Fréttablaðið - 20.03.2003, Side 21
21FIMMTUDAGUR 20. mars 2003
■ TÓNLEIKAR
Tónleikar gegn
fíkniefnum
Klukkan hálfníu í kvöld hefj-ast tónleikar á fimm stöðum
úti á landi þar sem fram koma
kórar og einsöngvarar. Nánar
tiltekið á Ólafsvík, Egilsstöðum,
Selfossi, Ísafirði og Akureyri.
Aðgangseyrir að þessum tón-
leikum verður notaður til þess
að styrkja forvarnir gegn fíkni-
efnanotkun unglinga.
Á laugardaginn verða svo
stórtónleikar í Hallgrímskirkju
með fimm hundruð manna kór
og einsöngvurum, einnig til
styrktar sama málefni. Það er
Kammerkór Reykjavíkur sem
hefur skipulagt þetta verkefni í
samvinnu við Ungmennafélag
Íslands.
„Þetta verður notað til að
kynna fyrir foreldrum grunn-
skólanema helstu einkenni fíkni-
efnaneyslu unglinga. Það verða
ungmennafélögin og líklega for-
eldrafélögin á hverjum stað sem
sjá um kynninguna. Hugsanlega
verða einnig gerðar kvikmyndir
til að sýna í skólunum,“ segir
Sigurður Bragason, stjórnandi
Kammerkórs Reykjavíkur, sem
ásamt núverandi stjórn kórsins
hefur skipulagt styrktartónleika
fyrir ýmis málefni árlega nú í
nokkur ár. Eitt árið var sungið til
styrktar geðfötluðum, árið eftir
hjartveikum börnum og í fyrra
Götusmiðjunni, sem átti þá í
fjárhagserfiðleikum.
„Það má segja að þetta hafi
byrjað fyrir fimm árum. Þá var
maður í kórnum hjá okkur sem
var í hjólastól. Hann fór að tala
um að það væri svo mikið af
fólki í þjóðfélaginu sem kæmist
ekki á tónleika vegna fötlunar.
Þannig að við ákváðum að halda
sértónleika fyrir mikið fatlað
fólk, og höfðum þá gott pláss
fyrir hjólastóla. Síðan hafa verið
svona tónleikar árlega.“ ■
SUNGIÐ TIL STYRKTAR GÓÐU MÁLEFNI
Í kvöld verða tónleikar víða um land til styrktar forvörnum gegn fíkniefnanotkun.
SÖLUHÆSTU PLÖTURNAR Í
VERSLUNUM SKÍFUNNAR
10.-16. MARS
1. Norah Jones - Come Away With Me
2. Írafár - Allt sem ég sé
3. Nick Cave - Nocturama
4. Sigur Rós - ( )
5. AC/DC - Back In Black
6. Michael Jackson - Thriller
7. Sálin hans Jóns míns - Sól & Máni
8. Massive Attack - 100th Window
9. Sigur Rós - Ágætis Byrjun
10. Turin Brakes - Ether Song
NORAH JONES
Hefur náð að heilla ís-
lenska tónlistarkaup-
endur upp úr skónm.
■ ■ LEIKSÝNINGAR
20.00 Söngleikurinn Með fullri
reisn eftir Terrence McNally og Davit
Yazbek á Stóra sviði Þjóðleikhússins.
20.00 Púntila og Matti eftir Bertolt
Brecht verður frumsýnt á Stóra sviði
Borgarleikhússins í kvöld með Theo-
dór Júlíusson og Berg Þór Ingólfsson í
aðalhlutverkum. Leikstjóri er Guðjón
Pedersen.
21.00 Beyglur með öllu í Iðnó.
Fáar sýningar eftir.
21.00 Einleikurinn Sellófon eftir
Björk Jakobsdóttur í NASA við Austur-
völl.
■ ■ SKEMMTANIR
19.45 Þriðja kvöld Músíktilrauna
Tónabæjar og Hins Hússins verður hald-
ið í Hinu húsinu.
