Fréttablaðið - 19.06.2003, Qupperneq 28
19. júní 2003 FIMMTUDAGUR26
JOHNNY ENGLISH kl. 4 og 6
THE MATRIX R.. 5.30, 8, 10.30 b.i 12
BRINGING DOWN... kl. 3.45, 5.50, 8, 10.15
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10
Sýnd kl. 5.45 og 10 b.i. 12 ára
kl. 6NÓI ALBINÓI
kl. 6. 8 og 10RESPIRO
OLD SCHOOL
kl. 5.50, 8, 9.05, 10.15 10.15 Powersýning
Lúxus kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.15
TÖFRABÚÐINGURINN m/ísl. kl. 4
IDENTITY kl. 5.50, 8 og 10.10 b.i 16
kl. 8 b.i. 12
Sýnd kl. 5.45, 8, og 10.15 b.i. 12 ára
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
Sýnd í lúxus kl. 6 og 8.30
kl. 5.45, 8 og 10.15HOW TO LOSE A...
XMEN kl. 5 og 8 bi 12 SKÓGARLÍF 2 kl. 3.45
Fréttiraf fólki
Hún Díana Krall ætti að veraorðin píanóinu vön, enda hefur
hún leikið á það frá fjögurra ára
aldri. Hún byrjaði því líklegast að
spila skömmu eftir að hún lærði að
tala. Ástríðu hennar fyrir nótna-
borðinu svarthvíta erfði hún frá
föður sínum, sem og ástríðu hans á
djasstónlist. Herra Krall hefur alla
tíð verið mikill plötusafnari og
þakkar stúlkan honum iðulega fyr-
ir gott tónlistaruppeldi.
Snemma beygðist krókurinn og
Díana hóf að leika með skólasveit-
um á táningsaldri. Tónlistaráhug-
inn fór ekki framhjá kennurum
hennar og henni var veittur styrk-
ur til þess að stunda tónlistarnám í
Berklee-háskólanum, sem þykir þó
nokkur heiður.
Hún settist að í New York þar
sem hún vann sig upp metorðastig-
ann með stöðugri spilamennsku á
klúbbum. Bassaleikarinn og Ís-
landsvinurinn Ray Brown tók hana
undir sinn verndarvæng og lærði
hún mikið af honum. Fljótlega var
henni boðinn upptökusamningur í
Kanada sem leiddi til útgáfu henn-
ar fyrstu breiðskífu „Steppin’ Out“
árið 1993. Plötunni var vel tekið af
djassáhugamönnum og tryggði
hún sér bitastæðari samning í kjöl-
farið. Frá árinu ‘93 hefur hún nán-
ast gefið út eina plötu á hverju ári
í Bandaríkjunum. Best þótti henni
takast upp með plötuna „All for
You“ árið 1995 sem var óður til
tríós Nat King Cole.
Díana vann Grammy-verðlaun-
in árið 1999 sem besti djasssöngv-
ari ársins og var plata hennar frá
árinu áður „When I Look in Your
Eyes“ tilnefnd sem besta platan.
Hægt og rólega hefur hún verið
að renna inn á poppaðri mið. Út-
gáfa hennar á Billy Joel-laginu
„Just the Way You Are“ hefur svo
endanlega skotið henni upp á meg-
instrauminn. Það er að finna á síð-
ustu plötu hennar, tónleikaplötunni
„Live in Paris“, sem er hennar
söluhæsta frá upphafi.
Díana er trúlofuð Elvis Costello
en ekki er vitað hvort hann verði
með í för hingað á klakann. Miða-
sala er hjá skrifstofu Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands í Háskólabíó.
biggi@frettabladid.is
Miðar á tónleika djasssöngkonunnar Díönu Krall í Laugardalshöll í ágúst eru enn
fáanlegir. Þeir renna þó hratt út enda eru tónleikar Grammy-verðlaunahafans
sagðir einstök upplifun.
Maður á sextugsaldri, LouisZizza, réðst að strandvarða-
kroppnum Pamelu Anderson í
flugvél nú á dögunum, og það
tvisvar. Ástæðan var sú að hann
hélt hún væri ein af þeim fjöl-
mörgu stjörnum
sem hafa lýst yfir
andstöðu við
stríðið í Írak.
Zizza „sprakk
víst af reiði“
að sögn sjón-
arvotta og
flugfélagið
lét lögregl-
una vera til-
búna við
lendingu í
Los Angeles. Zizza segist nú að-
eins hafa látið í ljós skoðun og
skilur ekki umstangið, auk þess
sem hann segist ekki hafa verið
drukkinn né hafa öskrað. Hann
sér þó eftir atvikinu, sérstaklega
þar sem hann misskildi hver
Pamela var og vissi ekki að hún
hefði nýlega lýst yfir stuðningi
við hermenn í Írak, þó ekki bein-
um stuðningi við stríðið.
