Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.06.2003, Qupperneq 15

Fréttablaðið - 19.06.2003, Qupperneq 15
FIMMTUDAGUR 19. júní 2003 Nákvæmlega klukkan 00.01, laugardaginn 21. júní hefst sala á fimmtu bókinni um Harry Potter samtímis um alla Evrópu! Penninn - Eymundsson í Austurstræti ætlar ekki að láta aðdáendur Harry Potter bíða dagrenningar eftir úkomu bókarinnar, heldur opna verslun sína um miðnæturbil og hafa opið til kl. 02.00 eða á meðan birgðir endast. Ath! Þar sem um takmarkað magn bóka er að ræða fá þeir sem fyrst mæta! Nýja bókin er hnausþykk og heitir á frummálinu Harry Potter and the Order of the Phoenix. Við getum að sjáfsögðu ekkert sagt um innihald bókarinnar enda veit það enginn - nema ef vera kynni höfundurinn J.K. Rowling. Íslensk þýðing bókarinnar kemur síðan í bóka- verslanir okkar í nóvember og forsala hennar hefst hjá okkur upp úr miðnætti! Fimmta og nýjasta bókin Harry Potter and the Order of the Phoenix kemur í Pennann - Eymundsson, Austurstræti eina mínútu yfir miðnætti annað kvöld... M I Ð N Æ T U R O P N U N ! Austurstræti 18, sími 511 1130, www.penninn.is Opið frá 00.01-02.00 eða á meðan birgðir endast. Viðbrögð bæjarstjórans í Kópa-vogi, Sigurðar Geirdal, við at- hugasemdum Samfylkingarinnar um ófullkomna árs- reikninga bæjarins fyrir árið 2002 eru í takt við viðbrögð hans við gagnrýni okkar á seinagang við afgreiðslu ým- issa mála hjá Kópa- vogsbæ. „Stormur í vatnsglasi“ hefur m.a. verið haft eftir honum um gagnrýni okkar. Bæjarstjór- inn var hins vegar tilneyddur til að fara fram á frestun á síðari um- ræðu bæjarstjórnar um ársreikn- ingana fyrir árið 2002. Engar skýringar frá bæjarstjóranum Þegar fyrri umræða um árs- reikningana 2002 fór fram í bæjar- stjórn 27. maí sl. spurðum við bæj- arstjórann um ýmis atriði varðandi reikningana, t.d. skýrslur skoðun- armanna reikninganna og ársreikn- inga Tónlistarhússins. Kópavogs- bær á rúmlega 77% í Tónlistarhús- inu og því eiga upplýsingar um fjárhagslega stöðu þess að koma fram í samstæðureikningi bæjar- ins. Bæjarstjórinn hafði þá ekki skýringar á því hvers vegna árs- reikningar Tónlistarhússins hefðu ekki komið fram. Í Fréttablaðinu 12. júní sl. er svo haft eftir Sigurði Geirdal um ársreikninga Tónlistar- hússins: „Þessar tölur hafa alltaf verið til og þær hafa verið lagðar fram á viðeigandi stað.“ Staðreynd- in er að ársreikningar Tónlistar- húss Kópavogs fyrir árin 1999 - 2001 voru lagðir fram með formleg- um hætti 30. maí 2003 í stjórn Tón- listarhússins og reikningur fyrir árið 2002 var lagður fram 6. júní 2003. Allt gerist þetta eftir að árs- reikningur bæjarins fyrir 2002 var lagður fram í bæjarstjórn. Kannski hefur meirihluti stjórn- ar Tónlistarhússins, sem eru engir aðrir en Sigurður Geirdal bæjar- stjóri og Gunnar Ingi Birgisson, formaður bæjarráðs og alþingis- maður, haft ársreikninga Tónlistar- hússins í sínum fórum. Bæjarstjór- inn gat samt ekki útskýrt á bæjar- stjórnarfundinum hvers vegna þessar upplýsingar hefðu ekki komið fram opinberlega og með formlegum hætti þegar hann var spurður beint um það atriði. Þess má geta að Gunnar Ingi Birgisson var ekki á bæjarstjórnarfundinum 27. maí sl., þannig að bæjarstjórinn var einn til svara. Meiri skuldir Hvað kemur svo í ljós í reikning- um Tónlistarhússins? Jú, það hvíla skuldir á bænum vegna þess upp á rúmar 340 milljónir króna, sem vantar í samstæðureikning bæjar- ins fyrir árið 2002. Því sýndi fram- lagður ársreikningur, sem ræddur var 27. maí sl., ekki rétta skulda- stöðu. Þessu vildum við í Samfylk- ingunni ekki una og leituðum álits félagsmálaráðuneytisins varðandi afgreiðslu reikningsins. Sú mála- leitan hafði þær afleiðingar að af- greiðslu reikninganna var frestað og loks tókst að fá fram ársreikn- inga Tónlistarhúss Kópavogs frá upphafi. Það er ekki einkamál meirihlutans eða oddvita Fram- sóknar- og Sjálfstæðisflokks hvern- ig staðið er að rekstri félaga sem bærinn á meirihluta í og sú skylda hvílir á sveitarfélögum að sýna all- ar slíkar upplýsingar í ársreikning- Þjóðmál SIGRÚN JÓNSDÓTTIR ■ er bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi. Ófullkomnir ársreikningar Kópavogsbæjar ■ Það er ekki einkamál meiri- hlutans eða oddvita Fram- sóknar- og Sjálfstæðis- flokks hvernig staðið er að rekstri félaga sem bærinn á meirihluta í. um sínum. Meirihlutinn í Kópavogi verður að lúta þeim reglum eins og aðrir. ■ SALURINN Í KÓPAVOGI „Kópavogsbær á rúmlega 77% í Tónlistarhúsinu og því eiga upplýsingar um fjárhagslega stöðu þess að koma fram.“

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.