Fréttablaðið - 16.06.2003, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 16.06.2003, Blaðsíða 30
fast/eignir 16. júní 2003 MÁNUDAGUR16 NÝTT Á SKRÁ HRINGBRAUT - 3JA HERB. REYKJAVÍK Í einkasölu einstaklega góð 77 fm. hæð í fallegu fjórbýlishúsi á einum eftirsóttasta stað við Hringbrautina. Suðaustursvalir og garður í góðri rækt. Parket er á flestöllum gólfum. Eldhús er með snyrtilegri upprunalegri innréttingu. dúkur á gólfi og ný eldavél. Tvær stofur með rennihurð, hægt að standsetja aðra sem herbergi. Baðherbergi er nýuppgert, er með sturtu, hvítum hreinlætistækjum, glugga, og ljósar flísar í hólf og gólf. Svefnherbergi er með stórum innbyggðum fataskáp og gengt út á svalir. Sameiginlegur inngagnur. Snyrtilegur stigagangur og sameign. Þvottahús og geymsla í kjallara. þak er nýmálað, gler var endurnýjað árið 1990. Rafmagn endurnýjað og húsið í góðu standi. Áhv. ca. 6millj. V. 12.9millj. STÓRAGERÐI - 3JA HERB. Mjög góð 94 fm íbúð á 3 hæð í góðu fjölbýlishúsi. Suðursvalir og einstaklega gott útsýni. Í kjallara er 8.4 fm. herb. með glugga, aðgangur að snyrtingu. Parket er á mestallri íbúðinni. Tengi er fyrir þvot- tavél á baði. Herbergi eru rúmgóð, og björt stofa. Eldhús er með eldri snyrtilegri innréttingu og borðkrók. Sameign er mjög snyrtileg og vel um gengin. Húsið var málað að utan árið 2000 og þak yfirfarið fyrir ári síðan. Breiðband. Stór garður og góð bílastæði. Stutt er í alla þjónustu, gögnufæri við Kringluna. (myndir á netinu) V. Kr.11.5millj. BRAUTARHOLT - 2JA HERB. Rúmgóð 49 fm stúdíoíbúð á 3ju og efstu hæð. Góð lofthæð og þrír kvistir. Íbúðin er að hluta til undir súð er er því stærri en FMR segir til um. Fallegt parket á gólfum og eldhúsinnrétting á einum vegg. Baðherbergi með sturtu og tengi fyrir þvottavél. Íbúðin er ósamþykkt. Áhvílandi er hagstætt lán B.Í. kr 2.200.000,-. V. 6.5millj LEYRUBAKKI - REYKJAVÍK GÓÐ 84 FM 4 HERB. ÍBÚÐ Í KJALLARA (ÓSAMÞ.) Í GÓÐU FJÖLBÝLISHÚSI Á GÓÐUM STAÐ Í NEÐRA BREIÐHOLTI. Tveir inngangar eru í íbúðina, annar frá sameign og hinn frá hjólageymslu. Komið er inn í anddyri, þaðan er gengt í vinnuherbergi, og stóra og rúmgóða geymslu. Úr anddyri er komið í hol sem er opið svæði í stóra rúmgóða stofu og eldhús og vinnukrók. Dúkur er á gólfum. Svefnherbergishol, þaðan er gengið í tvö góð svefnherbergi með gluggum, annað með skáp. Nýlega uppgert baðherbergi með sturtuklefa, hví- tum hreinlætistækjum og smekklegum flísum í hólf og gólf. Í sameign er snyrtileg, þvottahús á hæð, sameiginlegt með einni íbúð. og hjólageym- sla. Stutt er í alla þjónustu. V. 7.8millj. FJÁRFESTING - TVÆR ÍBÚÐIR TÚNGATA - REYKJAVÍK GÓÐAR ÚTLEIGU ÍBÚÐIR Í MIÐBÆNUM MEÐ LEIGUTEKJUR CA. KR. 140.000,- Á MÁNUÐI. Um er að ræða tvær tveggja herbergja íbúðir á góðum stað í miðbænum. Tekjur gætu verið t.d. útleiga til skólafólks sept.-jún. 9mán.x 145.000,- = 1.305.000,- + útleiga til ferðamanna 3 mán tekjur á íbúð c.a. 11.000,- per dag x 2 = 22.000,- eða x 90 dagar = 1.980.000,- Auk þess er mögul. að leigja bílastæði sér á c.a. 7.000,- pr. mán. hvert eða 14.000,- x12 mán = 168.000,- samt. allt 3.453.000,- í tekjur á ári. Íbúðirnar eru tölu- vert mikið endurnýjaðar. Þær eru báðar álíka stórar , þannig að hver íbúð er u.