Fréttablaðið - 16.06.2003, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
ÞRÁINS BERTELSSONAR
Rrrrrrrrrng!!!- Hvíta húsið, neyðarlínan,
góðan dag, get ég aðstoðað?
- Hæ, Goggi, þetta er Dabbi.
- Hmm? Þetta er sjálfvirkur sím-
svari hjá Georg og Láru. Ég er
því miður ekki heima í augnablik-
inu. Vinsamlega skiljið eftir hljóð-
merki þegar skilaboð heyr-
ist...Bííííb...
- Gerðu það, ekki láta svona, þetta
er ég, Dabbi staðfasti. Vinur þinn.
Vinur!
- Þetta er sjálfvirkur símsvari hjá
vinalínu Hvíta hússins. Veldu 1
fyrir áfallahjálp, 2 fyrir fjárhags-
aðstoð, 3 fyrir hernaðaraðstoð, 4
fyrir þyrluaðstoð, 5 fyrir heimilis-
aðstoð, 6 fyrir Rauðu línuna...
- Hei, ég veit þetta ert þú. Ég
heyri að þú ert þarna.
- Ókei, bara djók. Er ekki allt gott
að frétta? Alltaf að veiða og
svona, ha?
- Ég verð að ræða við þig alvar-
legt mál út af þessu bréfi sem þú
sendir. Um að kalla herinn heim.
Það er ekki hægt. Þá fer allt í vit-
leysu hérna. Það er ekki hægt að
taka vinnuna svona frá fólki.
- Hann er nú ekki atvinnulaus,
þarna skransalinn. Er hann ekki
borgarstjóri eða orkustjóri eða
eitthvað?
- Ég er ekki að tala um hann. Ég
er að tala um fólkið á Suðurnesj-
um. Hvað á það að gera?
- Nú, veiða auðvitað.
- Það getur ekki veitt neinn fisk,
það á engan kvóta.
- Heyrðu, Dabbi, hvenær var ráð-
ist á ykkur síðast?
- Það voru Bretar árið 1940.
- Og rændu kvótanum? Láttu mig
græja það. Ég skal tala við Tony.
En hafa arabar ekkert látið sjá sig
hjá ykkur?
- Jú, þegar Alsírsmenn réðust á
Vestmannaeyjar og þóttust vera
Tyrkir.
- Þeir eru klókir að dulbúa sig.
Segðu mér, var hávaxinn skeggj-
aður maður í hópnum?
- Þetta var árið 1627.
- Assgoti er hann þá orðinn gam-
all. Og enginn ráðist á ykkur síð-
an?
- Nei.
- Til hvers þurfið þið þá varnar-
lið?
- Bara.
Traustur
vinur