Fréttablaðið - 19.06.2003, Qupperneq 34
100 ÁRA „Við hittumst ekki á fæð-
ingardeildinni. Árný fæddist að
vísu þar en ég fæddist í heimahús-
um,“ segir Össur Skarphéðinsson,
formaður Samfylkingarinnar, en
hann og Árný Sveinbjörnsdóttir,
eiginkona hans, halda saman upp
á fimmtíu ára afmælið sitt í dag.
Það munar aðeins degi á þeim
hjónakornum í aldri en Össur
fæddist þann 19. júní 1953 og
Árný daginn eftir. Þau eru því að
verða samanlagt eitt hundrað ára
þó Össuri finnist vart við hæfi að
hafa slíkt í flimtingum. „Hún er
nú svo ungleg að það er varla
hægt að leggja árin okkar saman
og fá út 100.“
Þrátt fyrir þennan litla aldurs-
mun lágu leiðir Össurar og Árnýj-
ar ekki saman fyrr en í mennta-
skóla. „Ég sá hana fyrst þegar ég
var í þriðja bekk í MR. Ég var þá í
vélritunartíma þegar glæsilegur
hópur stúlkna kom askvaðandi inn
í stofuna til að fá lánaðar rit-
vélarnar okkar. Mér var ein þeirra
sérstaklega minnisstæð en við
kynntumst nokkru síðar þegar við
byrjuðum bæði á eðlisfræðibraut í
MR. Þetta er orðið 30 ára gamalt
samband og við erum mennta-
skólapar sem er enn á föstu.“
„Ég hef ekki haldið upp á af-
mælið mitt frá því ég komst á full-
orðinsárin. Ég gerði það síðast
þegar ég var 12 ára þannig að
þetta er alger nýlunda fyrir mig
og svolítið sérstök tilfinning. Mér
var svolítið órótt fyrst eftir að við
ákváðum þetta en nú er ég afskap-
lega glaður og er mikið afmælis-
barn í mér í dag.“
Árný segist, rétt eins og eigin-
maðurinn, ekki hafa gert mikið
með afmælið sitt hingað til. „Það
má eiginlega segja að afmælis-
veislur hafi ekki komið inn á okk-
ar heimili fyrr en með stelpunum
okkar og það má því alveg segja
að það sé kominn tími á okkur.“
Össur vakti athygli Árnýjar
strax á fyrsta árinu þeirra í MR.
„Ég man líka eftir honum úr
þriðja bekk og þá ekki síst fyrir
mjög vasklega framgöngu í
gangaslagnum.“
Ástin sem kviknaði í MR fyrir
30 árum lifir enn og það er degin-
um ljósara að afmælisbörnin
fimmtugu eiga vel skap saman.
„Ég veit ekki hvað stjörnuspek-
ingar segja um hjónaband tveggja
tvíbura“, segir Árný, „en sam-
band okkar hefur alltaf verið
ákaflega traust og gott.“
thorarinn@frettabladid.is
32 19. júní 2003 FIMMTUDAGUR
Mér finnst miklu fljótlegra að flettaupp í orðabókinni en áður, eftir
að ég uppgötvaði að orðin eru öll í staf-
rófsröð.
Pondus eftir Frode Øverli
Með súrmjólkinni
Afmæli
■ Hjónin Össur Skarphéðinsson og Árný
Sveinbjörnsdóttir eiga 50 ára afmæli
með eins dags millibili. Þau kynntust í
menntaskóla og hafa verið saman í 30
ár. Þau hafa ekki haldið sameiginlega
upp á afmæli sín áður en bjóða nú til
100 ára afmælis á Kjarvalsstöðum.
2. námskeið 23. - 27. júní
3. námskeið 30. júní - 4. júlí
4. námskeið 7. - 11. júlí
5. námskeið 14. - 18. júlí
Leikja- og ævintýranámskeið
Breiðabliks
Nýtt ævintýri hefst mánudaginn 23. júní
karnival – fjöruferð – íþróttir – ratleikur – söngur –
sund – bátakeppni – föndur o.fl.