þ.b. 80 m2 að sögn eigenda. Báðar íbúðirnar eru með sér inngangi og sér bílastæði. EIGNARLÓÐ. Íbúð nr. 1: Sérinngangur Íbúð nr. 2: Sérinngangur, ATH. ÍBÚÐIRNAR SELJAST SEM EIN EIGN OG ÝMIS SKIPTI KOMA TIL GREINA. EINBÝLISHÚS KRISTNIBRAUT - SÉRHÆÐ - GRAFARHOLTI Í BYGGINGU GLÆSILEG 214,4 FM 5 HERB. EFRI SÉRHÆÐ, Í TVÍBÝLISHÚSI ÁSAMT 26 FM BÍLSKÚR EÐA SAMTALS 240,4 FM. Um er að ræða efri hæð. Einstaklega mikið útsýni er yfir borgina Esju og Snæfellsjökul. Íbúðin skiptist í 3 svefnher- bergi, borðsal, stofu með miklu útsýni og útgengi út á suðvestursvalir , eldhús, þvottahús/geymsla, 26 fm tvískipt með vegg. Húsið er rúmlega fokhelt og fullbúið að utan með viðhaldsfríum kvarssteini, tengi eru greidd. Gólfplatan á milli hæða er tvöföld og er hljóðeinangrandi efni á milli laga. Lofthæð er mjög mikil þar sem loftið er ekki tekið niður. Verð: Fullbúið að utan, fokhelt að innan. Hægt er að fá eignina afhenta á hvaða byggingarstigi sem er. Teikningar eru gerðar af tækniteiknistofunni Tröð. Áhvíl. 12millj. þ.a. 6millj Íblsj. V. 18.8millj. KRISTNIBRAUT - NEÐRI SÆERHÆÐ - GRAFARHOLTI EINNIG ER NÚ TIL SÖLU 190 FM NEÐRI SÉRHÆÐIN ÁSAMT BÍLSKÚR. EINSTAKUR STAÐUR, EINSTAKT ÚTSÝNI YFIR BORGINA. Möguleiki er á að kaupa eignina á mismunandi byggyngarstigi. Nánari upplýsingar eru á Fasteignasölunni Grund. GAUKSTAÐIR - GARÐINUM - GERÐAHREPPI Reisulegt hús á ca 2ja hektara landareign á ein- staklega góðum stað í Garðinum. Í húsinu eru tvær sjálfstæðar íbúðir, eignaskiptasamningur. Stór bílskúrar með miklu geymsluplássi. Steinsteypt útihús sem er tilvalið hesthús eða fyrir léttan iðnað, gott beytiland. Húsið er við sjávarlóð og er umhverfið einstaklega fallegt og hrífandi. Stutt er á golfvöllinn og til þess sem ekki þekkir þá er þar ýmis þjónusta, sundlaug, íþróttahús og fl.. (Myndir á netinu). Ásett verð 19. 5millj. LÓMASALIR - FJÖLBÝLI Erum með glæsilegar-vandaðar 103 fm 3ja her- bergja íbúðir með sérinngangi af svölum í nýju fimm hæða lyftuhúsi. Íbúðirnar eru fullbúin án gólfefna en með flísum á baðherbergi og í þvot- tahúsi. Innréttingar eru spónlagðar mahoní. Í eld- húsi er helluborð með blástursofni undir og vifta. Með íbúðini fylgir stæði í upphitaðri bílageymslu. Teikningar og nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu. V. frá 14.9millj. ATVINNUHÚSNÆÐI SMIÐSHÖFÐI - FJÁRFESTING Gott 204 fm atvinnuhúsnæði í útleigu á 3ju hæð. Húsið er nýmálað og búið er að setja nýjar hurðar innanhúss. Lýsing: 9 herbergi eru í útleigu. Sameiginleg eldunaraðstaða er á staðnum, með ísskáp, eldavél og sjónvarpi, 3 salerni (tvö með sturtuaðstöðu). Aðstaða er fyrir þvottavél og þurkara. Húsaleiga er ca. 265þús. á mánuði. Eigninni fylgir 24 fm steypt gólfplata undir býl- skúr. Áhv. ca. 11millj. V. 19.9millj. FREYJUGATA - FJÁRFESTING Gott verslunarhúsnæði, verslun, söluturn og myn- dbandaleiga. Húsnæðið skiptist í 86,5 fm jarðhæð og 41,8 fm kjallara sem er vörugeymsla og snyrtingu. Góðar leigutekjur, góður langtíma- lei- gusamningur og góð ávöxtun. V. 12.8millj. BRAUTARHOLT Einstaklega góð hæð á góðum stað í Brautarholti. Húsnæðið er 491 fm. á 2 hæð. Í húsinu eru 2 hæðir og ris. Í risi eru leigð út hótelherbergi. Eign sem vert er að skoða. Nánari upplýsingar á fasts. ÚTIBÚ FRÁ EIGNALANDI EHF. www.fasteignasalan.is – Netfang: grund@fasteignasalan.is Oddný I. Björgvinsdóttir Guðmundur Þórðarson Sölu- og framkvæmdastjóri hdl. og lögg. fasteignasali Magnús