Fréttablaðið - 20.03.2003, Page 29
29FIMMTUDAGUR 20. mars 2003
LEGONýtt NBA
Tilboðið gildir 20. - 23. mars eða meðan birgðir endast.
30%
afsláttur
á NBA
LEGO
FLENSA Almenn veikindi nemenda
hafa sett strik í skólahald víða um
land og meira segja orðið til þess
að árshátíðum hefur verið
frestað. Árshátíð Grunnskóla
Vesturbyggðar á Patreksfirði,
sem halda átti í vikunni, hefur
verið frestað og sömu sögu er að
segja í Holtaskóla í Reykjanesbæ.
Í Patreksskóla voru 45 nem-
endur af 71 veikir í gær og fór
veikum frekar fjölgandi en hitt.
Segist skólastjórinn, Ragnhildur
Einarsdóttir, ekki muna önnur
eins veikindi á ferli sínum. Í
Holtaskóla voru það veikindi
þeirra sem sjá áttu um skemmti-
atriði á árshátíð skólans sem urðu
til þess að árshátíðinni var
frestað. Svo rammt kvað að veik-
indum í skólanum að í sjötta bekk
mættu aðeins þrír nemendur í
fyrradag og ekki skánaði útlitið
þegar kennarararnir fóru að falla
einn af öðrum. ■
JARÐARFARIR
13.30 Ólafur Jónas Sigurðsson, Þrastar-
stíg 9, Reykjavík, verður jarðsung-
inn frá Fríkirkjunni í Reykjavík.
13.30 Þorsteinn Davíðsson, Faxaskjóli
16, verður jarðsunginn frá Dóm-
kirkjunni.
15.00 Una Guðmundsdóttir, Furugerði
1, verður jarðsungin frá Fossvog-
skapellu.
15.00 Þórir H. Konráðsson, Aratúni 6,
Garðabæ, verður jarðsunginn frá
Fríkirkjunni í Reykjavík.
ANDLÁT
Sigríður Hansdóttir frá Súgandafirði lést
17. mars.
Tómas Kristjánsson, Hraunbraut 32,
Kópavogi, lést 16. mars.
AFMÆLI
Leikarinn og leikstjórinn Gísli Rúnar
Jónsson er fimmtugur.
Pondus eftir Frode Øverli
FLENSA
Setur víða strik í reikninginn.
■ Skólahald
Veikindi trufla
árshátíðir
■ Tímamót
Án Derricks
eru þriðjudags-
kvöldin ónýt!
En þú átt
326 þætti á
vídeói, Elsa
mín!
Það er ekki
eins! Ég vil fá
nýja þætti!
Þú verður að
horfast í augu
við að Derrick
er orðinn gam-
all og kominn á
elliheimili! Það
er ungi maður-
inn Harry Klein
sem sér núna
um að leysa
málin!
En sá góði drengur, Harry, kíkir
sjálfsagt á sinn gamla vin Stef-
án Derrick... þó ekki væri nema
til þess að segja hæ og gefa
honum tvær matskeiðar af vel
stöppuðum sveskjugraut!
Ach,
ja...
Með súrmjólkinni
Kalli skoski var hjá tannlækninum ogspurði hvað kostaði að láta draga
tvo jaxla úr og rótfylla. „Það eru alltaf
ein 40 þúsund,“ svaraði tannsi.
„Allt allt of mikið,“ segir Kalli og tann-
læknirinn segist hugsanlega getað lækk-
að verðið niður í 30 með því að sleppa
deyfingunni. „Já, neineineinei, allt of
mikið,“ segir Kalli og læknirinn segir:
„Jæja, lokatilboð. Sleppum deyfingunni
og lærlingurinn fær að draga jaxlana
úr... 15 þúsund!“
„Segjum það,“ svara Kalli. „Bókaðu
þá tíma fyrir konuna mína næsta þriðju-
dag klukkan þrjú.“
Ríkisútvarpið:
Fréttamenn
ekki til Írak
ÚTVARPSRÁÐ Ríkisútvarpið mun
ekki senda fréttamenn til átaka-
svæðanna í Írak, ef og þegar
stríð brýst þar út. Þetta kom
fram í svari Boga Ágústssonar
við fyrirspurn Marðar Árnason-
ar á fundi útvarpsráðs fyrr í vik-
unni. Mörður spurði hvernig
fréttastofur Ríkisútvarpsins
væru búnar undir að fjalla um
yfirvofandi átök í Írak. Bogi
svaraði því til að ekki stæði til
að senda menn utan. Undirbún-
ingur vegna umfjöllunar um
möguleg átök hefðu staðið und-
anfarna mánuði og sömuleiðis
viðræður við erlenda frétta-
stöðvar um útsendingar utan
hefðbundins útsendingartíma
Sjónvarpsins. ■
BOGI ÁGÚSTSSON
Engir utan.