Fréttablaðið - 20.03.2003, Blaðsíða 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Fyrir alla húð, hendur og fætur
Helosan
Sótthreinsandi,
græðandi,
mýkjandi.
Bakþankar
STEINUNNAR STEFÁNSDÓTTUR
Ertu að kaupa, byggja eða breyta? Þú getur á auðveldan hátt samið um fasteigna-
eða framkvæmdalán hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum. Um er að ræða hagstætt
lán, sem veitt er til allt að 30 ára gegn veði í fasteign.
Allt að 80%veðsetningarhlutfallaf verðmæti fasteignar Frjálsa fjárfestingarbankans
Fasteignalán
Frjálsi fjárfestingarbankinn, Ármúla 13a, sími 540 5000, www.frjalsi.is
Úr takti
við fólkið
Aldrei hefur fólk um heim allanverið jafn sammála um að vera á
móti einhverju eins og nú á móti inn-
rás í Írak. Andstaðan er afar sýnileg.
Þegar fólk er spurt í skoðanakönnun-
um svarar mikill meirihluti því til að
hann sé á móti stríðinu. Um allan
heim stendur fólk á torgum og mót-
mælir, mótmælir sem aldrei fyrr.
Samt halda Bush og Blair málinu til
streitu án samþykkis Öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna, sem þó er sá
vettvangur sem þjóðir hafa samein-
ast um að fara með stríðrekstur sinn
í gegnum.
ÓTRÚLEGA mörg ríki hafa þó tek-
ið sig til og lýst stuðningi við banda-
lag B&B, þar á meðal Ísland. Það er
þó ekki fólkið sem byggir þessi ríki
sem styður þá félaga. Það eru stjórn-
völd þeirra, ráðamenn sem kjörnir
hafa verið til valda af fólki sem alls
ekki vill fara í stríð við írösku þjóð-
ina. Venjulegt fólk úti um allan heim
er gert að þátttakendum í aðgerð sem
það kærir sig ekki um. Aðgerð sem
það grátbiður um að þurfa ekki að
taka þátt í og horfa upp á. Við erum
gerð að þátttakendum í því að fórna
saklausum borgurum, fólki sem ekk-
ert hefur sér til saka unnið. Fólki sem
fæddist bara á vitlausum stað á vit-
lausum tíma. Fólki sem ekki var gef-
inn kostur á að kjósa sér ráðamenn.
ÞAÐ ER óskiljanlegt og í raun
óverjandi að þeir sem fara með um-
boð geti gersamlega hunsað vilja
þeirra sem þeir fara með umboð fyr-
ir. Þarna er einhver gríðarlegur mis-
skilningur á ferð. Maður veltir því
fyrir sér hvað felst í að vera kjörinn
fulltrúi í lýðræðisríki. Ég hélt að
minnsta kosti alltaf að þessum full-
trúum væri ætlað að endurspegla
vilja þeirra sem kusu þá. Það virðist
hins vegar ekki vera skilningur ráða-
manna víða um lönd, þar á meðal
ráðamanna okkar.
Á MEÐAN þeir sem við kusum eru
í óða önn að leggja drög að mannfórn-
um stendur fólkið sem kaus þá (og
þeir sem ekki kusu þá) ráðþrota og
getur ekkert gert annað en að mót-
mæla, svara því þegar það er spurt að
það vilji ekki stríð, sannfæra börnin
sín um að það vilji ekki stríð og mót-
mæla meira. Og fólk er ekki bara ráð-
þrota. Það er líka hrætt. Því enginn
veit hvað gerist næst. Hvað gerist
næst? ■