Fréttablaðið - 19.06.2003, Síða 1

Fréttablaðið - 19.06.2003, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Tónlist 22 Leikhús 22 Myndlist 22 Bíó 26 Íþróttir 18 Sjónvarp 28 KVÖLDIÐ Í KVÖLD FIMMTUDAGUR 19. júní 2003 – 136. tölublað – 3. árgangur AFMÆLI Degi á undan konunni bls. 36 FÓTBOLTI Fær 600 milljónir bls. 16 STA Ð R EY N D UM MEST LESNA DAGBLAÐIÐ Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í mars/apríl 2003 22,1% 52,3% 61,7% FR ÉT TA B LA Ð IÐ M O R G U N B LA Ð IÐ D V Kvennadagurinn HÁTÍÐ Íslendingar fagna því í dag að hátt í 90 ár eru síðan konur fengu kosningarétt á Íslandi. Allir sem styðja jafnrétti eru hvattir til að klæðast bleiku eða bera eitthvað bleikt þennan dag. Klukkan 16.30 verður gengið um kvennaslóðir og leggur gangan af stað frá Ráðhús- inu. Klukkan 17.15 verður dagskrá á Hallveigarstöðum og klukkan 20.30 verður messa við Þvottalaug- arnar í Laugardal. Útgáfutónleikar Maus TÓNLIST Hljómsveitin Maus heldur útgáfutónleika fyrir plötuna Musick í Iðnó klukkan 22. Sveitin mun leika plötuna í heild sinni, auk þess að leika eldri slagara að því loknu. Áður en sveitin stígur á svið verður óvænt upphitunar- atriði. FRIÐARGÆSLULIÐAR MÆTTIR TIL KONGÓ Frönsku hermennirnir í baksýn eru komnir til Bunia-héraðs í Kongó til að binda enda á óöldina þar. Vígamenn tveggja ættbálka hafa staðið fyrir fjöldamorðum í héraðinu. Talið er að milli tvær og fimm milljónir manna hafi týnt lífi í borgarastríðinu í Kongó. M YN D /A P REYKJAVÍK Norðvestanátt 5-10 m/s og þurrt að mestu. Hiti 9 til 14 stig. VEÐRIÐ Í DAG + + VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 8-13 Skýjað 12 Akureyri 5-10 Ringing 10 Egilsstaðir 5-10 Ringing 12 Vestmannaeyjar 3-8 Skýjað 13 ➜ ➜ ➜ ➜ + + hefst í dag Kringlu kast RÁN Tveir ungir menn, báðir vopn- aðir hnífum, rændu söluturninn Biðskýlið við Kópavogsbraut í gær- kvöldi. 19 ára afgreiðslustúlka, Helga Dögg Yngvadóttir, var ein á staðnum þegar ránið átti sér stað. Helga Dögg segist hafa verið baka til í söluturninum þegar mennirnir komu inn. Hún fór fram þegar hún heyrði umgang og sá þar tvo menn, líklega rétt innan við tvítugt, vopn- aða hnífum. Hún var ekki fyrr kom- in fram en annar maðurinn þrýsti hnífnum að kviði hennar og krafði hana um féð sem var í afgreiðslu- kassanum. Helga Dögg hrökklaðist undan, fór að kassanum og tók úr honum verðminni seðla sem hún afhenti ræningjunum. Í einu hólfinu lá ávís- un ofan á 5.000 króna seðlum sem henni tókst að fela fyrir ræningjun- um. „Efst var ávísun frá pabba og ég vildi ekki láta þá fá hana.“ Þjófarnir náðu um 35.000 krónum. Rétt um það leyti sem ræningj- arnir fóru út komu maður og kona að söluturninum. Helga Dögg sagði þeim hvað hefði komið fyrir og rauk maðurinn þá á eftir þjófunum. Þeir hlupu í átt að höfninni þar sem maðurinn missti sjónar á þeim. Helga segist hafa ýtt þrisvar á neyðarhnapp frá Securitas án þess að það bæri árangur. Eftir að ræn- ingjarnir hurfu á braut gerði hún lögreglu viðvart. Jökull Kristjáns- son, eigandi söluturnsins, var ný- farinn af staðnum þegar ránið átti sér stað. Hann flýtti sér á vettvang þegar hann frétti af ráninu og var mjög brugðið. „Ég skil ekki hvernig menn geta lagst svona lágt,“ sagði