Fréttablaðið - 19.06.2003, Síða 22
■ Á ferð og flugi
Gjaldey
ris-
gla›nin
gur! Fer›ahandklæ›in
eru komin!
ferðir o.fl.
Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um ferðir – innanlands og utan
Ritstjórn; sími: 515 7500 – netfang: ferdir@frettabladid.is. Auglýsingar; sími: 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is. Þjónustuauglýsingar: Gula línan; sími 580 8090 – netfang: auglysingar@gulalinan.is.
16.30 Ganga um söguslóðir kvenna í
Kvosinni í Reykjavík undir leiðsögn Auðar
Styrkársdóttur, forstöðumanns Kvenna-
sögusafns Íslands. Kvenréttindafélag Íslands
stendur fyrir göngunni, sem hefst við Ráð-
hús Reykjavíkur.
18.00 Fimm-
vörðuháls - næt-
urganga Útivistar
um Jónsmessu.
Gengið er yfir
Fimmvörðuháls
alla leið í Bása.
Gist í skálum Úti-
vistar og komið
heim aftur á
sunnudegi. Brottför frá BSÍ. Einnig lagt af
stað klukkan 19.00 og 20.00
18.00 Ferðafélag Íslands stendur fyrir
Heklugöngu, sumarsólstöðu- og nætur-
göngu. Gengið á fjallið úr Skjólkvíum. Lagt af
stað frá BSÍ með viðkomu í Mörkinni 6.
18.00 Sjöundi hluti í göngu Ferðafélags-
ins um Gömlu Krýsuvíkurleiðina. Nú verður
gengið úr Kaldárseli í Hafnarfjörð. Lagt af
stað frá BSÍ með viðkomu í Mörkinni 6.
19.30 Ferðafélagið gengur á Hellisheiði
og Kolviðarhól. Nú verður gengið úr Kaldár-
seli í Hafnarfjörð. Lagt af stað frá BSÍ með
viðkomu í Mörkinni 6.
19.30 Gönguferð FÍ um aftökustaði í
Landnámi Ingólfs. Lagt af stað frá BSÍ.
hvað?hvar?hvenær?
16 17 18 19 20 21 22
JÚNÍ
Fimmtudagur
17 18 19 20 21 22 23
Föstudagur
18 19 20 21 22 23 24
Laugardagur
19 20 21 22 23 24 25
Sunnudagur
20 21 22 23 24 25 26
Mánudagur
22 23 24 25 26 27 28
Miðvikudagur
Uppáhaldsborg Þorfinns Ómarsson-ar er París. Hann bjó þar í fjögur
ár fyrir um tíu árum þegar hann var í
námi og heillaðist alveg, enda segir
hann París fjölbreytta og margbreyti-
lega borg. Þorfinnur þekkir uppáhalds-
borgina sína vel og hefur töluverða
reynslu af veitingahúsalífinu þar.
Út að borða
Þorfinnur mælir sérstaklega með
bistro-staðnum Benoit rétt hjá Pomp-
idou-safninu, fyrir þá sem vilja kynn-
ast klassískri franskri matargerð.
Hann segir staðinn passlega fínan án
þess að um háklassa sé að ræða: „Þetta
er eitthvað sem klikkar aldrei og er
búið að vera eins í áratugi.“
„Svo getur náttúrlega verið gaman
að fara líka á einhverja staði sem eru
nýlegir,“ segir Þorfinnur og bendir á að
í Pompidou-safninu sé einn slíkan að
finna; Georges, og þar sé matur frá öll-
um heimsihornum. „Þetta er lifandi og
smart staður. Þetta er ekki rólegur
dinner með kertaljósi, heldur meira
svona kampavín og súpermódel.“
Fyrir þá sem vilja fara á mjög fínan
stað mælir Þorfinnur með Arpege sem
er frumlegur háklassastaður en að
sama skapi dýr. „Þetta er svona
stjörnustaður.“
Hótel í homma- og
gyðingahverfinu
Þorfinnur mælir með viðkunnan-
legu þriggja stjörnu hóteli sem heitir
Hotel de la Bretonnerie og er í 4.
hverfi á Rue Sainte-Croix, á vinstri
bakka Parísar. Hverfið sem kallast
Mýrin eða Marais er eitt mesta
hommahverfið í París auk þess að
vera gyðingahverfi og er í miklu
uppáhaldi hjá Þorfinni því þar er
svo mikið af búðum sem selja
áhugaverða hönnun. Þar eru líka
margar „gourmet búðir“ sem selja
osta og annað góðgæti. „Þegar þú
ferð þarna inn er eins og þú sért
kominn í aðra borg,“ segir hann. „Ef
maður gistir þarna þá þarf maður
ekkert að fara út fyrir hverfið, í raun
og veru.“
Sumir eru hins vegar hrifnari af
hægri bakka Parísar og fyrir þá bend-
ir Þorfinnur á ágætt þriggja stjörnu
hótel sem heitir Relais Saint Sulpice og
er nálægt Latínuhverfinu.
Sjálfur vill Þorfinnur frekar fá
sér gönguferð um Parísarborg en
að fara á hefðbundna ferða-
mannastaði: „Að labba um
og rekast á litlar skemmti-
legar búðir,“ segir hann
vera skemmtilegast.
„Svo byrja ég alltaf á
því að athuga hvað er í
gangi því það er alltaf
svo mikil myndlist og
svo hefur París nátt-
úrlega alltaf verið
besta bíóborg í
heimi,“ segir hann.
„Það er ekki hægt
að láta sér leiðast
þarna.“ ■
Þorfinnur Ómarsson vill frekar rölta um París og og upplifa borgina en fara á
hefðbundna ferðamannastaði. Svo er París besta bíóborg í heimi að hans mati.
Ekki hægt
að láta sér leiðast
ÞORFINNUR ÓMARSSON
Uppáhaldsborg Þorfinns er París enda
átti hann þar heima í fjögur ár.
Á TRAKTOR Í INGÓLFSHÖFÐA Sigurð-
ur Bjarnason í Hofsnesi í Öræfa-
sveit og fjölskylda hans bjóða ferðir
í Ingólfshöfða á sumrin. Frá 20. júní
til 20. ágúst er lagt upp kl. 13.30 alla
daga og frá 10. júlí til 10. ágúst er
einnig brottför kl. 9.30. Farið er út í
höfðan á traktorkerru og farið í
stutta göngu um höfðann. Þaðan er
útsýni gríðarlegt og fuglalíf með
mesta móti. Ferðin kostar 1.200 kr. á
mann og þurfa að vera 6 manns að
lágmarki eða greiða 7.200 fyrir ferð-
ina ef færri eru en 6.
NETKAFFI Á STÖÐVARFIRÐI Netkaffið
SMS hefur verið opnað við Skóla-
braut 10 á Stöðvarfirði. Gestum
býðst þar aðgangur að
tölvum gegn vægu
verði, kaffi og stór-
kostlegt útsýni í
hlýlegu húsi.
Einnig er boðið
upp á að færa
myndir af stafrænum
myndavélum yfir á geisladiska hjá
SMS, eða senda þær beint í tölvu-
pósti heim til vina og ættingja.