta lístmér á! Ég mæli meðPíkusögum í Borgarleik- húsinu, sýning sem nýlega var tekin upp aftur, meðal annars vegna þess að þar eru áhorfend- ur látnir fara í hópefli og segja saman í einum kór: Kunta! Og sætta sig við að það er hið besta orð sem hefur djúpa pólitíska merkingu. Frá- bærlega vel gert hjá þessum þremur leikkonum.“ Mittmat Ég ætla að tala um hugtakiðmannleg virðing, sem ég kýs að nefna svo, þótt það hafi einnig verið kallað mannleg reisn, mann- leg göfgi eða mannleg tign. Ég ætla að reyna að gera grein fyrir þessu hugtaki út frá lögfræðileg- um sjónarmiðum,“ segir Ragnar Aðalsteinsson lögmaður. „Þetta hugtak kom fyrst fram í kjölfar voðaverka seinni heimsstyrjald- arinnar og hefur verið notað æ síðan sem undirstaða mannrétt- inda. Þetta kemur fyrst inn í Mannréttindayfirlýsingu Samein- uðu þjóðanna og hefur verið tekið inn í stjórnarskrár ýmissa landa.“ Ragnar ætlar að fjalla um þetta efni í fyrirlestri í Odda í há- deginu í dag. Þetta er fjórði fyrir- lesturinn af sex í hádegisfyrir- lestraröð, sem Samtökin 78 standa fyrir í tilefni af aldarfjórðungsaf- mæli sínu. „Ég ætla að velta því sérstak- lega fyrir mér hvernig þetta hug- tak tengist réttindum minnihluta- hópa eins og samkynhneigðra. Þar erum við líka komin aftur að upp- hafi þessa hugtaks. Samkyn- hneigðir urðu ásamt gyðingum og kommúnistum fyrir árásum nas- ista, sem stunduð útrýmingarher- ferð á hendur þessum hópum.“ Ragnar ætlar einnig að minn- ast á frægan dóm, sem nýlega féll í Hæstarétti Íslands um svonefnd- an einkadans á nektarstöðum. „Ég get ekki séð að í þessum dómi hafi neitt mið verið tekið af þessu hug- taki.“ Í öðrum löndum hafa hins vegar á síðustu árum sambærileg mál komið til kasta dómstóla, og þá hefur hugtakið mannleg virðing gegnt lykilhlutverki. ■ ■ FYRIRLESTUR Undirstaða mannréttinda RÉTTINDABARÁTTU SAMKYNHNEIGÐRA HEFUR FLEYGT FRAM Ragnar Aðalsteinsson lögmaður ætlar að fjalla um mannlega virðingu sem undirstöðu mannréttinda í hádegisfyrirlestri. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T GRANDROKK 10 ÁRA! – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – - Föstudagur 14. mars New Icon Records Live: ILO, Blake og Funky Moses (bassi) Dj’s: Tommi White, Lewis Copeland (Plank), Buckmaster (gus gus) og Vj Optimus. Frá kl. 21:00 - 04:00 / 700 kr. inn (+drykkur) – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – - Laugardagur 15. mars Artimus Pyle (hardcore frá U.S.A.) + gestir. kl. 23:00 / 700 kr. inn – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – - 20 ára aldurstakmark WWW.GRANDROKK.IS

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.