Fréttablaðið - 20.03.2003, Qupperneq 2
EFNAHAGSMÁL Einstaklingur sem
var með 100 þúsund krónur í laun
eftir skatta árið 1994 er með 133
þúsund í dag. Þetta kom fram á
blaðamannafundi Geirs H. Haarde
fjármálaráðherra í gær sem bar yf-
irskriftina: Skattalækkun er skatta-
lækkun.
Geir segir að breytingar á skatt-
kerfinu í stjórnartíð Sjálfstæðis-
flokksins hafi leitt til þess að skatt-
greiðendur borgi lægri skatta en
þeir hefðu gert ef eldra kerfið frá
árinu 1995 hefði enn verið í gildi.
Hann segir að ýmsar þær fullyrð-
ingar sem andstæðingar ríkisstjórn-
arinnar hafi haldið fram varðandi
skattamál séu ekki á rökum reistar.
Þegar rætt sé um skattamál sé afar
mikilvægt að greina á milli skatt-
kerfisbreytinga annars vegar og al-
mennra efnahagsumsvifa hins veg-
ar. Aðspurður um þá gagnrýni að
lágtekjufólk hafi setið eftir sagði
Geir að erfitt væri að lækka skatta á
þá sem borguðu enga skatta.
Geir segir það fullkomlega eðli-
legt að skatttekjur ríkisins hafi auk-
ist undanfarin ár. Þegar efnahags-
lífið sé í uppsveiflu, eins og hag-
vöxtur síðustu ára sýni, aukist tekj-
ur ríkissjóðs hlutfallslega meira en
þegar efnahagslífið sé í lægð. Sterkt
samband sé á milli skatttekna og
einkaneyslu.
Um þá gagnrýni að skattleysis-
mörk séu allt of lág hérlendis segir
Geir að það sé einfaldlega ekki rétt.
Í samanburði við OECD-ríkin séu
þau óvíða hærri en á Íslandi eða um
70 þúsund krónur miðað við t.d. 6
þúsund í Svíþjóð.
Um áhrif skattalækkunar undan-
farinna ára tók Geir dæmi af hjón-
um með tvö börn árið 1995 og árið
2003. Miðað við 440 þúsund króna
tekjur á mánuði segir hann að í dag
hafi fjölskyldan um 235 þúsund
krónum hærri ráðstöfunartekjur á
ári en hún hafði árið 1995. Einstætt
foreldri með eitt barn og 160 þús-
und krónur í tekjur hafi um 100 þús-
und krónum hærri ráðstöfunartekj-
ur nú en fyrir átta árum.
Geir vill lítið tjá sig um stefnu
Sjálfstæðisflokksins í skattamálum
fyrir kosningarnar og segir að hún
sé enn í mótun. Hann segist þó ekki
vera hlynntur hækkun persónuaf-
sláttar, þar sem hann telji að slík að-
gerð hjálpi ekki þeim sem lægstar
hafi tekjurnar. Betra sé að hækka
t.d. barnabætur. Hann segist vera
þeirrar skoðunar að ef breyta eigi
skattkerfinu frekar sé skynsamleg-
ast að lækka tekjuskattshlutfallið.
Slíkt dragi úr jaðaráhrifum og
stuðli að eflingu atvinnulífsins.
trausti@frettabladid.is
2 20. mars 2003 FIMMTUDAGUR
Já, ég hef vogað mér þangað
nokkrum sinnum og einatt litist af-
skaplega vel á mig þar.
Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri á Seltjarnar-
nesi, segir bæjaryfirvöld alls ekki binda fólk í átt-
hagafjötra með því að gera kröfu um að þeir sem
hafa minni tekjur kaupi íbúð í Vogum. Því hefur
verið haldið fram að Garðbæingar og Seltirningar
vísi efnaminni íbúum á að kaupa húsnæði í Vog-
um á Vatnsleysuströnd.
Spurningdagsins
Jónmundur,
hefurðu
komið í
Voga?
