Fréttablaðið - 19.06.2003, Síða 26
19. júní 2003 FIMMTUDAGUR
Tragikómedían En la puta vida,eða Flókið líf, var gerð í Úrú-
gvæ árið 2001 og hefur hlotið
fjölda verðlauna og tilnefninga á
kvikmyndahátíðum um víða ver-
öld. Leikstjóri myndarinnar hefur
verið lofaður í hástert fyrir að
flétta einkar vel saman suður-am-
eríska sápuóperu og gera um leið
slæmri stöðu kvenna í þessum
heimshluta sannfærandi skil.
Elisa er 27 ára gömul einstæð
tveggja barna móðir sem býr í
Montevideo í Úrúgvæ. Hana
dreymir um að opna hárgreiðslu-
stofu í einu af fínni hverfum borg-
arinnar. Þegar hún lendir aura-
laus á götunni gerist hún vændis-
kona og nær nokkrum vinsældum
sem slík. Hún verður ástfangin af
melludólgnum Placido og gengur
það vel að hún sér fram á að
draumurinn muni rætast.
Hún heldur í framhaldinu til
Spánar í þeim tilgangi að græða
„þúsundir dollara“ á götum Ma-
dridar en þar mætir henni ekkert
nema vonbrigði og mótlæti og hún
dregst meðal annars inn í stríð
úrúgvæskra vændiskvenna og
brasilískra klæðskiptinga sem
endar með ósköpum.
Hún missir þó aldrei sjónar á
draumnum um hárgreiðslustof-
una og þarf áður en yfir lýkur að
velja á milli dólgsins Placido og
barnanna sinna tveggja sem höfn-
uðu á munaðarleysingjahæli í
Montevideo á meðan hún vann
fyrir sér á Spáni. ■
Bræðurnir Bobby og PeterFarrelly slógu eftirminnilega
í gegn með fyrsta leikstjórnar-
verkefni sínu Dumb & Dumber
árið 1994, enda var þar á ferðinni
ein kostulegasta gamanmynd síð-
ustu áratuga. Myndin bar öll
helstu höfundareinkenni þeirra
bræðra en aðall þeirra er grodda-
legur klósetthúmor sem er ger-
samlega laus við alla pólitíska
rétthugsun.
Leikararnir Jim Carrey og Jeff
Daniels fóru á sínum tíma alger-
lega á kostum í hlutverkum erki-
bjálfanna Harry og Lloyd. Þeir
eru hins vegar, rétt eins og
Farrelly-bræður sjálfir, fjarri
góðu gamni í framhaldsmyndinni
Dumb & Dumberer sem verður
tekin til sýninga í kvikmyndahús-
um um helgina enda hefur mynd-
in verið kynnt til sögunnar sem
svo mikil della að upprunalegu
leikararnir hafi ekki þorað að
koma nálægt henni.
Dumb & Dumberer hverfur
aftur til fortíðar og áhorfendur fá
að fylgjast með fyrstu kynnum
þeirra félaga í skóla árið 1986.
Þeir eru vitaskuld nemendur með
miklar sérþarfir en gera allt sem
þeir geta til þess að brjóta af sér
hlekki heimskunnar og njóta eðli-
legs skólalífs. ■
Geðþekka unglingsstúlkanLizzie McGuire kom fyrst
fram á sjónarsviðið í samnefnd-
um sjónvarpsþáttum árið 2001 en
Disney hefur nú tekið stúlkuna
upp á arma sína og leyfir henni að
njóta sín í bíómynd sem heitir
einfaldlega Bíómyndin um Lizzie
McGuire. Þegar Lizzie var kynnt
til sögunnar í sjónvarpinu var
hún ósköp venjuleg, svolítið sein-
heppin táningsstelpa sem var að
fikra sig inn í heim hinna full-
orðnu, meðal annars með því að
kaupa sér sinn fyrsta brjósta-
haldara.
Bíómyndin tekur upp þráðinn
þar sem hún er að fara í útskrift-
arferð til Ítalíu. Þar bíða hennar
meiriháttar ævintýri þar sem hún
er nefnilega tvífari poppstjörn-
unnar Ísabellu. Lizzie er því feng-
in til að fylla skarð Ísabellu í vin-
sælum dúett og á augabragði
breytist þessi venjulega skóla-
stelpa í næstu Britney Spears.
Stúlkan þarf því að glíma við
stórar heimspekilegar spurning-
ar í sumar en er sem betur fer
ekki öll þar sem hún er séð. ■
Erfitt líf:
Hárgreiðsludraumar
vændiskonu
ELISA
Draumur hennar um að eignast hárgreiðslustofu leiðir hana út í vændi á götum Madridar.
HILLARY DUFF
Þessi 16 ára gamla leikkona þykir líkleg til
stórræða. Hún lék Lizzie McGuire fyrst í
samnefndum sjónvarpsþáttum árið 2001
og er einnig á fleygiferð í bíó þessa dag-
ana í Agent Cody Banks ásamt Frankie
Muniz úr Malcolm in the Middle.
Lizzie McGuire:
Úr sjónvarpinu á
hvíta tjaldið
HEIMSKUR, HEIMSKARI
Leikararnir Eric Christian Olsen og Derek Richardson fá það vandasama verkefni að leika
Jim Carrey og Jeff Daniels á yngri árum og virðist takast frekar illa upp ef marka má
harkalega dóma erlendra gagnrýnenda.
Heimskur, heimskari:
Fábjánar á skólabekk