Fréttablaðið - 20.03.2003, Qupperneq 17
17FIMMTUDAGUR 20. mars 2003
Sjúkrahúsið Vogur:
Konum fjölg-
ar stöðugt
HEILBRIGÐISMÁL Stöðugt fjölgar
konum sem leita til SÁÁ. Á síð-
asta ári leituðu 527 konur í með-
ferð á sjúkrahúsið Vog. Þar af
voru 120 stúlkur 19 ára og yngri.
SÁÁ býður konum upp sér-
staka kvennameðferð og fer með-
ferðin að hluta til fram á Vík á
Kjalarnesi, en þar voru 230 konur
á síðasta ári. Eftir meðferðina á
Vík sækja konurnar í kvenna-
meðferðinni göngudeild SÁÁ í
Síðumúla og á Akureyri í 1 ár.
Konunum fjölgar ekki bara
tölulega heldur líka hlutfallslega.
34% nýju sjúklinganna á Vogi á
síðasta ári voru konur. ■
Meðalævilengd
Íslendinga:
Konur lifa
lengur
LÝÐHEILSA Munurinn á meðalævi-
lengd karla og kvenna á Íslandi er
með þeim minnsta sem þekkist í
heiminum, eða fjögur ár.
Íslenskir karlar geta vænst
þess að ná 78,2 ára meðalævi-
lengd og konur 82,2 árum sam-
kvæmt nýjum tölum frá Hagstof-
unni sem taka mið af árunum 2000
til 2002.
Eins og annars staðar í heimin-
um eru ævilíkur karla styttri en
kvenna, en það vekur athygli að
hér er munurinn minni en víðast
hvar annars staðar. Munur á ævi-
lengd milli kynjanna er á bilinu
sex til sjö ár í flestum Evrópu-
löndum. Á Norðurlöndum er hann
talsvert minni, en mestur 5,7 ár í
Noregi.
Árið 2002 dóu 1.819 einstak-
lingar á Íslandi, 933 karlar og 886
konur. Dánartíðni var 6,3 af 1.000
íbúum. ■
NÝI FORSÆTISRÁÐHERRANN
Zoran Zivkovic er 42 ára. Hann var náinn
samstarfsmaður Zorans Djindjics.
Tveir lykilmenn
handteknir:
Eftirmaður
Djindjics
valinn
BELGRAD, AP Það var naumt á mun-
um þegar serbneska þingið valdi
Zoran Zivkovic sem eftirmann
Zorans Djindjics í embætti for-
sætisráðherra landsins. 128 þing-
menn af 250 greiddu honum at-
kvæði sitt en hundrað þingmenn
greiddu atkvæði gegn honum.
Zivkovic hét því að halda
áfram umbótastarfinu sem
Djindjic hóf. Hann hyggst berjast
gegn glæpasamtökum og koma
grunuðum stríðsglæpamönnum í
laganna hendur.
Skömmu áður en þingið kaus
eftirmann Djindjics voru tveir
grunaðir höfuðpaurar samsæris-
manna handteknir. Dragan Nink-
ovic, fyrrum lögreglumaður sem
sneri sér að glæpum, og Zoran
Vukojevic, þekktur fíkniefnasali,
streittust á móti þegar lögreglu-
menn handtóku þá. Auk þess að
handtaka mennina tvo var mikið
magn vopna gert upptækt.
Nálægt 800 manns hafa verið
handteknir í tengslum við rann-
sóknina á morði Djindjics. ■
LÍFEYRISSJÓÐIR Hrein raunávöxtun
Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda var
0,5% í fyrra. Fimm ára meðaltal
hreinnar raunávöxtunar sjóðsins
var í árslok um 3,2% og tíu ára
meðaltal var 5,3%.
Raunávöxtun sjóðsins hefur
aldrei verið neikvæð, en miklar
lækkanir á erlendum hlutabréfa-
mörkuðum skýra lága ávöxtun
sjóðsins á síðasta ári. Innlendar
eignir gáfu þó góða ávöxtun.
Heildareignir til greiðslu lífeyr-
is í árslok 2002 hjá Söfnunarsjóði
lífeyrisréttinda námu alls 23,9
milljörðum króna. Eignir sjóðsins
jukust um rúma 1,6 milljarða eða
7,4%. Iðgjöld ársins námu 1.356
milljónum króna, sem er 7,8%
aukning frá fyrra ári. Lífeyris-
greiðslur námu 275 milljónum og
nam aukningin um 29,8% frá árinu
á undan.
Tryggingafræðileg staða sýnir
að eignir umfram áfallnar skuld-
bindingar námu 21,2% í árslok
2002. Heildarskuldbinding umfram
eignir er hins vegar 5,9%. Versn-
andi staða milli ára skýrist fyrst og
fremst af auknum lífslíkum sjóðfé-
laga og lakari ávöxtun. Hrein raun-
ávöxtun séreignardeildar sjóðsins
var neikvæð um 1,2%. Eignir sér-
eignardeildar sjóðsins nánast tvö-
faldast milli ára og fjöldi rétthafa
hefur tífaldast. ■
SÖFNUNARSJÓÐUR LÍFEYRISRÉTTINDA
Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda er sjöundi stærsti lífeyrissjóður landsins. Hann er sjálfstæð-
ur lífeyrissjóður sem ekki starfar í tengslum við stéttarfélag.
Heildareignir Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda nema
tæpum 24 milljörðum:
Jákvæð ávöxtun
Söfnunarsjóðsins