Eðlilegt að skatttekjur
ríkisins hafi aukist
Fjármálaráðherra segir umræðu um skattamál vera á villigötum. Skattgreiðendur séu að
borga lægri skatta í dag en fyrir breytingarnar árið 1995. Ráðherra vill ekki tjá sig um
skattastefnu Sjálfstæðisflokksins.
Meintar ólögmætur handtökur:
Lögreglumaður sendur í leyfi
LÖGREGLUMÁL Lögreglumaður í
Reykjavík hefur verið sendur í leyfi
vegna kæru um ólögmætar hand-
tökur. Lögreglustjóraembættið ósk-
ar þess að ríkislögreglustjóri leysi
lögreglumanninn alfarið undan
starfsskyldum á meðan ríkissak-
sóknari kannar kærefnin.
Kært er vegna tveggja atvika
sem áttu sér stað 8. og 9. mars. Í
fyrra tilfellinu var piltur handtek-
inn sem tók ljósmynd inni á skynda-
bitastað í óþökk lögreglumannsins.
Í hitt skiptið handtók lögreglumað-
urinn par í miðbænum. Við hand-
töku parsins beitti lögreglumaður-
inn svokölluðum varnarúða, þó ekki
á fólkið sem hann handtók.
„Við hefðum ekki beðið um að
maðurinn væri leystur undan störf-
um nema við teldum að lengra hafi
verið gengið en má gera,“ segir
Geir Jón yfirlögregluþjónn .
Að sögn Geirs Jóns er lögreglu-
manninn á miðjum aldri og hefur
starfsreynslu frá árinu 1987. Hann
segir sjaldan gripið til þess að fá
lögreglumenn leysta undan starfs-
skyldum. Þó hafi það gerst í fyrra
hjá Lögreglunni í Reykjavík. Það
hafi hins vegar ekki verið vegna
meintra brota í starfi.
Verði lögreglumaðurinn leystur
undan starfsskyldum missir hann
helming launa sinna á meðan rann-
sókn fer fram. ■
Umboðsmaður Alþingis vill að skaðabótamál konu
gegn lækni og lögreglu verði tekið upp:
Í bótamál vegna frelsisskerðingar
DÓMSMÁL Umboðsmaður Alþingis
telur að synjanir dóms- og kirkju-
málaráðuneytisins á gjafsókn til
handa konu sem fór í skaðabótamál
gegn geðlækni og lögreglustjóran-
um í Reykjavík hafi ekki verið
byggðar á réttum lagagrundvelli.
Konan höfðaði málið vegna
meintrar ólögmætrar frelsisskerð-
ingar. Málvextir voru þannig að í
júní árið 2000 var hún boðuð á lög-
reglustöðina við Hverfisgötu og
þaðan var hún flutt á geðdeild Land-
spítalans að beiðni geðlæknis sem
hún hafði verið sjúklingur hjá. Eftir
að hafa verið skoðuð af öðrum geð-
lækni á Landspítalanum var kon-
unni leyft að fara, þar sem læknir-
inn taldi ekki ástæðu til að nauðung-
arvista hana. Í kjölfarið höfðaði
konan mál, þar sem hún taldi að í
ráðstöfunum lögreglunnar og geð-
læknisins hefði falist ólögmæt
frelsisskerðing.
Konan tapaði málinu fyrir Hér-
aðsdómi Reykjavíkur og staðfesti
Hæstiréttur dóminn í janúar í fyrra.
Hæstiréttur veitti konunni gjafsókn
en héraðsdómur synjaði gjafsókn-
arbeiðni hennar. Hefur umboðs-
maður Alþingis nú beint þeim til-
mælum til dóms- og kirkjumála-
ráðuneytisins að taka mál konunnar
upp að nýju komi fram ósk frá
henni um það. ■
LÖGREGLAN Í REYKJAVÍK
Reyndur lögreglumaður hefur verið sendur
í frí vegna vafasamra handtaka á þremur
borgurum í miðbæ Reykjavíkur á tveimur
dögum.
FJÁRMÁLARÁÐHERRA
Um þá gagnrýni að skattleysismörk séu allt
of lág hérlendis segir Geir að það sé ein-
faldlega ekki rétt. Í samanburði við OECD-
ríkin séu þau óvíða hærri en hér.