20.00 Vinir Dóra verða með blús-
kvöld á Vídalín.
21.00 Hljómsveitin Hvanndals-
bræður heldur sína fyrstu opinberu tón-
leika á Græna hattinum á Akureyri.
Tónlistin sem þeir félagar flytja eru aðal-
lega þjóðlög, lög sem þeim finnst að
ættu að vera þjóðlög, og lög sem þeir
telja vafalítið að verði þjóðlög.
22.00 Moody Company skemmtir
á Laugavegi 11. Krummi og Franz verða
í takt.
Hljómsveitin Tenderfoot verður með
tónleika á Kránni, Laugavegi 73.
■ ■ FRAM UNDAN
Dagana 21.-23. mars halda Guð-
björg Gissurardóttir hönnuður og
Pálína Jónsdóttir leikkona námskeið í
Lónkoti, Skagafirði fyrir alla sem hafa
áhuga á sköpun, hugmyndum og litrík-
ara lífi. Sköpunargáfan verður sett í
hleðslu fjarri skarkala hversdagslífsins.
■ ■ SÝNINGAR
Bernd Koberling sýnir verk sín í i8
við Klapparstíg.
Myndlistarmaðurinn Gunnar Örn
sýnir í Listasafni ASÍ, Freyjugötu 41.
Verkin á sýningunni nefnast Sálir og
Skuggi.
Sýningin Undir fíkjutré: Alþýðulistir
og frásagnarhefðir Indlands stendur
yfir í Listasafninu á Akureyri. Þetta er í
fyrsta sinn sem indversk myndlist er
kynnt með jafn víðfeðmum hætti hér á
landi. Á henni getur að líta málverk,
höggmyndir, keramík, vefnað, búninga,
ljósmyndir, hljóðfæri, bíómyndir og
póstkort.
Í Hafnarborg, menningar- og lista-
stofnun Hafnarfjarðar, stendur yfir sýn-
ing á áður ósýndum verkum listakon-
unnar Louisu Matthíasdóttur. Sýnd
verða málverk og vatnslitamyndir úr
vinnustofu listakonunnar á 16. stræti í
New York þar sem fjölskyldan bjó lengst
af og einnig vinnustofu hennar hér
heima í Reykjavík.
Gylfi Gíslason sýnir landslagsmál-
verk í kaffihúsinu Mokka við Skóla-
vörðustíg.
Jóhannes Geir listmálari sýnir um
70 verk í Húsi málaranna, Eiðistorgi.
Rúmlega tuttugu ár eru frá því Jóhannes
Geir hélt síðast sýningu á verkum sín-
um.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur
valið myndlistarverk eftir ýmsa lista-
menn á sýninguna Þetta vil ég sjá í
Gerðubergi.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
valdi tíu listamenn til þátttöku í sýningu
sem nefnist Að mínu skapi og stendur
yfir í Baksalnum í Galleríi Fold.
Sýning Blaðaljósmyndarafélags Ís-
lands á ljósmyndum ársins stendur yfir í
Gerðarsafni, Listasafni Kópavogs. Á
neðri hæðinni eru auk þess sýndar ljós-
myndir Ólafs K. Magnússonar frá fyrstu
20 árum hans á Morgunblaðinu.
Helgi Þorgils Friðjónsson er með
einkasýningu á Kjarvalsstöðum. Hann
sýnir þar eingöngu ný málverk.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is
Ég sá síðasts ý n i n g u
Helga Þorgils
Friðjónssonar
á Kjarvals-
stöðum,“ segir
Birgir Ár-
mannsson, aðstoðarframkvæmda-
stjóri Verslunarráðs Íslands. „Ég
hafði afskaplega gaman af sýn-
ingunni eins og verkum Helga yf-
irleitt. Maður er nú orðinn vel
kunnugur persónum hans, eða
þessum skemmtilegu fígúrum, en
ég hafði þó mest gaman af tilraun-
um hans með önnur mótív eins og
landslag og ýmsar smámyndir.“
Mittmat
✓
✓
✓