Fréttablaðið - 16.06.2003, Síða 15
Til sölu hjá Fasteignamiðlun-
inni er nýleg og falleg íbúð að
Neðstaleiti 5 í Reykjavík. Um
er að ræða íbúð á þriðju hæð í
fjölbýlishúsi en eignin er á
tveimur hæðum.
„Ég kann voðalega vel við
mig hér,“ segir Ingibjörg Páls-
dóttir en hún og eiginmaður
hennar, Steinar Berg Ísleifsson,
eru eigendur íbúðarinnar. „Eina
ástæða þess að við flytjum héð-
an er að við eigum aðra eign í
Borgarfirði og þangað ætlum
við að flytja.“
Íbúðin er fimm herbergja,
þrjú rúmgóð svefnherbergi og
tvær stofur. „Hún er náttúru-
lega ákaflega vel staðsett,“ seg-
ir Ingibjörg. „Það er mjög gott
útsýni yfir Fossvogsdalinn og
Kópavoginn og það sést til
Keflavíkur á góðum degi.
Hérna er lítill garður sem
reyndar er sameign en það sér
fólk um hann sem og alla aðra
sameign í húsinu. Því erum við
alveg laus við áhyggjur af slík-
um málum. Svo er ótrúleg ró og
næði hér miðað við hvað þetta
er miðsvæðis. Við verðum ekki
vör við neina umferð frá ná-
grenninu og yfirleitt engan há-
vaða yfir höfuð.“
Íbúðin skiptist þannig að
gengið er inn í hol með parketi
á gólfi og fataskáp. Úr holi er
gengið í rúmgóða og bjarta
parketlagða stofu með útgangi
út á stórar suður-svalir. Eldhús-
ið er með parketi á gólfi, snyrti-
legri innréttingu og öllum hel-
stu tækjum. Gott borðpláss er
þar fyrir framan. Parketlögð
sjónvarpsstofa er inn af stofu
og herbergisgangur er parket-
lagður. Herbergi eru rúmgóð
og baðherbergi er flísalagt með
baðkari.
Eigninni er vel við haldið,
innan sem utan, og til stendur
að mála þak hússins fljótlega.
Allar frekari upplýsingar
veitir Brynjar Baldursson hjá
Fasteignamiðluninni, Síðu-
múla 11. ■
Nýleg íbúð miðsvæðis í bænum/
Kyrrð og ró
í Neðstaleiti
w
w
w
.f
rj
a
ls
i.
is
Allt að 80%veðsetningarhlutfallaf verðmæti fasteignar
Stokkaðu upp fjármálin
– með hagstæðari lánum
Þú getur auðveldlega samið um hagstætt lán hjá Frjálsa fjárfest-
ingarbankanum, sem er kjörið til að skuldbreyta óhagstæðum
lánum á borð við skammtímabankalán. Þannig lækkarðu
greiðslubyrðina hjá þér og eykur fjárhagslegt svigrúm. Lánið
er veitt til allt að 30 ára gegn veði í fasteign.
Fasteigna- og framkvæmdalán Frjálsa fjárfestingarbankans eru
einnig hentug leið fyrir þá sem standa í húsbyggingum eða
fasteignakaupum.
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar. Þú getur litið inn í
Ármúla 13a, hringt í síma 540 5000 eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is
Dæmi um mánaðarlega greiðslubyrði af 1.000.000 kr.*
Vextir % 6,50% 7,50% 8,50% 9,50% 10,00%
5 ár 19.600 20.000 20.500 21.000 21.200
15 ár 8.700 9.300 9.800 10.400 10.700
30 ár 6.300 7.000 7.700 8.400 8.800
*Lán með jafngreiðsluaðferð án verðbóta.
skrautlegt kál ● verð á málningu
Guðjón Petersen:
▲
SÍÐUR 2-3
fjórða kynslóðin
í sama húsi
Friðrik Weisshappel:
▲
SÍÐA 2
Vínrekki
hækkar borð
Góð ráð
Runólfur Gunnlaugsson:
▲
SÍÐA 15
Um hugsanleg
90% lán
Gott vítamín
fast/eignir Mánudagur 16. júní 2003Fasteignaauglýsingar í 93.000 eintökum
Valhöll auglýsir í dag fallegt
200 fm einbýli á tveimur hæðum
við Bergsmára í Kópavogi. 6
Ás fasteignasala er með fallega
íbúð á annari hæð til sölu við
Hjallabraut. 8
Fasteignamiðlun er með til sölu
endaraðhús á tveimur hæðum við
Klettás í Garðabæ. 10
Fasteignasölur
Húsbréf
Flokkur Ávöxtunarkrafa Gengi
1. feb 4,45% 1,2573
1. jan 4,68% 1,2372
98/2 4,51% 1,6264
98/1 4,68% 1,6048
96/2 4,74% 1,8219
Gengi 6. júní 2003
Efni
101 Reykjavík 17
Austurbær 19
Ás 8
Bakki 15
Eign.is 15
Eignakaup 15
Eignanaust 19
Fasteignamiðlun 10
Grund 16
ÍAV 4
REMAX 12
Valhöll 6
NEÐSTALEITI 5
Fjölbýlishús byggt 1983.
ÍBÚÐ Á TVEIMUR HÆÐUM
Stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni.
2
2
3
15
16
19
Fjórar kynslóðir
í sama húsi
Frikki Weisshappel
gefur góð ráð
Verðkönnun
á málningu
Staðan á
fasteignamarkaðinum
Greiðsluerfiðleikar
Íbúð í Rimahverfi
Húsið o.fl.