%
55
50
45
40
35
30
25
20
15
10
5
0
Ísland Bætur
almannatrygginga
Lágmarkslaun OECD-ríkin
33%
40,9%
50%
13%
KAUPMÁTTARÞRÓUN Á ÍSLANDI OG EVRURÍKJUM OECD
1994 TIL 2003
Þús.
kr.
80
70
60
50
40
30
20
10
0 Tékklan
d
Svíþ
jó
ð
Sp
án
n
Íslan
d
2
0
0
3
Íslan
d
Írlan
d
H
o
llan
d
Fin
n
lan
d
G
rikklan
d
N
o
regu
r
D
an
m
ö
rk
B
retlan
d
SKATTLEYSISMÖRK Í NOKKRUM LÖNDUM OECD ÁRIÐ 2000
LÖGREGUSTÖÐIN VIÐ HVERFISGÖTU
Kona höfðaði mál gegn lögreglustjóranum
í Reykjavík og geðlækni, þar sem hún taldi
að í nauðungarvistun á geðdeild hefði fal-
ist ólögmæt frelsisskerðing.
Röst SH-134 sökk:
Tveir menn
björguðust
SJÓSLYS Mannbjörg varð er Röst
SH-134, 30 tonna fiskibátur, sökk
um eina sjómílu út af Svörtuloft-
um á Snæfellsnesi á sjötta tíman-
um gær.
Rétt fyrir klukkan fimm heyrði
flugvél í neyðarsendi við Snæ-
fellsnes og eftir athugun Tilkynn-
ingarskyldunnar kom í ljós að
einn bát vantaði í tilkynningar-
skyldu við Snæfellsnes. Voru
björgunarsveitir og þyrla þegar
kölluð út. Flugvél Flugmálastjórn-
ar miðaði út neyðarkallið. Nær-
statt grænlenskt loðnuskip bjarg-
aði svo tveimur mönnum um borð
úr björgunarbát. ■
Ögmundur Jónasson:
Létt af
stöndugum
SKATTAR „Það er alveg deginum ljós-
ara hverjar áherslur Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur haft í skattamál-
um undangenginn
áratug,“ segir Ög-
mundur Jónasson.
„Það hefur birst í því
að sköttum hefur
verið létt af fyrir-
tækjum, en eki ein-
staklingum. Þetta er
forgangsröðun sem
við höfum margoft
gagnrýnt. Hjá BSRB fer nú fram út-
tekt á skattkerfinu. Við hyggjumst
móta þær tillögur sem fram eru að
koma frá ýmsum aðilum inn í okkar
módel.“ Hann segist ekki ætla að tjá
sig um einstök atriði deilna um
skattkerfið að svo stöddu. „Megin-
stefna Sjálfstæðisflokksins í skatta-
málum hefur verið að forgangsat-
riðið hefur verið að létta skattbyrði
af þeim sem stöndugastir eru.“ ■
Bryndís Hlöðversdóttir:
Flýr ekki
staðreyndir
SKATTAR „Geir Haarde verst fimlega
gegn afleiðingum eigin ákvarðana
og stefnu,“ segir Bryndís Hlöðvers-
dóttir um útskýring-
ar fjármálaráðherra
á skattbyrðinni.
„Hann reynir að
draga hverja ástæð-
una á fætur annarri
inn í umræðuna til
þess að geta staðið á
þeirri fullyrðingu að
skattbyrði hafi ekki
aukist. Þær ganga
hins vegar ekki upp, því niðurstað-
an sem hann gaf sjálfur í svari til
Rannveigar Guðmundsdóttur er sú
að skattbyrði þeirra sem hafa
minnstar tekjur hefur aukist. Það er
sú staðreynd sem stendur eftir og
hann getur ekki flúið undan sama
hvað hann dregur inn í þessa rök-
semdafærslu sína.“ ■
ÖGMUNDUR
JÓNASSON
BRYNDÍS
HLÖÐVERS-
DÓTTIR