Fréttablaðið - 20.03.2003, Síða 13

Fréttablaðið - 20.03.2003, Síða 13
13FIMMTUDAGUR 20. mars 2003 Nýtt afgreiðslukerfi: ÁTVR semur við Streng VERSLUN Skrifað hefur verið undir samning milli Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins og Strengs hf. um nýtt afgreiðslu- kerfi fyrir verslanir ÁTVR. Ríkiskaup bauð verkið út og fengust tilboð frá tíu aðilum. Núverandi afgreiðsluhugbún- aður er kominn nokkuð til ára sinna. Vélbúnaði eða af- greiðslutölvum verður skipt út í áföngum og er þetta lokaáfang- inn í endurnýjun upplýsinga- kerfa fyrirtækisins sem hófst fyrir þremur árum. ■ á hreint ótrúlegu verði Skrifborðsstóll Tilboðsverð 49.900 Verð áður 69.975 Hæðarstillanleg seta og bak. Dýptarstillanleg seta. ,,Fljótandi“ setu- og bakhalli, fylgir hreyfingum notandans. Seta og bak læsanlegt í hvaða stöðu sem er. Mótstöðustilling í baki. Hæðar- og hliðarstillanlegir armar. Hörð og mjúk hjól. 5 ára ábyrgð Hallarmúli 4 • sími: 540-2000 • fax: 568-9315 penninn@penninn.is • www.penninn.is T il b o ð ið g il d ir ú t a p r íl 2 0 0 3 e ð a m e ð a n b ir g ð ir e n d a s t JARÐGÖNG Milli tvö og þrjú hund- ruð Siglfirðingar komu saman í Héðinsfirði við væntanlegan jarð- gangamunna og fögnuðu því að nú væri búið að senda útboðsgögn um jarðgöngin til valinna verk- taka. Sverrir Sveinsson veitustjóri flutti ávarp og sagði að langþráðu takmarki væri náð. „Stór stund er nú runnin upp í samgöngumálum Norðurlands með því að útboðsgögn um þetta stærsta verkefni Íslendinga í vegamálum hafa verið send út. Siglfirðingar mega svo sannar- lega gleðjast þar sem þeirra hag- ur verður trúlega mestur af þess- ari framkvæmd, Ástæða er til að fagna þessu takmarki sem nú er náð, sem hefur þegar grannt er skoðað ekki tekið svo langan tíma frá því að því var fyrst hreyft, miðað við umfang verksins og kostnað,“ sagði Sverrir í ávarpi sínu. ■ FUNDAÐ Í BRUSSEL Chris Patten, verðandi kanslari Háskólans í Oxford, stýrði fundi um uppbyggingu Afganistans. Uppbygging Afganistans: Lofa stuðningi BRUSSEL, AP Fulltrúar Bandaríkj- anna, Evrópusambandsins og Jap- ans hétu því að styðja myndarlega við bakið á Afgönum í endurupp- byggingu landsins eftir tveggja áratuga borgarastríð. Eftir fund í Brussel hétu Bandaríkjamenn því að veita and- virði 63 milljarða króna í aðstoð á þessu ári. Japanir hétu nær 40 milljörðum á tveimur og hálfu ári og Evrópusambandið hét því að veita Afgönum 35 milljarða króna stuðning í ár. Ashraf Ghani, fjár- málaráðherra Afganistan, segir landið þurfa 1.200 til 1.500 millj- arða króna í efnahagsaðstoð næstu tvo áratugina. ■ Íraskur herforingi í Danmörku: Stakk af úr stofufangelsi KAUPMANNAHÖFN, AP Lögreglan í Ringsted á Sjálandi hefur gefið út alþjóðlega handtökuskipun á hend- ur fyrrum íröskum hershöfðingja, Nizar al-Khazraji, sem verið hefur í stofufangelsi í Danmörku síðan í nóvember 2002. Al-Khazraji hvarf frá heimili sínu á Suður-Sjálandi en að sögn sonar hans skrapp hann út til þess að fá sér sígarettu og sneri ekki aftur. Al-Khazraji var settur í stofu- fangelsi eftir að hann gerði tilraun til þess að komast til Norður-Írak en hann er grunaður um að hafa borið ábyrgð á gasárásum á Kúrda á svæðinu árið 1988. Hann var rekinn úr embætti árið 1990 af Saddam Hussein en hafði nýlega lýst því yfir að hann vildi komast til Írak til þess að leiða þjóð sína í baráttunni gegn Hussein. ■ MIKIL SAMGÖNGUBÓT Það má með sanni segja að mikil breyting til batnaðar verður á samgöngumálum þeirra Siglfirðinga við að fá jarðgöngin. Þarna má sjá breytinguna á vegalengdinni til Ólafsfjarðar með tilkomu ganga. Siglfirðingar fagna: Undirbúningur jarðganga hafin Hagnaður Pharmaco: Rúmir þrír milljarðar UPPGJÖR Hagnaður samheitalyfja- fyrirtækisins Pharmaco var rúmir þrír milljarðar á síðasta ári. Hagn- aður fyrirtækisins tvöfaldaðist á milli ára. Velta félagsins jókst um þrjá milljarða milli ára. Rekstrar- hagnaður fyrir afskriftir, skatta og fjármagnsliði var tæpir fjórir millj- arðar samanborið við 3,2 milljarða árið áður. Framlegð síðasta árs- fjórðungs var undir væntingum og skýrist það meðal annars af breyt- ingum á gengi krónunnar. ■

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.