Fréttablaðið - 20.03.2003, Síða 30
Glaðbeittur tuttugu manna hóp-ur hélt utan í gær til New
York undir forystu Sverris Agn-
arssonar, markaðsstjóra Skjás
eins. Tilgangur fararinnar er að
kynna sér hvernig kaupin gerast á
eyrinni meðal stóru strákanna í
henni Ameríku. Með í för verða
ýmsir markaðs- og auglýsinga-
menn svo sem: Sverrir Björnsson
hjá Hvíta húsinu og Jón Jóhann
Þórðarson hjá Íslensku auglýs-
ingastofunni auk Jóhanns Páls
Valdimarssonar frá JPV-útgáfunni
svo einhverjir séu nefndir. Þetta
fríða föruneyti ætlar meðal ann-
ars að kíkja við á CBS, NBC, MTV
og Tribeca Grill og hitta Erwin
Efron, sem mun vera einn helsti
auglýsingaspekingur heims. Mun
hann leggja okkar mönnum lín-
urnar.
Hemmi Gunn hefur selt rekst-ur veitingastaðar síns í
Tælandi og er það annar Íslend-
ingur sem tekur við. Veitinga-
staðurinn hefur verið lifibrauð
Hemma ytra um árabil og gengið
bærilega. En nú hyggur sjón-
varpsstjarnan
fyrrverandi á
nýja landvinn-
inga þó að hann
gefi ekki upp
hverjir þeir
eru. Hemmi
kom í heimsókn hingað til lands
fyrir skemmstu en hélt af landi
brott eftir að hafa rekið erindi
sín og gekk þá frá sölu á veit-
ingastað sínum. Staðurinn er í
þriggja stjörnu hótelbyggingu og
vel sóttur af hótelgestum. Hefur
Hemmi verið með afbragðs
starfsfólk sem ætlar að halda
áfram störfum undir nýjum eig-
anda. Sjálfur býr Hemmi áfram
á hótelinu eins og hann hefur
gert til þessa. Ytra gengur hann
undir nafninu Rambo.
Hrósið 30 20. mars 2003 FIMMTUDAGUR
Breytingar í háloftunum:
Ráðuneyti skoðar flugfarseðla
SAMGÖNGUR „Þetta kallar á nýja
hugsun hér í ráðuneytinu,“ segir
Baldur Guðlaugsson, ráðuneytis-
stjóri í fjármálaráðuneytinu, um
nýjar aðstæður sem upp eru
komnar í flugmálum þjóðarinnar.
Á hann þar við farmiðakaup rík-
isins vegna ferða opinberra
starfsmanna til útlanda. Tilkoma
lággjaldafélagsins Iceland Ex-
press, svo og nettilboð alls konar
í flugi, hafa breytt forsendum
sem fjármálaráðuneytið gekk út
frá þegar samið var við Ferða-
skrifstofu Íslands um allar utan-
landsferðir á vegum hins opin-
bera:
„Það er vinna í gangi hér í
ráðuneytinu sem miðar að því að
aðlagast þessum nýju aðstæðum
þótt niðurstaða liggi ekki enn
fyrir,“ segir Baldur Guðlaugsson
og leggur áherslu á að nú verði að
horfa til þess hvernig hægt sé að
laga þann samning sem í gildi er
við Ferðaskrifstofu Íslands að
breyttu umhverfi. „Samningur-
inn er í gildi fram til næstu ára-
móta og við sjáum ekki fyrir
hvað gerist þá, hvort sem farið
verður í útboð vegna farmiða-
kaupanna eða ekki,“ segir ráðu-
neytisstjórinn.
Þegar hefur ein opinber stofn-
un pantað farseðil hjá Iceland
Express fyrir starfsmann sinn og
er það í trássi við reglur sem
gilda vegna samningsins við
Ferðaskrifstofu Íslands. Forráða-
menn Iceland Express telja þó að
fleiri opinberar stofnanir séu í
viðbragðsstöðu og geti vel hugs-
að sér að eiga viðskipta við félag-
ið ef för starfsmanna er heitið til
Kaupmannahafnar eða London.