Nýr leikur í Tomb Raider-serí-unni vinsælu, þar sem hin
brjóstgóða Lara Croft murkar
lífið úr dýrum og
mönnum í leit
sinni að fornmun-
um, átti að koma
út þann 20. júní
í Bretlandi og
Bandaríkjun-
um. Það er
eftir miklar
tafir og bið,
en fjögur ár
eru síðan Lara
kleif síðast
upp sölu-
listana með
nýjum leik.
Nú hefur svo
háttsettur
maður hjá Eidos, útgáfufyrirtæki
Tomb Raider, sagt að frekari taf-
ir gætu átt sér stað, en framleið-
endurnir þurfa víst meri tíma til
að merja úr leiknum villur og
galla. Nýi leikurinn, Tomb
Raider: Angel of Darkness er
fyrsti leikur seríunnar sem kem-
ur út á nýrri kynslóð leikjatölva,
en hann verður fyrir Play-
Station2 og PC.
Staupasteinsleikarinn WoodyHarrelson, sem lék síðast í An-
ger Manage-
ment, er þekkt-
ur fyrir ást sína
á maríjúana-
plöntunni og af-
urðum hennar.
Sem mikill
hvatamaður
fyrir lögleið-
ingu kannabisreykinga hunsaði
hann algjörlega strangt reykinga-
bann sem búið er að setja á götum
New York-borgar af nýja borgar-
stjóranum Mike Bloomberg á
þeim forsendum að bannið næði
ekki yfir marjúana. Slúðurrit
segja Woody hafa reykt með vini
sínum og töframanni með meiru
David Blaine og nokkrum fyrir-
sætum í eftirpartíi Coldplay tón-
leika á Madison Square Garden.
Alhliða útgáfuþjónusta
Sími 565 9320
pjaxi@pjaxi.is
www.pjaxi.is
Hagkvæmari
prentun
KVIKMYNDIR Terminator-vélmennið
sem Arnold Schwarzenegger hefur
leikið í samnefndum myndum er
eins konar holdgervingur ógurlegs
afls og miskunnarlauss dauða. Nú
virðist það þó ætla að verða tákn
samkynhneigðar að auki, eða er að
reyna að verða það, að mati sumra.
Nýja myndin, Terminator 3: Rise Of
The Machines, hefst þannig á því að
nakinn Schwarzenegger gengur inn
á hommabar til þess að stela leður-
jakka og -buxum, á meðan erótískir
karldansarar striplast í bakgrunni.
En Arnold tekur fyrir að þetta atriði
sé sérstaklega gert til að höfða til
samkynhneigðra. Hann segir Term-
inatorinn iðulega í leðurklæðnaði og
síðast stal hann honum á mótorhjóla-
búllu. „Þetta lá bara vel við, en leður-
klæðnaður Terminatorsins er með
eftirminnilegri búningum kvik-
myndasögunar. Samkynhneigðir eru
hluti af samfélaginu og Terminator
er vel liðinn bæði af sam- og gagn-
kynhneigðum. Að líka við hann kem-
ur kynhneigð ekkert við.“ Term-
inator 3: Rise Of The Machines verð-
ur frumsýnd innan skamms en fram-
leiðendur hennar vilja meina hún sé
dýrasta mynd sögunar. ■
TERMINATOR
Leðurklæddur sálarlaus töffari, en til
hverra er verið að höfða?
Terminator 3:
Vélmennið sam-
kynhneigt?
DÍANA KRALL
Heldur tónleika í Laug-
ardalshöll 9. ágúst.
Miðasalan hófst á
mánudag og seldist
rúmlega helmingur
miðanna á fyrsta degi.
Við píanóið frá
blautu barnsbeini
Hyrjarhöfði 7, sími 567 8730/6937154
www.teflon.is
LAKKVÖRN
BRYNGLJÁI
Á BÍLINN!
Blettun-djúphreinsun-alþrif.
Mörkinni 6, sími 588 5518.
Opið 9-18 virka daga og 10-15 laugardaga.
Öðruvísi
síðar
stælkápur
Hattar og húfur
Nokkur pláss laus í sumar.
Bókaðu strax hjá Guðrúnu
í Keramik fyrir alla,
sími 552 2882 eða á
www.keramik.is
Hvernig fannst þér á sumar-
námskeiðinu fyrir skapandi
börn hjá Keramik fyrir alla?
Sigrún Ósk: Mjög gaman. Við
lærum mjög mikið í myndlist
og málum keramik líka.
Námskeið fyrir skapandi börn