Fréttablaðið - 19.06.2003, Page 14

Fréttablaðið - 19.06.2003, Page 14
16 19. júní 2003 FIMMTUDAGUR Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 Bi llu nd Bi llu nd DANMÖRK Beint leiguflug me› ICELANDAIR 11 . j ún í - 4 . s ep t. 21 .5 63 21 .5 63 V er › fr á kr. á mann m. v. að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja-11 ára, ferðist saman. Innifalið er flug og flugvallarskattar. Ef 2 ferðast saman, 24.950 kr. á mann. Takmarkað sætaframboð Formaður þingflokks Sjálfstæð-isflokksins, Einar Kr. Guðfinns- son, hefur að undanförnu kennt Seðlabankanum um flest allt sem hefur misfarist í stjórn efnahags-, atvinnu- og byggða- mála landsmanna. Það má lesa út úr skrifum Einars að Seðlabankinn hafi ýmislegt á samvisk- unni, allt frá ástandinu í Raufar- höfn og til vand- ræða útflutnings- greinanna. Auðvit- að er hér um yfir- gengilega aumt yf- irklór hans að ræða, þar sem reynt er að fría ríkisstjórn kvótaflokk- anna Framsóknar- og Sjálfstæðis- flokks ábyrgð á byggðamálum og stjórn efnahagsmála. Verkefnalisti ríkisstjórnar- innar Það er deginum ljósara að vandi Raufarhafnar stafar af vonlausu kvótakerfi og sömuleiðis er borð- leggjandi að ekki er hægt að kenna Seðlabankanum um hátt gengi ís- lensku krónunnar. Allir málsmet- andi hagfræðingar höfðu sagt fyr- ir um áhrif framkvæmdanna á Austurlandi á gengi íslensku krón- unnar, þ.e. að gengi íslensku krón- unnar myndi hækka. Það var aug- ljóst að innstreymi erlends fjár- magns myndi hækka fljótandi gengi íslensku krónunnar. Vitað er að framkvæmdirnar fyrir austan geta leitt til þenslu og þess vegna er mikilvægt að stjórnendur efna- hagsmála séu vakandi og grípi til raunverulegra aðgerða í efnahags- málum. Oftsinnis hefur verið bent á að það þurfi að fara í mótvægis- aðgerðir til þess að tryggja stöðug- leika og eru þær misvel fallnar til vinsælda, en engu að síður nauð- synlegar. Aðgerðir sem nefndar hafa verið til mótvægis eru m.a. að draga úr umsvifum ríkisins, skattahækkanir og skyldusparnað- ur. Á meðan ekkert er gert, þá hækkar gengi íslensku krónunnar og útflutningsgreinunum blæðir, s.s. útveginum og ferðaþjónust- unni. Það er ekki á valdi Seðla- bankans að grípa til aðgerða, held- ur er það fyrst og fremst verkefni ríkisstjórnarinnar. Það er því högg fyrir neðan beltisstað þegar Einar Kr. Guðfinnsson, fráfarandi for- maður efnahags- og viðskipta- nefndar Alþingis, sem á að vita betur, vænir Seðlabankann um að- gerðaleysi vegna hækkandi gengi krónunnar. Ávísun á verðbólgu Forgangsmarkmið Seðlabank- ans er að viðhalda lágri verðbólgu. Helsta tæki Seðlabankans til að halda verðbólgunni lágri eru vext- ir í viðskiptum bankans við lána- stofnanir, sem hafa síðan bein áhrif á lánskjör almennings. Seðla- bankinn getur einnig átt viðskipti á markaði með gjaldeyri í því augna- miði að hafa áhrif á gengi krón- unnar og þar með verðlag. Einar Kr. hefur að undanförnu heimtað að Seðlabankinn gripi til þess ráðs að keyptur yrði erlendur gjaldeyr- ir á millibankamarkaði í enn meiri mæli en nú er gert, til þess að lækka gengi íslensku krónunnar. Seðlabankinn hefur í raun staðið vaktina vel og unnið frá því í sept- ember í fyrra á móti hækkun ís- lensku krónunnar með kaupum á gjaldeyri og kaupir hann nú gjald- eyri fyrir 180 milljónir á dag. Flestir sem fylgjast eitthvað með efnahagsmálum eru sammála um að það væri ávísun á verðbólgu ef Seðlabankinn tæki til þess ráðs