G. Gunnlaugsson sölum. Birgir S. Birgisson, sölufulltrúi. MIKIL SALA - VANTAR EIGNIR Á SKRÁ - ERUM MEÐ KAUPENDUR AF 3 JA og 4 RA HERBERGJA ÍBÚÐUM STRAX Brautarholti 16 Sími 533 1300 Fax 533 1305 Einstaklega fallegt og glæsileg eign. Einbýlishús með sundlaug og saunu og er staðsett á frábærum útsýnisstað. Húsið er ca 500 fm og er á tveimur hæðum, 50 fm tvöfal- dur bílskúr með fjarst. hurðaropnurum, gott geymslurými í bílskúr og gosbrunnur við innkeyrslu. HÆÐ: Forstofuherbergi, stofur með arin, stórt eldhús snyrting og frá holi er stigi niður á neðri hæð. NEÐRI HÆÐ: Gosbrunnur er við stiga, 5 herbergi, baðher- bergi með nuddpotti, sauna og stórt herbergi sem vinnuaðstaða. Möguleiki er á að stúka af íbúð á neðri hæð með sér inngangi. Stór og glæsileg verönd út frá sundlaug sem er yfir- byggð. Fallegar flísar eru á flestum gólfum. Eign sem vert er að skoða. (Myndir á netinu). HRÍSHOLT - EINBYLISHÚS - GARÐABÆR Sérlega góð 92 fm og 4ra herbergja endaíbúð á annari hæð í parhúsi, 4 íbúðir í húsinu. Glæsilegt útsýni yfir flóann og höfuðborgarsvæðið. Íbúðin skiptist í anddyrir, gang, tvö svefnherbergi, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi og þvottherbergi. Sér geymsla á 1.hæð. Innréttingar með grænum sprautulökkuðum hurðum og hliðar úr beyki. Skápar í 2 herbergjum, anddyri og í holi. Á baðherbergi eru hvít Mdf hreinlætistæki og hvít blöndunartæki frá Damixa, flísar í hólf og gólf. Eldhúsinnrétting er með gleri í efri skápum. Andyri flísalagt. Mikil lofthæð. Þvottaherbergið er innan íbúðar. Tengi fyrir síma og sjónvarp í öllum herbergjum. Áhvíl. ca. 8.4millj. Íblsj. JÖRFAGRUND - KJALARNESI Reisulegt hús á ca 2ja hektara landareign á einstaklega góðum stað í Garðinum. Í húsinu eru tvær sjálfstæðar íbúðir, eignaskip- tasamningur. Stór bílskúrar með miklu geym- sluplássi. Steinsteypt útihús sem er tilvalið hesthús eða fyrir léttan iðnað, gott beytiland. Húsið er við sjávarlóð og er umhverfið ein- staklega fallegt og hrífandi. Stutt er á golfvöllinn og til þess sem ekki þekkir þá er þar ýmis þjónusta, sundlaug, íþróttahús og fl.. (Myndir á netinu). Ásett verð 19. 5millj. GAUKSTAÐIR - GARÐINUM - GERÐAHREPPI Blásalir12 hæða Fjölbýli. Svalir og stórkostlegt útsýni úr öllum íbúðum. Hver íbúð skilast full- búin án gólfefna, nema dúkur á baðgólfi og þvottaherbergi. Allar innréttingar spónlagðar með Maghony spón, einnig allar innihurðir. Eldhúsinnrétting nær upp í loft, flísalagt á milli borðplötu og skápa. Keramikhelluborð, vifta og blástursofn undir hellum. Baðherbergi með sturtubotni, innréttingu og hvítum tækjum, dúkur á gólfi. Í þvottahúsi er borðplata fest á vegg, dúkur á gófi. Gott skápaplás er í öllum herbergjum, einnig tengt fyrir sjónvarp og síma í ölum herbergjum. Baðveggir eru flísalagðir í hæð 2.10 m. Sérstök gæðahljóðeinangrun er í öllu húsinu. Inn í hverri íbúð er aflokað andyri. Þessi nýja útfærsla dregur verulega úr högghljóðum frá gólfum og eykur hljóðeinangrun íbúðanna mjög. Hellulögn við inngang er með snjóbræðslu, lóðin verður að öðru leyti hel- lulögð og tyrfð. Í bílskýli eru 54 stæði, þar af 30 stæði fyrir Blásali 22., upphituð með sprin- kler kerfi, og þvottaaðstöðu við innkeyrslu. Innkeyrsluhurð með sjálfvirkum hurðaopnara. Verð frá 13.9millj. BLÁSALIR - KÓPAVOGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.