Fréttablaðið - 19.06.2003, Page 7
8 19. júní 2003 FIMMTUDAGUR
Rís þú unga
Þjóð, sem á ungan
þingmann sem
hefur þessa til-
finningu fyrir
þinginu og þjóð-
söngnum, hefur
ekki misst tengsl-
in við uppruna sinn og rætur.
Leiðarahöfundur um Dagnýju Jónsdóttur.
Morgunblaðið, 17. júní.
Lausbeisluð dýr
Eina leiðin, sem kæmist næst
því að taka á vandanum væri að
setja einhvers konar reglur um
lausagöngu katta.
Ólafur F. Dabney hjá Meindýravörnum.
DV, 18. júní.
Nú hlýnar manni að innan
Fáar stéttir manna eru valda-
meiri og áhrifameiri en blaða-
menn.
Hrafnkell A. Jónsson, fyrrverandi stjórnarmaður
í Lífeyrissjóði Austurlands. DV, 18. júní.
Orðrétt
Námstefna 20 júnínk.
Hönnun & þróun hugbúnaðar
Skráning og upplýsingar: www.epro.is – sími 568 7568
.epró
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Heimsferðir bjóða þér nú síðustu sætin í sólina í júlí á hreint ótrúlegu
verði. Nú er sumarstemmningin í hámarki á vinsælustu áfangastöðum
Evrópu og aldrei betra að njóta vinsælustu staðanna á fegursta tíma
ársins.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Síðustu sætin
í sólina
í júlí
frá kr. 19.950
með Heimsferðum
Benidorm - 2. og 9. júlí
Verð frá kr. 29.962
M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, vikuferð,
stökktutilboð. Almennt verð kr. 31.460.
Rimini - 15. júlí
Verð frá kr. 39.962
M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, vikuferð,
stökktutilboð. Almennt verð kr. 41.960.
Costa del Sol - 9. júlí
Verð frá kr. 39.962
M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, vikuferð,
stökktutilboð. Almennt verð kr. 41.960.
Barcelona - 10. og 17. júlí
Verð frá kr. 29.950
Flugsæti með sköttum. Almennt verð kr.
31.450.
Verona - 5. júlí
Verð frá kr. 19.950
Flugsæti með sköttum, m.v. 2 fyrir 1,
5. júlí. Almennt verð kr. 20.950.
Mallorka - 7. júlí
Verð frá kr. 39.962
M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, vikuferð,
stökktutilboð. Almennt verð kr. 41.960.
Kvartað yfir Radíó-
húsinu:
Saknar
sjónvarps
TÆKI „Ég fór með sjónvarp í við-
gerð í Radíóhúsið 5. maí og síðan
hef ég ekkert heyrt af því,“ segir
Bjarni Nikulásson, sem hafði
samband við Fréttablaðið í kjölfar
fréttaflutnings um gjaldþrot Rad-
íóhússins. Bjarni undrast að eig-
andi Radíóhússins, Páll Grétar,
skyldi ekki hafa sett upp tilkynn-
ingu á hurðina um gjaldþrot fyrir-
tækisins. Hann kvaðst hafa reynt
að ná í hann ítrekað án árangurs.
„Tækið er hérna heima hjá
mér í skúrnum,“ sagði Páll Grétar
aðspurður um málið. Hann kvað
tækið ónýtt og kvaðst ætla að
hringja í Bjarna þá þegar. ■
JAFNRÉTTI Launamunur kvenna og
karla er mestur hér á landi ef mið-
að er við hin Norðurlöndin. Launa-
munur kynjanna hefur almennt
minnkað lítið síðasta áratuginn í
löndunum, að því er fram kemur í
skýrslu vinnuhóps á vegum Nor-
rænu ráðherranefndarinnar.
Hlutfall launa kvenna af
launum karla er hér á landi 79%.
Best er ástandið í Svíþjóð, þar
sem laun kvenna eru 84% af
launum karla. Meiri munur er á
launum menntaðra karla og
kvenna en þeirra sem minni
menntun hafa. ■
Launamunur kynjanna:
Mestur hérlendis
VIÐSKIPTI Yfirtökutilboð Baugs í
verslunarkeðjuna Hamleys hljóð-
ar upp á 205 pens á hlut, samtals
um 5,8 milljarða íslenskra króna.
Ef tilboðið gengur upp mun Baug-
ur eiga ráðandi hlut í félaginu og
stjórnendur Hamleys minnihluta.
„Fyrir okkur hjá Baugi er mjög
mikilvægt að yfirtökutilboðið
gangi upp,“ segir Halldór Lárus-
son hjá Baugi í
London.
Halldór segir
þetta rökrétt fram-
hald af því sem
Baugur hafi verið
að gera. Stefna
Baugs sé annars vegar að kaupa
bréf í fyrirtækjum eins og The
Big Food Group, House of Fraser
og fleirum. Hins vegar hafi
Baugur fullan hug á að finna
stjórnendur sem hafa áhuga á að
kaupa fyrirtæki sem þeir vinna
fyrir. Eins og í þessu tilfelli að
taka fyrirtækið af markaði og
taka þátt í að fjármagna það fyr-
ir stjórnendurna. Hann segir
Hamleys gott fyrirtæki með
stjórnendur sem Baugur hafi
fulla trú á. „Við fjármögnum og
hjálpum til við stefnumörkun en
látum daglegan rekstur eftir
stjórnendum.“
Halldór segir Hamleys gott
fyrirtæki sem sé mjög þekkt
vörumerki úti um allan heim og í
því felist miklir vaxtarmöguleik-
ar. Svipaðar ástæður séu fyrir því
að Hamleys sé að fara af markaði
og fyrir því að Baugur er afskráð-
ur af íslenskum markaði. Bæði
séu þetta fyrirtæki sem hafi
kannski ekki verið nægilega mikil
hlutabréfaviðskipti með. Því sjái
menn ekki haginn í að vera með
fyrirtækið á markaði.