að kaupa gjaldeyri með þessum hætti í enn ríkari mæli, á meðan ríkisstjórnin aðhefðist ekkert í stjórn efnahagsmála. Ráðlögð kaup Einars myndu einungis leiða til mun meira magns peninga í um- ferð, þenslu og hækkandi verðlags. Seðlabankinn viðheldur stöðugleika Auðvitað eru tvær hliðar á þessu máli, þ.e. ef Einari Kristni yrði að ósk sinni og krónan veiktist til muna, þá leiddi það til þess að almennt verðlag neysluvara hækk- aði, sem bitnaði hvað verst á al- menningi. Öfgar í gengismálum í báðar áttir eru erfiðar fyrir efna- hagslífið og hefur Seðlabankinn staðið sig vel í að viðhalda stöðug- leika við erfiðar aðstæður, sem hafa einkennst af gífurlegu inn- streymi gjaldeyris, aðgerðaleysi stjórnvalda og innhaldslausu blaðri einstakra stjórnmála- manna. ■ Eru skúrkar í Seðlabankanum? ■ Öfgar í gengis- málum í báðar áttir eru erfiðar fyrir efnahags- lífið og hefur Seðlabankinn staðið sig vel í að viðhalda stöðugleika við erfiðar aðstæð- ur... Þjóðmál SIGURJÓN ÞÓRÐARSON ■ alþingismaður Frjálslynda flokksins skrifar um ábyrgð rík- isstjórnarinnar og Seðlabankans. Vegna greinar Ragnheiðar Rík-harðsdóttur bæjarstjóra vil ég koma eftirfarandi atriðum á framfæri. Það er rangt hjá Ragn- heiði að minnihlutinn hafi látið það í veðri vaka að tölvupósturinn hafi borist á milli funda, enda hef- ur það hvergi kom- ið fram. Hafi Ragnheiður sett fram tilnefninguna sem almennur bæj- arbúi kom hún of seint með vísan í auglýsingu nefnd- arinnar um tilnefn- ingarfrest. Ragn- heiður sendir til- nefninguna sem bæjarstjóri eins og fram kemur í tölvupóstinum. Það er rangt hjá Ragnheiði að ekki séu til skráðar eða óskráðar reglur um tilnefn- ingar á bæjarlistamanni. Þær má finna í „Reglum um starfsstyrk til menningarmála“ sem samþykktar voru af bæjarstjórn að tillögu Menningarmálanefndar. Vinnureglur brotnar Það er ljóst að þær vinnuregl- ur sem Menningarmálanefnd hefur sett sér voru ekki viðhafð- ar á fundi nefndarinnar þann 27. maí sl. Það má sjá í umfjöllun Karls Tómassonar um þau vinnu- brögð sem viðhöfð voru af for- manni nefndarinnar. Annar full- trúi í nefndinni hefur í grein á heimasíðu bæjarins staðfest að Karl fari með rétt mál og gagn- rýnir m.a. rangfærslur formanns nefndarinnar. Í bókun sjálfstæð- ismanna í nefndinni er fullyrt að engar reglur séu til um það hvernig velja eigi bæjarlista- mann Mosfellsbæjar og það þrátt fyrir ábendingu um að svo sé. Síðar í umræðunni, þegar sjálf- stæðismenn höfðu áttað sig á að í gildi er slík samþykkt, er keppst við af þeirra hálfu að sannfæra fólk um að farið hafi verið eftir reglunum sem þeir vissu ekki að væru til. Trúnaðarbrestur Það hefur verið haft í heiðri hingað til að greina ekki opinber- lega frá nöfnum þeirra lista- manna sem nefndin hefur valið á milli og er það mjög miður að það hafi verið gert að hluta í þetta sinn. Ágreiningurinn stóð um vinnubrögð en ekki listamennina sjálfa, eins og ítrekað hefur kom- ið fram í bókunum og skrifum m.a. Karls Tómassonar. Að ætla Karli Tómassyni annað er útúr- snúningur og rangfærslur. Í bók- un Ragnheiðar Ríkharðsdóttur á bæjarstjórnarfundi eru nöfn listamanna fyrst dregin fram í opinbera umræðu í þessu sam- bandi. Síðan er í skrifum á heimasíðu bæjarins vitnað til þess að bróðir Karls og kona fyrrverandi formanns hafi verið tilnefnd. Hvaðan kemur viðkom- andi aðila þessi vitneskja og hver framdi það trúnaðarbrot að upp- lýsa það utan nefndarinnar? Í