Fréttablaðið - 19.06.2003, Qupperneq 29
FIMMTUDAGUR 19. júní 2003 27
SÍMI 553 2075
Sýnd kl. 4, 6 og 10 MATRIX REL. kl. 5.30, 8, 10.30 b.i. 12 KANGAROO JACK kl. 6 og 10
Sýnd kl. 8 Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
kl. 4, 6, 8 og 10ANGER MANAGEMENT
IDENTITY kl. 6, 8 og 10VIEW FROM THE TOP kl. 6, 8 og 10
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 Powersýning
Sýnd kl. 6, 8 og 10 bi 16. ára
Mikil leynd hvílir yfir nýjuHarry Potter-bókinni og
miklar ráðstafanir hafa verið
gerðar til að sporna gegn því að
upplýsingar um innihald hennar
leki út til almennings. Þetta
heppnaðist
þó ekki
betur en
svo að heil-
um 700.000
eintökum
af „Harry
Potter og
Fönixregl-
an“ var
stolið úr
vöruhúsi í
Englandi.
Maður sem
þóttist vera vöruflutningamaður
mætti á vörubíl og ók burt með
bókastaflann, en bíllinn fannst
svo síðar tómur. Virði bókana
var um 1,7 milljónir dollara, eða
rúmir 1,3 milljarðar íslenskra
króna. Einnig hefur lyftarastjór-
inn Donald Parfitt viðurkennt að
hafa stolið nokrum blaðsíðum
bókarinnar úr prentsmiðjunni.
Tónlistarmaðurinn Prince ætlarað gefa út plötu í dag. Á henni
verða aðeins fjögur lög og er hvert
þeirra akkúrat 14 mínútna langt.
Platan heitir „N.E.W.S.“ sem er
skammstöfun fyrir ensku orðin
„North, East, West og South“ en
það eru einmitt nöfn laganna.
Breiðskífan verður aðeins fáanleg í
gegnum heimasíðu kappans npg-
musicclub.com.
Prince gaf síðast út plötuna
„The Rainbow Children“ fyrir
tveimur árum síðan. Hana gaf hann
líka fyrst upphaflega bara út í
gegnum heimasíðu sína. Prince
hefur mikla óbeit á tónlistariðnað-
inum og forðast því plöturisana
eins og heitan eldinn. Enda hefur
hann brennt sig áður og neyddist til
dæmis til að skipta um listamanns-
nafn eftir að hann lenti í hörðum
deilum við plötuútgáfu sína, Warn-
er Brothers. Þá tileinkaði hann sér
tákn í stað nafns og var því titlaður
í fjölmiðlum, sem áttu ekki táknið í
gagnabönkum sínum, sem „lista-
maðurinn áður þekktur sem
Prince“. Hann var einnig mjög op-
inskár í baráttu sinni við fyrirtæk-
ið og kom iðulega fram með orðið
„Slave“ ritað á kinn sína.
Á heimasíðu hans er gestum
boðið upp á stutt sýnishorn af
væntanlegum DVD-disk sem inni-
heldur tónleikaupptökur frá Aladd-
in-hótelinu í Las Vegas. Hann verð-
ur gefinn út síðar á þessu ári. ■
PRINCE
Sérvitur lítill prakkari sem er í uppreisn gegn núverandi ástandi tónlistariðnaðarins.
Þemaplata hjá Prince:
Fer í allar áttir
Renee Zellweger, semkomst nýlega í frétt-
irnar vegna kleinu-
hringjaáts og gríðarlega
hárra launa fyrir fram-
hald myndarinnar um
hina léttlyndu Bridget
Jones, ætlar að flytja til
Bretlands til enn frek-
ari undirbúnings fyrir
hlutverk sitt. Hún vill
að ensk menning leiki
um hana svo auðveld-
ara verði að tileinka
sér hana. Hún ætlar
því að kaupa sér hús í
sveitinni og búa þar
allt þar til tökur hefj-
ast í febrúar, ef ekki
lengur.
Wu Tang Clan-meðlimurinnog rapparinn Ol’Dirty
Bastard, einnig þekktur sem Dirt
McGirt, spilaði á föstudaginn síð-
asta (þann 13.) á sínum fyrstu
tónleikum síðan hann kom úr
fangelsi fyrir 2 mánuðum. Það
gekk ekki skakkafallalaust en
áhorfendur þurftu að bíða heilan
klukkutíma eftir að hann léti sjá
sig. Eigandi klúbbsins bað alla að
bíða rólega, sagði að hann væri
ekki alveg tilbúinn á svið strax,
það þyrfti að þrífa hann. Að lok-
um tók hann þó lagið og flutti
marga af sínum helstu smellum,
en bað fólk að afsaka sig ef eitt-
hvað væri að klikka, hann væri
bara búinn að vera læstur inni of
lengi. Ol’Dirty Bastard er að
vinna plötu sem kemur út í ár. Á
henni nýtur hann hjálpar lista-
manna eins og The Neptunes og
Wu Tang-bróðursins RZA.
REIÐSKÓLINN ÞYRILL
REIÐSKÓLINN ÞYRILL