Eftir 20 daga ætti að koma í
ljós hvort yfirtökutilboðið gangi
eftir. Þegar er komin viljayfirlýs-
ing frá 41% hluthafa um að taka
tilboðinu. „Við þurfum að ná hlut-
fallinu upp í níutíu prósent á þess-
um tuttugu dögum. Því er ærið
verkefni fram undan við að sann-
færa hluthafa. Hamleys er að
mestu leyti í eigu stofnanafjár-
festa eins og lífeyrissjóða, trygg-
ingafélaga og fjárfestingasjóða.
Fjölskyldur og einstaklingar eiga
ekki stóran hlut.“
hrs@frettabladid.is
JOHN WATKINSON
John Watkinson, framkvæmdastjóri Hamleys, er einn þeirra stjórnenda sem Baugur hefur
unnið með vegna yfirtökutilboðsins.
Þekkt merki með
vaxtarmöguleika
Hamleys er að fara af markaði, líkt og Baugur, sem var afskráður
af íslenskum markaði. Næstu tuttugu dagar fara í að sannfæra
hluthafa um ágæti yfirtökutilboðsins.
■
„Við þurfum að
ná hlutfallinu
upp í 90% á
þessum tuttugu
dögum.“
William Hamley stofnaði Hamleys-versl-
unina árið 1760. Hann flutti verslunina á
hina frægu verslunargötu Regent Street
í London árið 1906. Sú verslun er á sjö
hæðum. Þar er eitt mesta úrval leik-
fanga á einum stað sem þekkist í heim-
inum, um 40.000 vörutegundir. Reknar
eru fimm verslanir undir Hamleys-vöru-
merkinu og þrjátíu og ein verslun undir
vörumerkinu Bear Factory auk fjögurra
annara verslana.
Seltjarnarnes:
Bætt öryggi
vegfarenda
ÖRYGGI Lokið hefur verið við að
setja upp öryggishandrið við
gangstétt á Suðurströnd og unnið
er að lagfæringu við tónlistar-
skóla Seltjarnarness. Tæknideild
bæjarins hefur auk þess fjölgað
hraðamerkingum gatna og örygg-
ishliðum við gangbrautir og
göngustíga.
Leyfilegur hámarkshraði á Sel-
tjarnarnesi er 30 km á klukku-
stund og er unnið að því að bæta
öryggi gangandi vegfarenda.
Mjög góðar aðstæður eru til þess
að stunda útivist á Nesinu og
fjölgar sífellt þeim sem hana
stunda. ■
WASHINGTON, AP Barátta George W.
Bush Bandaríkjaforseta fyrir
endurkjöri hófst á þriðjudags-
kvöld þegar hann safnaði and-
virði rúmra 250 milljóna króna í
kosningasjóð sinn á fjáröflunar-
kvöldverði í Washington. Um það
bil 1.400 lögfræðingar og starfs-
menn þrýstihópa greiddu hver
um sig 2.000 dollara, andvirði
146.000 króna, fyrir aðgang að
eins og hálfs klukkutíma sam-
komu þar sem veitingarnar sam-
anstóðu af hamborgurum og
pylsum.
Fjáröflunarkvöldverðurinn
var aðeins upphafið að tveggja
vikna ferðalagi forsetans um
landið þar sem hann safnar fé
fyrir kosningabaráttuna. Þegar
því ferðalagi lýkur gera menn
ráð fyrir því að Bush verði búinn
að safna meira fé en þeim tveim-
ur milljörðum króna sem allir níu
frambjóðendurnir í forvali
Demókrataflokksins söfnuðu
fyrstu þrjá mánuði ársins. For-
setakosningarnar sjálfar fara
fram eftir tæpt eitt og hálft ár.
„Þetta er besti 2.000 dollara
hamborgarinn sem ég hef smakk-
að,“ sagði Robin Angle, ein þeirra
sem borguðu sig inn. ■
GEORGE W. BUSH
Bandaríkjaforseti sagði frammistöðu sína í
baráttunni gegn hryðjuverkum, fyrir skatta-
lækkunum og umbótum í menntamálum
meðal þess sem sýndi hæfni hans til að
takast á við forsetaembættið annað kjör-
tímabil.
Bandaríkjaforseti hefur baráttu fyrir endurkjöri sínu:
146.000 krónur fyrir
hamborgarann
KUALA LUMPUR, AP Ólíklegt er að það
muni takast að ráða endanlega nið-
urlögum bráðalungnabólgunnar, að
sögn sérfræðinga á heilbrigðis-
sviði. Gro Harlem Brundtland,
framkvæmdastjóri Alþjóðaheil-
brigðisstofnunarinnar, segir að
ekki sé hægt að tryggja það að sjúk-
dómurinn skjóti aldrei upp kollin-
um að nýju.
Að lokinni tveggja daga ráð-
stefnu með fulltrúum stofnunarinn-
ar og um 1.000 vísindamönnum var
gefin út sú yfirlýsing að tekist hefði
að brjóta faraldur bráðalungabólgu
á bak aftur. Sérfræðingar lögðu þó
áherslu á mikilvægi þess að haldið
yrði áfram að þróa lyf sem gætu
unnið á HABL-veirunni ef nýr far-
aldur kæmi upp. ■
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin:
HABL komin til að vera