Fréttablaðið - 19.06.2003, Page 6

Fréttablaðið - 19.06.2003, Page 6
SAKAMÁL Ríkissaksóknari segir beiðni Þórhalls Ölvers Gunn- laugssonar um endurupptöku morðmáls af Leifsgötunni vera á svipuðum nótum og fyrri beiðnir sem Hæstirétt- ur hafi áður hafnað. Beiðnin hefur verið end- ursend Hæsta- rétti. Þórhallur var sakfelldur á báðum dóms- stigum fyrir að hafa myrt Agn- ar W. Agnarsson á heimili hans sumarið 1999. Þórhallur setti fram kröfu sína um endurupptöku málsins fyrir rúmum mánuði. Hann byggir kröfuna aðallega á þeirri fullyrð- ingu að ríkisaksóknari hafi vísvit- andi leynt gögnum við meðferð Leifsgötumálsins. Hefðu gögnin komið fram hefðu þau að engu gert kenningar saksóknarans um tímasetningar morðnóttina. Þórhallur segir að í bréfi Hæstaréttar til ríkissaksóknara hafi sérstaklega verið vakin at- hygli á þeirri kröfu að Bogi Nils- son ríkissaksóknari viki við með- ferð málsins. Bragi Steinarsson vararíkis- saksóknari segir Hæstarétt þegar hafa hafnað beiðnum Þórhalls um endurupptöku í tvígang; á árunum 2000 og 2001. Þó beiðnin nú sé „í nýjum búningi“ sé hún á svipuð- um nótum og þær fyrri: „Við vísum til fyrri afgreiðslna á þessu máli. Við höfum engar efnislegar athugasemdir. Endur- upptökubeiðnir meðhöndlast og afgreiðast af Hæstarétti einum. Aðrir hafa þar ekki um að segja,“ segir Bragi. Þegar rætt var við Þórhall í gær hafði hann ekki heyrt af við- brögðum embættis ríkissaksókn- ara. Hann sagði það undarlegt ef ríkissaksóknari sæi ekki ástæðu til að svara ásökunum um að hafa framið meinsæri; einn alvarleg- asta glæp sem um geti í réttarríki: „Máltækið segir að þögn sé sama og samþykki og þeir vita náttúrlega upp á sig skömmina,“ segir Þórhallur. Hjá Hæstarétti fengust þær upplýsingar í gær að mál Þórhalls væri enn ekki komið til skoðunar. Fremur ólíklegt væri því að ákvörðun lægi fyrir áður en Hæstiréttur fer í dag í réttarhlé sem stendur fram í september. gar@frettabladid.is 6 19. júní 2003 FIMMTUDAGUR „Máltækið segir að þögn sé sama og samþykki og þeir vita nátt- úrlega upp á sig skömm- ina. GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 73.39 0.34% Sterlingspund 123.19 0.08% Dönsk króna 11.6 -0.93% Evra 86.12 -0.91% Gengisvístala krónu 120,60 -0,40% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 242 Velta 1.669 milljónir ICEX-15 1.458 -0,080% Mestu viðskipti Eimskipafélag Íslands hf. 284.184.553 Baugur Group hf. 87.946.191 Íslandsbanki hf. 35.133.152 Pharmaco hf. 31.996.635 Landsbanki Íslands hf. 15.601.619 Mesta hækkun Bakkavör Group hf. 0,75% Mesta lækkun Skýrr hf. -3,08% SH hf. -0,98% Tryggingamiðstöðin hf. -0,90% Eimskipafélag Íslands hf. -0,80% Flugleiðir hf. -0,66% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ: 9310,6 -0,1% Nasdaq: 1683,2 0,9% FTSE: 4207,0 0,4% Nikkei: 9092,9 +0.7 S&P: 1012,7 0,1% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 Veistusvarið? 1Hvað heitir leikfangaverslanakeðjansem Baugur hefur gert tilboð í? 2Hvaða fótboltafélag hefur keypt DavidBeckham af Manchester United? 3Hvaða góðkunni íslenski tónlistar-maður stendur á bak við harmónikku- plötuna „Ort í sandinn“ sem gefin var út nú á dögunum? Svörin eru á bls. 35 Fundur í flokksstjórn Samfylkingarinnar F I M M T U D A G U R I N N 1 9 . J Ú N Í K L . 1 6 . 0 0 Í dag, fimmtudaginn 19. júní, verður haldinn fundur í flokksstjórn Samfylkingarinnar. Hann hefst kl.16 á Grand Hótel Reykjavík og er dagskráin sem hér segir: 1. Setning fundar Stefán Jón Hafstein, formaður framkvæmdastjórnar 2. Kveðja frá Bríeti, félagi ungra femínista, í tilefni af 19. júní. 3. Ávörp Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Almennar umræður. 4. Tillaga forystu flokksins um stofnun nefndar um framtíðarstefnumörkun jafnaðarmanna. 