Fréttablaðið - 19.06.2003, Síða 13

Fréttablaðið - 19.06.2003, Síða 13
FIMMTUDAGUR 19. júní 2003 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H U S 21 30 0 0 6/ 20 03 Góðar hugmyndir fæðast um helgina Norsk-íslenska síldin: Lítið um að vera á miðunum SÍLD „Það er lítið um að vera núna í síldinni,“ segir Freysteinn Bjarnason, framkvæmdastjóri útgerðar hjá Síldarvinnslunni í Neskaupstað. Norsk-íslenska síldin tók að veiðast í íslensku lögsögunni fyrir helgina en hefur lítið látið sjá sig í þessari viku. Að sögn Freysteins er þó nokkur fjöldi skipa við veiðar. „Skipin hafa verið hér við lög- sögumörkin, en nú eru þau komin eitthvað út fyrir að leita að síld- inni.“ ■ Fiskafli fyrstu fimm mánuði ársins: Aflaverðmæti dregst saman SJÁVARÚTVEGUR Heildarafli ís- lenskra skipa í maí var 143.406 þúsund tonn, sem er rúmlega 6.700 tonnum meiri afli en í maí árið 2002. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands var heildarafli fyrstu fimm mánuði ársins alls 947.000 tonn, 309.000 tonnum minni en á sama tímabili í fyrra. Aflaverðmætið dróst saman um 7,2%. Botnfiskafli í maí var 45.858 tonn og dróst saman um 6.700 tonn miðað við maí í fyrra. Á fyrstu fimm mánuðum ársins var botnfiskaflinn 207.000 tonn eða um 8.000 tonnum minni en á sama tíma í fyrra. Af flatfiski bárust 3.782 tonn á land en í maímánuði 2002 var afl- inn 5.130 tonn og því jókst flat- fiskaflinn um tæp 1.100 tonn á milli ára. Af síld veiddust 27.000 tonn en í maímánuði 2002 var síld- veiðin tæplega 14.000 tonn. Kolmunnaafli var 59.000 tonn, sem er tæpum 4.000 tonnum minni afli en í maímánuði ársins 2002. Skel- og krabbadýraafli var rétt rúm 5 þúsund tonn, sem er nær sami afli og í maí 2002. Rækjuaflinn nam 3.100 tonnum og af kúfiski veiddust 1.300 tonn. ■ Lögreglan á Ísafirði: Fíkniefnarassía á Vestfjörðum FÍKNIEFNI Lögreglan á Ísafirði hef- ur á fáum dögum upplýst þrjú fíkniefnamál. Við rannsókn þeirra var lagt hald á 170 grömm af kannabisefnum og 4 grömm af amfetamíni. Maður á fertugsaldri var hand- tekinn þegar hann var nýkominn frá Ísafjarðarflugvelli. Í fórum hans fundust 76 grömm af hassi og tæp 4 grömm af amfetamíni. Hann var í haldi lögreglu í tæpan sólarhring en var sleppt að yfir- heyrslum loknum. Nítján ára piltur var handtek- inn á miðvikudagskvöld. Á honum fundust kannabisefni auk þess sem leitað var heima hjá honum og vitorðsmanni hans. Við leitina fundust 53 grömm af hassi. Fleiri voru handteknir við rannsókn málsins og voru tveir úrskurðaðir í gæsluvarðhald, annar í sólar- hring og hinn í þrjá daga. Sannað þykir að keyrt hafi verið til Reykjavíkur og keypt þar um 100 grömm af hassi. Um helmingur efnanna fór í dreifingu og til eigin neyslu eigendanna. Þá var lagt hald á peninga sem eru taldir ágóði fíkniefnasölunnar. Lögreglan stöðvaði tvo unga menn á leið til Ísafjarðar. Við leit í bílnum fundust 42 grömm af hassi. Voru þeir handteknir og færðir til yfirheyrslna. Hafði lögreglan þá í haldi í sólarhring á meðan málið var rannsakað. Í ljós kom að annar mannanna hefur dreift fíkniefnum á Vestfjörðum. ■ SJÓMENN Lítið hefur veiðst af síld í þessari viku. HASS Lögreglan á Ísafirði hefur haft í nógu að snúast. MINNI HEILDARAFLI Heildarafli fyrstu fimm mánuði ársins alls er 947.000 tonn eða 309.000 tonnum minni en á sama tímabili í fyrra. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.