Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.06.2003, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 19.06.2003, Qupperneq 16
19. júní 2003 FIMMTUDAGUR FÓTBOLTI David Beckham er far- inn til Real Mardrid. Hann fór til félagsins sem hann langaði að leika með og Madrid fékk leik- manninn sem félagið hefur lengi sóst eftir. Beckham varð 28 ára í byrjun maí og á að baki tíu ára feril með United. Hann hefur unnið alla titla með United sem í boði eru og líkur eru á að hann njóti sömu velgengni hjá Real Ma- drid, sigursælasta félagi Evr- ópu. Talið er að Real hafi greitt United 25 milljón Evrur fyrir Beckham og að söluverðið geti hækkað í 35 milljónir ef leik- maðurinn stendur sig vel. Sjálf- ur fær Beckham um sjö milljón- ir Evra fyrir fjögurra ára samn- ing eða rúmlega 600 milljón krónur. Salan átti sér langan að- draganda. Real Madrid lýsti áhuga sínum á að kaupa Beck- ham í apríl, um það leyti sem fé- lagið lék gegn Manchester United í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Á sein- ni stigum lýstu nokkur önnur félög áhuga á Beckham en hann vildi aðeins fara til Real. Beckham var stuðningsmað- ur United frá unga aldri og gerði sinn fyrsta samning við félagið þegar hann var 14 ára. Fimm árum síðar lék hann með aðalliðinu í fyrsta sinn og var orðinn fastamaður haustið 1995. Sumarið fyrir leiktíðina 1995-96 seldi United Paul Ince til Inter og Andrei Kanchelskis til Ev- erton og Mark Hughes fór til Chelsea án greiðslu. Þeir viku fyrir nýrri kynslóð leikmanna hjá United, þeirra á meðal Paul Scholes, Nicky Butt og David Beckham. ■ FERILL DAVID BECKHAM Leikir og mörk Manchester United (1993-2003) 398 86 Preston North End (1995) 4 2 Samtals (1993-2003) 402 88 Landsleikir (1996-2003) 60 11 1975 Fæddist 2. maí í Leytonstone í London. 1989 Skrifaði undir unglingasamning við United á 14. afmælisdegi sínum. 1995 Fyrsti leikurinn með aðalliði United. 1995 Lánaður til Preston North End í mánuð. 1995 Fastamaður í aðalliði United sem sigraði bæði í deildar- og bikarkeppninni. 1996 Skoraði frá miðju í leik gegn Wimbledon. 1996 Lék sinn fyrsta landsleik þegar Englendingar unnu Moldóva 3:0 í undankeppni HM. 1998 Rekinn af velli þegar Englendingar töpuðu fyrir Argentínumönnum í lokakeppni HM. 1999 United sigraði í deild og bikar á Englandi og í Meistaradeild Evrópu. 2000 Landsliðsfyrirliði í fyrsta sinn þegar Englendingar töpuðu 0:1 fyrir Ítölum í Tórínó. 2002 Skrifaði undir fimm ára samning við United í maí. 2002 Fyrirliði enska landsliðsins sem komst í átta liða úrslit HM. 2003 Seldur til Real Madrid fyrir 35 milljón evrur. Fær 600 milljónir við undirskrift Tíu ára farsælum ferli David Beckham með Manchester United er lokið, í bili að minnsta kosti. Salan til Real Madríd átti sér langan aðdraganda. FÓTBOLTI „Við dauðsjáum á eftir Beckham,“ segir Guðbjörn Þór Ævarsson, formaður stuðnings- mannaklúbbs Manchester United á Íslandi. „Félagið er ekki hætt þó hann sé farinn. Við höfum séð á eftir mörgum góðum drengjum en við höfum alltaf náð að vera á toppnum undanfarin ár.“ „Ég held að þetta sé löngu ákveðið allt saman. Við sáum það undir lok síðustu leiktíðar að hann var ekki með í öllum leikj- um eins og Ferguson væri að venja liðið við það að vera án Beckhams. Hann kvaddi í síðasta heimaleik. Þetta var löngu ákveð- ið en það hefur verið mikil sápu- ópera í kringum þetta. Beckham hefur ferðast um Japan og það er talað um gífurlegar vinsældir hans þar. Hvaða treyjur kaupir fólkið þar núna?“ „Ég er sannfærður um að stjór- inn er með einhvern í sigtinu. United á nóg af peningum en það þarf kannski ekki að kaupa svo marga. Við höfum marga mark- menn á óskalista. Skarð Schmeichel er vandfyllt og það vantar annað svona ljóshært tröll.“ ■ FERGUSON OG BECKHAM Eftir áratugarlanga þjónustu við Manchester United og fjölda meistaratitla hefur fyrirliði enska landsliðsins nú kvatt stjóra sinn og félaga. Formaður stuðningsmannaklúbbs Manchester United: Dauðsér á eftir Beckham DAVID BECKHAM Í JAPAN David Beckham hefur verið hundeltur af fjölmiðlum í Japan, en þar er hann nú staddur ásamt konu sinni, Victoriu. FÓTBOLTI „Ísland á raunhæfa möguleika á að ná öðru sætinu í riðlinum og komast á Evrópumót- ið í Portúgal,“ sagði Ásgeir Sigur- vinsson, annar tveggja nýráðinna landsliðsþjálfara Íslands í knatt- spyrnu. Þeir höfðu verið ráðnir tímabundið en vegna góðs gengis munu þeir nú fá stjórn á liðinu til haustsins 2005 og mögulega leng- ur. „Þetta er stór áfangi fyrir okk- ur og gleðiefni að takast á við þetta til lengri tíma. Þessir tveir leikir sem búnir eru hafa farið vel, við höfum fengið góða svörun frá leikmönnum og allt gengið eft- ir og verið jákvætt. Við Logi sett- um skýr markmið strax í upphafi og við höldum þeim markmiðum til haga. Möguleikar okkar velta á hvað Skotar gera í sínum tveimur heimaleikjum. Ég geri ráð fyrir að þeir vinni báða þá leiki og þá þurfum við að sigra Færeyinga og helst ná stigi eða stigum gegn Þjóðverjum til að komast áfram. Í upphafi stefndum við að níu stig- um úr þessum þrem fyrstu leikj- um og nú þurfum við sigur gegn sterku færeysku liði til að ná þeim markmiðum.“ ■ BLAÐAMANNAFUNDUR KSÍ Ásgeir og Logi verða landsliðsþjálfarar næstu tvö árin. Nýir landsliðsþjálfarar hvergi bangnir: Við eigum raunhæfa möguleika

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.