Fréttablaðið - 19.06.2003, Page 27
25FIMMTUDAGUR 19. júní 2003
Það er ekki nóg með það aðgrafarræninginn kynþokka-
fulli Angelina Jolie ætli að bjarga
heiminum öðru sinni í sumar í
nýrri mynd um Löru Croft heldur
hefur hún einnig skorið upp her-
ör gegn beinþynningu með því að
taka þátt í Got milk? auglýsinga-
herferðinni. Glæsilegar myndir
af dömunni með mjólkurskegg
munu því birtast í tímaritum um
gervöll Bandaríkin á næstunni.
Jolie er vafalaust glæsilegasta
stjarnan sem hefur lagt mjólkur-
áróðursherferðinni lið og það má
því slá því föstu að þessi land-
búnaðarafurð komi sterk inn í
sumar.
Gamli James Bond-leikarinnRoger Moore var í hópi
þeirra sem fengu orðu á afmæli
Englandsdrottn-
ingar á dögun-
um. Moore var
aðlaður fyrir
störf sín sem
leikari og fram-
lag sitt til góð-
gerðarmála.
Þessi 75 ára
gamla kempa,
sem hefur með-
al annars bjarg-
að heimsbyggðinni sjö sinnum á
meðan hann var í þjónustu henn-
ar hátignar, var sem sagt loksins
orðinn Sir Roger Moore þegar
hann gekk af fundi drottningar.
Þegar Stanley heitinn Kubrickvar staddur í London að kvik-
mynda Eyes Wide Shut tók bíræf-
inn svikahrappur sig til og þóttist
vera þessi nafntogaði leikstjóri
til þess að komast inn í partí og
næturklúbba. Þessi hugmynda-
ríki svindlari er nú við það að
öðlast heimsfrægð fyrir uppá-
tækið en John Malkovich mun
leika hann í kvikmyndinni Color
Me Kubrick, sem byggir á Lund-
únaævintýrinu. Brian Cook skrif-
ar handrit myndarinnar, en hann
vann einmitt með Kubrick að
gerð Eyes Wide Shut.
Harðjaxlinn Kurt Russell ermættur til leiks á ný í lög-
reglumyndinni Dark Blue en þar
er hann í sínu fyrsta aðalhlutverki
síðan hann spókaði sig í Presley-
galla í 3000 Miles to Graceland.
Myndin gerist í Los Angeles í apr-
íl árið 1991 og fjallar um harð-
snúna sveit lögreglumanna sem
hika ekki við að brjóta lög og regl-
ur þegar það kemur að því að hafa
hendur í hári glæpamanna.
Russell leikur gamalreyndu
lögguna Eldon Perry sem er
fremst í flokki fautasveitarinnar
enda annálaður fyrir fantaskap og
óhlýðni. Hann er á kafi í rannsókn
morðmáls ásamt nýliðanum
Bobby Keough, sem fær að kynn-
ast grimmu frumskógarlögmáli
götunnar undir handleiðslu
Perrys.
Yfirmaður þeirra félaga, leik-
inn af töffaranum Ving Rhames,
hefur fengið sig fullsaddan af
ruddaskap Perrys enda er um-
ræðan um ofbeldi að taka lög-
regluyfirvöld á taugum þar sem
réttarhöldin yfir lögreglumönn-
unum fjörum sem gengu í skrokk
á blökkumanninum Rodney King
eru í bakgrunni sögunnar og gefa
tóninn.
Rhames er eini maðurinn sem
hefur þorað að bjóða Perry og fé-
lögum birginn en sérsveitarmenn-
irnir standa saman sem einn mað-
ur og því mun sverfa til stáls áður
en ofstopamaðurinn Perry játar
sig sigraðan.
KURT RUSSELL
OG VING RHAMES
Takast á í Dark Blue þar sem
Rhames reynir að hemja of-
beldissegginn Eldon Perry sem
Russell leikur, en sá hikar ekki
við að beita fantabrögðum til
þess að halda uppi lögum og
reglu á götum Los Angeles.
Hörkutólið Kurt Russell:
Lumbrar á glæpamönnum
Fréttiraf fólki