Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.03.2003, Qupperneq 19

Fréttablaðið - 20.03.2003, Qupperneq 19
19FIMTUDAGUR 20. mars 2003 KAPPAKSTUR Ökuþórinn Juan Pablo Montoya, liðsmaður Willi- ams í Formúlu 1 kappakstrinum, telur að liðsmenn Ferrari muni eiga í nokkrum erfiðleikum með að vinna heimsmeistaratitilinn aftur í ár. „Ég held að það verði erfitt fyrir Ferrari að sigra í ár því McLaren-menn virðast vera mjög sterkir,“ sagði Montoya, sem lenti í öðru sæti í ástralska kappakstrinum fyrr í mánuðin- um á eftir David Coulthard hjá McLaren. Annar kappakstur tímabilsins verður háður í Malasíu aðfara- nótt sunnudags. ■ MONTOYA Kólumbíumaðurinn Juan Pablo Montoya lenti í öðru sæti í ástralska kappakstrinum fyrr í mánuðinum. Juan Pablo Montoya: Erfitt ár fyrir Ferrari FÓTBOLTI Forráðamenn skoska knattspyrnuliðsins Celtic hafa lýst yfir undrun sinni á ákvörðun Evrópska knattspyrnusambands- ins, UEFA, um að sekta félagið vegna hegðunar áhorfenda í leik Celtic og Liverpool í 8 liða úrslit- um Evrópukeppni félagsliða í síðustu viku. Atvikið átti sér stað rétt áður en El-Hadji Diouf, leikmaður Liver- pool, hrækti að áhorfendunum. Diouf var í gær dæmdur í tveggja leikja bann af UEFA fyrir athæfið. Hann hafði áður verið sektaður um tveggja vikna laun af Liverpool. Búist hafði verið við því að Senegalinn fengi fjögurra leikja bann en UEFA ákvað að taka tillit til hegðunar áhorfenda Celtic, sem munu hafa ögrað kappanum. For- ráðamenn Celtic eru undrandi á úrskurðinum, sér í lagi vegna þess að Diouf hafði sjálfur beðist afsök- unar á framferði sínu. Síðari leikur Celtic og Liverpool verður háður á Anfield Road, heimavelli Liverpool, í kvöld. Fyrri leikurinn endaði með 1:1 jafntefli. Diouf verður í banni í leiknum en það kemur ekki að sök því Gerard Houllier, knattspyrnu- stjóri Liverpool, hafði þegar ákveðið að taka hann út úr liðinu. ■ DIOUF El-Hadji Diouf verður ekki í leikmanna- hópi Liverpool í kvöld. Forráðamenn Celtic undrandi: Sektaðir vegna hegðunar áhorfenda Greiðslukortafyrirtækið Mastercard: Einn af styrktaraðil- um KSÍ FÓTBOLTI Greiðslukortafyrirtækið Mastercard hefur gerst einn af aðalstyrktaraðilum Knattspyrnu- sambands Íslands. Samningur þess efnis var undirritaður á dög- unum og gildir hann til ársins 2006. Helstu áhersluatriði í sam- starfinu eru átak gegn fordómum í knattspyrnu næsta sumar og samvinna í tengslum við miðasölu á landsleiki. Þess má geta að Mastercard hefur einnig gert samning um að styrkja heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu árið 2006 sem haldin verður í Þýskalandi. Fyrirtækið styrkir einnig Meistaradeild Evrópu í knattspyr- nu árin 2000 til 2004 og Evrópukeppni félagsliða árin 2004 til 2008. ■  16.45 Sjónvarpið Handboltakvöld  18.00 Sýn Sportið með Olís. Fjallað er um helstu íþróttaviðburði heima og erlendis.  18.25 Sjónvarpið Snjókross. Þáttaröð um kappaksturs- mótaröð vélsleðamanna.  18.30 Sýn Western World Soccer Show. Heimsfót- bolti Western World.  19.15 Grindavík Grindavík tekur á móti KR í úrslita- keppni 1. deildar kvenna í körfubolta. Þetta er önnur viðureign liðanna en KR vann þá fyrstu örugglega.  19.45 Sýn Bein útsending frá síðari leik Liverpool og Celtic í 8 liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða.  22.00 Sýn Football Week UK. Nýjustu fréttirnar úr enska boltanum.  22.30 Sýn Sportið með Olís. Fjallað er um helstu íþróttaviðburði heima og erlendis.  23.00 Sýn Sýnt frá Qatar-meistaramótinu í evr- ópsku PGA-mótaröðinni í golfi.  23.50 Sýn Sýnt frá Ford-mótinu í bandarísku PGA- mótaröðinni í golfi.  0.40 Sýn HM 2002. Sýnt frá leik Kosta Ríka og Tyrklands á HM í Asíu síðasta sumar.  5.50 Sjónvarpið Formúla 1. Bein útsending frá tímatöku fyrir kappaksturinn í Malasíu. hvað?hvar?hvenær? 1718 1920 21 22 23 MARS fimmtudagur Stelpan í At 7dagskrásjónvarpsinsnæstu daga Halldór í réttum og röngum litum Þitt eintak Viku legt t ímar i t um fó lk ið í l and inu birta konur hafa minni áhuga á pólitík rómantísk helgi að hætti Sigga Hall NR. 2 – 21 . T I L 27 . MARS 2003 ÚTBRE IDDASTA T ÍMARIT LANDSINS – 86 .000 E INTÖK Sigrún Ósk Kristjánsdóttir hvernig týpa ert þú? Tímarit í 86.000 eintökum um fólkið í landinu A L LTA F Á F Ö S T U D Ö G U M

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.