Námskeiðið er allan daginn frá kl. 9 -16
Heitur matur í hádeginu og boðið upp á gæslu frá 8-9 og 16-17.
Verð 6.000 kr.
Upplýsingar í síma 510-6409
ithrottirogutilif@breidablik.is
www.breidablik.is
Afmæli samlyndra hjóna
13.30 Ásgeir J. Sandholt, bakarameist-
ari, verður jarðsunginn frá Hall-
grímskirkju.
13.30 Guðmundur Kristjánsson, Stór-
holti 26, Reykjavík, verður jarð-
sunginn frá Háteigskirkju.
13.30 Kristín Ingimundardóttir, Tjalda-
nesi 5, Garðabæ, verður jarðsung-
in frá Dómkirkjunni.
13,30 Sigurður Torfi Zoega, Hrafnistu,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Áskirkju.
13.30 Stefán Eiríkur Sigurðsson, Skipa-
sundi 88, Reykjavík, verður jarð-
sunginn frá Langholtskirkju.
■ Jarðarfarir
■ Andlát
Guðmundur Hermannsson, Háagerði
87, Reykjavík, lést 15. júní.
Guðrún Árnadóttir, Hrafnistu, Hafnar-
firði, lést 15. júní.
Gunnar Jónsson, bifreiðarstjóri, Dalvík,
lést 15. júní.
VIKUFERÐ TIL PRAG Í ÁGÚST
Þann 1. ágúst býður Ferðaskrifstofa
Guðmundar Jónassonar beint leiguflug með Flugleiðum
til hinnar fornfrægu og fögru
borgar Prag, höfuðborgar Tékklands. Heimflug til Íslands
er síðan þann 9. ágúst.
Verð á mann er krónur 73.700,-
ef gist er á Hotel Pyramida
Verð á mann er krónur 82.200,-
ef gist er á Hotel Bellagio
Innifalið í verði er flug, flugvallarskattar, akstur frá og að flugvelli, gist-
ing í tveggja manna herbergi, morgunverður, yfirgripsmikil skoðunar-
ferð um Prag og íslensk fararstjórn. Meðan á dvöl stendur verður boð-
ið upp á ýmsar dagsferðir með íslenskri leiðsögn sem bókast og
greiðast hjá fararstjórum.
Hotel Pyramida
er vel staðsett og vel útbúið fjögurra stjörnu hótel
skammt frá kastalahæðinni.
Hotel Bellagio
er nýtt fjögurra stjörnu hótel skammt frá gyðingahverf-
inu og gamla bænum.
Fararstjórar: Emil Örn Kristjánsson og Pétur Gauti Valgeirsson. Leitið
nánari upplýsinga hjá utanlandsdeild okkar.
Orlofsávísun VR gengur upp í greiðslu.
Ferðaskrifstofa
Guðmundar Jónassonar ehf.
Borgartúni 34
Sími 511 1515,
netfang: outgoing@gjtravel.is,
heimasíða: www.gjtravel.is
Er þér ekki
sama þó ég
sprengi mig í
loft upp?
NEI!!! Mér
er sko ekki
sama!
Er þér sama
þó ég hengi
mig?
NEI! Er þér samaþó ég reyki?
Já,
reyktu
eins og
þú vilt!
Þetta tekur
allt of langan
tíma!
Styttri en þú
heldur! Ég bíð
fyrir utan!
ÖSSUR OG ÁRNÝ
Bjóða vinum og velunnurum, gömlum og nýjum, að fagna tímamótunum með sér á Kjarvalsstöðum klukkan 20.30 í kvöld. „Þetta er
opið hús og það er öllum boðið,“ segir Össur og bætir því hróðugur við að þar sem hann hafi fæðst á kvenréttindadeginum verði húsið
skreytt með bleikum rósum í tilefni dagsins.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T