samþykktum bæjarins er kveðið á um þagnarskyldu um einkamál fólks sem fjallað er um m.a. í nefndum. Ekkert kveður á um þagnarskyldu varðandi vinnubrögð eða aðferðir. Karl Tómasson hefur því ekki brotið trúnað sem nefndarmaður heldur greint frá þeim vinnubrögðum sem viðhöfð voru í nefndinni. Í raun komst hann ekki undan því að fjalla ítarlega um þau vinnu- brögð sem formaður nefndarinn- ar viðhafði vegna ásakana um að fara með rangt mál og að gagn- rýni hans væri byggð á annarleg- um ástæðum. Á öllum stigum málsins í þessari umfjöllun hefði verið rétt af öllum aðilum að blanda ekki nöfnum listamann- ana inn í umræðuna. Frumkvæð- ið hvað það varðar kom ekki frá Karli Tómassyni. Vanhæfi Ragnheiður Ríkharðsdóttir bæjarstjóri fjallar í löngu máli um vanhæfi Karls Tómassonar til setu á þessum tveim fundum nefndarinnar. Hingað til hefur það ekki talið varða við hæfi nefndarmanns að taka þátt í „fyrra vali“ þó einhver honum tengdur hefði verið tilnefndur. Tilgangur „fyrra vals“ er að setja í pott þá sem síðan er kosið um en samkvæmt reglunum skal kosið um alla þá sem fá atkvæði í „fyrra vali“. Eins og allir nefndarmenn vita tilnefndi Karl ekki bróður sinn. Að öðru leyti eftir þetta snerust umræðurnar fyrst og fremst um vinnuaðferðir nefndarinnar þar til formaður frestaði málinu. Á seinni fundinum mætti Karl í upphafi fundar til að leggja fram bókun minnihlutans um vinnuað- ferðir og að lokinni umfjöllun um bókanirnar vék hann af fundi áður en efnisleg meðferð málsins hófst. Það er ljóst að miðað við fyrri aðferðir nefndarinnar taldi Karl sig ekki vanhæfan að sitja fundina undir þeim umræðum sem þá áttu sér stað. Ekki hefur öðrum nefndarmönnum og þar á meðal formanninum þótt óeðli- legt að Karl sæti fundina undir þessum umræðum enda gerðu þeir engar athugasemdir við það. Það er ekki síður í verkahring formanns nefndar að gæta þess að engin sitji fund sem talist get- ur vanhæfur og í þessu sambandi var formanni fullkunnugt um tengsl Karls við einn þeirra lista- manna sem var tilnefndur. Í ljósi þessa er það full langsótt af hálfu Ragnheiðar Ríkharðsdóttur að túlka lög og samþykktir með þeim hætti sem hún gerir í um- fjöllun sinni. Aðalatriði málsins Ásakanir á hendur Karli Tómassyni um vanhæfi og trún- aðarbrot eru mjög alvarlegar og er langt gengið í þeim efnum að styðja þær fullyrðingar rökum. Ljóst er að tilgangur þessara ásakana sjálfstæðismanna er fyrst og fremst sá að komast hjá því að standa fyrir máli sínu um að hafa sniðgengið gildandi vinnureglur um val á Bæjarlista- manni Mosfellsbæjar og óeðlileg afskipti bæjarstjórans Ragnheið- ar Ríkharðsdóttur af málinu. Ásakanir þeirra á hendur Karli breyta engu um vinnubrögð sjálfstæðismanna, sem eru í alla staði óeðlileg. ■ Sannleikurinn fótum troðinn Þjóðmál JÓNAS SIG- URÐSSON ■ bæjarfulltrúi G-lista Samfylkingar og VG skrifar um val á bæj- arlistamanni í Mos- fellsbæ. ■ Ásakanir á hendur Karli Tómassyni um vanhæfi og trúnaðarbrot eru mjög alvar- legar og er langt gengið í þeim efnum að styðja þær full- yrðingar rökum. BÆJARSKRIFSTOFA MOSFELLSBÆJAR „Ljóst er að tilgangur þessara ásakana sjálfstæðismanna er fyrst og fremst sá að komast hjá því að standa fyrir máli sínu um að hafa sniðgengið gildandi vinnureglur um val á Bæjarlistamanni Mosfellsbæjar og óeðlileg afskipti bæjarstjórans af málinu,“ segir Jónas Sigurðsson.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.