hann. Þetta er í sjötta skipti á skömm- um tíma sem vopnað rán er framið. Frá 1. apríl hafa verið framin þrjú vopnuð bankarán. Hið fyrsta var framið í Sparisjóðnum í Hafnarfirði 1. apríl. Sami maður var á ferð í Grindavík 5. júní og framdi vopnað rán í Landsbankanum. Í millitíðinni, nánar tiltekið 16. maí, var framið vopnað rán í Sparisjóði Kópavogs. Stutt er síðan tvær stúlkur um tví- tugt rændu Subway í Grafarvogi og þvinguðu starfsfólk inn í frysti. Fyrir þremur mánuðum var svo framið vopnað rán í Lyfju í Lág- múla. Mennirnir höfðu ekki náðst þeg- ar blaðið fór í prentun. hrs@frettabladid.is brynjolfur@frettabladid.is ingólfshöfði ● netkaffi ▲ SÍÐa 24 Ekki hægt að láta sér leiðast ferðir o.fl. Þorfinnur Ómarsson: HELGA DÖGG YNGVADÓTTIR Var mjög brugðið eftir að hafa verið ógnað af tveimur vopnuðum mönnum. Forsætisráðherra Finnlands: Hrökklaðist frá völdum HELSINKI, AP Anneli Jäätteenmäki sagði af sér sem forsætisráðherra Finnlands í kjölfar ásakana um að hún hefði logið að þingmönnum og almenningi um leynilegar upplýs- ingar sem hún notaði sér til fram- dráttar í kosningabaráttunni fyrir finnsku kosningarnar síðasta vor. Forsætisráðherrann fyrrver- andi neitaði því að hafa falast eftir leynilegum upplýsingum sem lekið var úr utanríkisráðuneytinu og hún notaði gegn forvera sínum í kosningabaráttunni. Aðstoðarmað- ur Finnlandsforseta sagði Jäätteenmäki hafa óskað eftir upplýsingunum frá sér. ■ Vopnaðir menn rændu söluturn Tveir menn vopnaðir hnífum rændu söluturn í Kópavogi og höfðu um það bil 35.000 krónur upp úr krafsinu. 19 ára afgreiðslustúlka segir neyðarrofa ekki hafa virkað. HVALVEIÐAR Naumur meirihluti að- ildarríkja Alþjóðahvalveiðiráðsins samþykkti í gærkvöldi ályktun þar sem þau ríki sem stunda hvalveið- ar í vísindaskyni eru hvött til að hætta því. Þau sem eru að íhuga að hefja hvalveiðar í vísindaskyni eru hvött til að láta ekki verða af því. Tillagan var samþykkt með aðeins þriggja atkvæða mun, 24 atkvæð- um gegn 21. „Ályktunin náði fram að ganga en með tæpasta mun. Þegar fjall- að var um Berlínarfrumkvæðið um daginn var það samþykkt með fimm atkvæða mun,“ segir Stef- án Ásmundsson, formaður sendi- nefndar Íslands á ársfundi Al- þjóðahvalveiðiráðsins. „Ályktun- inni er í raun aðeins beint gegn Íslendingum, sem hafa uppi hugmyndir um að hefja hvalveið- ar í vísindaskyni, og Japönum, sem stunda hvalveiðar í vísinda- skyni.“ Fylgismenn tillögunnar telja margir að hvalveiðar í vísinda- skyni séu í raun einungis dular- gervi fyrir hvalveiðar í atvinnu- skyni. Íslendingar, Japanir og stuðningsþjóðir þeirra telja þær geta fært upplýsingar um áhrif hvala á vistkerfi sjávar. ■ Litlu munaði í atkvæðagreiðslu Alþjóðahvalveiðiráðsins: Mælt gegn vísindaveiðum FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T Fjórða tilraun í Eyjum FÓTBOLTI Allt er þá þrennt er og fullreynt í fjórða sagði einhvers staðar. Hvort það eigi við um leik ÍBV og Fram sem hefur verið frestað þrívegis skal ósagt látið. Nú er hann settur á klukkan 19.15 í kvöld. Tveir leikir eru í Lands- bankadeild kvenna klukkan 20. Í Garðabænum mætir Stjarnan liði KR og Breiðablik mætir Val á Hlíð- arenda.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.