5. Önnur mál. www.samfylking.is Fundurinn er opinn öllu Samfylkingarfólki JERÚSALEM, AP Sjö ára gömul ísra- elsk stúlka lét lífið og yngri systir hennar særðist alvarlega þegar palestínskir vígamenn skutu á bif- reið fjölskyldu þeirra á yfirráða- svæði Ísraela á Vesturbakkanum. Tvö palestínsk öfgasamtök hafa lýst ábyrgð á tilræðinu á hendur sér. Dauði stúlkubarnsins hefur vakið hörð viðbrögð Ísraela. „Ef palestínsk stjórnvöld halda áfram að sitja aðgerðarlaus þá munum við grípa til róttækra aðgerða til þess að stöðva blóðbaðið,“ sagði talsmaður Ísraelsstjórnar. Mahmoud Abbas, forsætisráð- herra Palestínumanna, hefur ár- angurslaust reynt að telja leiðtoga palestínskra öfgasamtaka á að leggja niður vopn á sama tíma og ísraelski herinn heldur áfram að jafna við jörðu heimili víga- manna. Hamas-samtökunum hef- ur verið boðin aðild að palestínsku ríkisstjórninni en ekki hefur náðst samkomulag þar um. Colin Powell, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, er á leið til Ísraels til að ræða við ísraelska og palestínska ráðamenn og reyna að bjarga vegvísinum til friðar. Powell hefur tekið undir kröfu Ísraela um að palestínsk stjórn- völd grípi tafarlaust til aðgerða til að stöðva árásir vígamanna. ■ LÍBERÍSKUR STJÓRNARHERMAÐUR Ljóst þykir að nokkur tími muni líða áður en raunverulegur friður kemst á í Líberíu. Bráðabirgðastjórn í Líberíu: Vopnahlé gengið í gildi LÍBERÍA, AP Vopnahlé gekk í gildi í Líberíu í gær eftir tveggja vikna samningaviðræður stjórnvalda og uppreisnarmanna í Gana. Upp- reisnarmenn kvörtuðu þó undan tveimur brotum stjórnarher- manna gegn vopnahléssamkomu- laginu. Bandarískir ráðamenn og yfirvöld í nágrannaríkjum hafa hvatt Charles Taylor forseta og andstæðinga hans til að standa við gerða samninga og leggja niður vopn. Í friðarsamkomulaginu er kveðið á um að mynda skuli bráðabirgðastjórn án þátttöku Taylor. Fyrirhugað er að senda 2.000 manna gæslulið til Líberíu til að standa vörð um friðinn. Áður en samningaviðræður hófust tilkynnti Taylor að hann ætlaði að láta af embætti forseta til að binda enda á þau blóðugu átök sem geisað hafa í landinu árum saman. ■ ÞJÓFNAÐUR Bílstjóri hjá Íslands- pósti hefur gengist við því að hafa stolið sendingu sem hann átti að koma til skila. Um er að ræða ábyrgðarsendingu sem fór í gegn- um póstútibúið í Keflavík. Málið var tilkynnt til lögreglu á fimmtu- daginn í síðustu viku og beindist grunur að starfsmanninum. Hann hefur gengist við brotinu og sýnt lögreglunni samstarfsvilja. Þýfið er að mestu komið fram. Á laugardaginn var maðurinn færður fyrir Héraðsdóm Reykja- ness. Þar var hann úrskurðaður í gæsluvarðhald til fjögur á mánu- daginn. Hann var þá aftur færður fyrir héraðsdóm þar sem hann var úrskurðaður í farbann til fimm. Í yfirlýsingu frá Íslandspósti segir að sérstakar vinnureglur gildi um ábyrgðarsendingar og að nákvæm skráning flutningsferlis- ins hafi auðveldað rannsókn máls- ins. Í kjölfar þessa hefur Íslands- póstur ákveðið að yfirfara verk- ferla sína og herða vinnureglur enn frekar. Samkvæmt póstlögum er óheimilt að tjá sig um einstakar sendingar. Því fæst ekki uppgefið hversu miklum verðmætum var stolið eða frá hverjum. ■ Sagði af sér: Biskup banar vegfaranda PHOENIX, AP Kaþólskur biskup í Phoenix í Bandaríkjunum hefur sagt af sér embætti eftir að upp komst að hann keyrði af vettvangi eftir að hafa keyrt á gangandi vegfaranda. Vegfarandinn lést af sárum sínum. Þegar lögregla handtók biskupinn bar hann því við að hann hefði talið sig hafa keyrt á kött eða hund, eða þá að einhver hefði kastað stein í bíl sinn. Biskupinn hafði áður viður- kennt að hafa hylmt yfir með prestum sem höfðu verið sakaðir um kynferðisbrot. ■ FÓRNARLAMB SKOTÁRÁSAR Móðir fylgir særðri dóttur sinni á Beilinson-sjúkrahúsið í Ísrael. Skotið var á bifreið fjöl- skyldunnar skammt frá Kibbutz Eyal á Vesturbakkanum. Vegvísirinn til friðar í uppnámi: Ísraelsk stúlka skotin til bana Krafa um upptöku sögð endurtekning Hæstiréttur framsendi til ríkissaksóknara beiðni Þórhalls Gunnlaugs- sonar um endurupptöku morðmáls síns. Ríkissaksóknari bendir á að sams konar beiðnum hafi þegar verið hafnað tvisvar. LITLA-HRAUN Agnar W. Agnarsson var myrtur á heimili sínu á Leifsgötu sumarið 1999. Þórhallur Ölver Gunnlaugsson var dæmdur fyrir morðið og situr á Litla-Hrauni. Hann sækir í þriðja skipti um endurupptöku málsins. Hann segist hafa ný gögn en ríkissaksóknari segir beiðnina á svipuðum nótum og fyrri beiðnir sem hafi verið hafnað. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T Nákvæmt flutningsferli auðveldaði rannsókn: Starfsmaður Póstsins stal ábyrgðarsendingu ÍSLANDSPÓSTUR Ekki fæst uppgefið hversu miklum verð- mætum var stolið.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.