Það sé kappsmál stjórnenda rík-
isstofnana að spara og þarna sé
það bersýnilega hægt. ■
ICELAND EXPRESS
Tilkoma félagsins hefur ásamt öðru kallað
á nýja hugsun í fjármálaráðuneytinu vegna
ferðalaga opinberra starfsmanna til út-
landa.
STJÓRNMÁL Ungir framsóknarmenn í
höfuðborginni hafa skorið upp her-
ör gegn formanni sínum í Íraksdeil-
unni með samþykkt sem gengur
þvert á skoðanir og
yfirlýsingar Hall-
dórs Ásgrímssonar:
„Við erum ósátt-
ir við þróun al-
þjóðamála og erum
að bregðast við
því,“ segir Haukur
Logi Karlsson, for-
maður Félags
ungra framsóknarmana í Reykja-
víkurkjördæmi suður. Haukur skip-
ar sjöunda sætið á lista flokksins í
kjördæminu en starfar annars sem
járnabindingamaður: „Við erum
ekki að hjóla í formanninn þó að við
séum ekki sammála honum. Alvar-
legra þykir okkur að ekki sé farið
eftir samþykktum Sameinuðu þjóð-
anna og það er alveg ljóst að Hall-
dór Ásgrímsson túlkar ástandið
öðruvísi en við,“ segir Haukur Logi,
sem gekk í Framsóknarflokkinn
fyrir fjórum árum og stefnir að
frama innan hans. „Ég á ekki von á
neinum eftirmálum vegna þessarar
samþykktar okkar. Þetta er eitt-
hvað sem við þurftum að gera til að
fylgja sannfæringu okkar,“ segir
hann.
Samhliða starfi sínu fyrir unga
framsóknarmenn og framboð í
Reykjavík starfar Haukur Logi
sem verktaki í samvinnu við aðra í
járnabindingum í nýbyggingu
Verslunarskólans. Segist vera
erfðafræðilegur framsóknarmaður
eins og margir aðrir; ættaður úr
Flóanum og Skagafirði: „Þar eru
margir framsóknarmenn en genin
sæki ég í móðurættina. Faðir minn
er hins vegar sjálfstæðismaður,“
segir Haukur Logi.
Ekki ætlar ungi framsóknar-
maðurinn að standa í járnabinding-
um allt lífið; starfið sé erfitt og taki
á bak og hné. Þess vegna lítur hann
vonaraugum yfir til Háskólans í
Reykjavík og hyggst hefja þar nám
í viðskiptalögfræði næsta vetur:
„Maður verður að ná sér í einhverja
menntun,“ segir hann hvernig svo
sem Íraksdeilan fer eða kosn-
ingarnar hjá Framsóknarflokknum
í Reykjavík suður.
eir@frettabladid.is
Járnabindingamaður
gegn formanninum
Formaður félags ungra framsóknarmana í Reykjavík suður er á önd-
verðum meiði við Halldór Ásgrímsson í Íraksdeilunni. Segist þó ekki
vera að hjóla í formanninn heldur frekar að fylgja eigin sannfæringu.
Fær Birgir Andrésson myndlistarmaðurfyrir að láta sér detta í hug að nota
stækkuð frímerki frá 1930 til að skreyta
vínbarinn í Norrænu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Fréttir
HAUKUR LOGI
KARLSSON
Í VINNUNNI
Í framboði fyrir Fram-
sóknarflokkinn en
ályktar gegn yfirlýstri
stefnu formannsins í
alþjóðamálum.
■
Segist vera
erfðafræðilegur
framsóknar-
maður eins og
margir aðrir;
ættaður úr Fló-
anum og
Skagafirði.
■ Leiðrétting
Að gefnu tilefni skal tekið fram að Íslandsfugl
og Íslandsflug ætla ekki að sameinast undir
nafninu Chicken Air.
af fólki