Fréttablaðið - 19.06.2003, Blaðsíða 37
SLYSAVARNIR Umferðarfulltrúi
Slysavarnafélagsins Landsbjargar
og Umferðarstofu og Björgunarfé-
lagið Blanda gerðu könnun á því
hve margir ökumenn notuðu bílbelti
á þjóðvegi 1 við Blönduós fyrir og
um síðustu helgi.
Í ljós kom að um 8% ökumanna
nota ekki bílbelti við akstur á þjóð-
vegi 1. Athygli vekur að beltanotk-
un var betri um helgina þegar fólk
var að fara í frí með fjölskyldunni
heldur en á virkum dögum.
Vekur það furðu að enn skuli fólk
aka bíl án þess að nota bílbelti í ljósi
þess að í nýútkominni skýrslu rann-
sóknarnefndar umferðarslysa er
það ein af ástæðum banaslysa í um-
ferðinni á síðasta ári.
Um liðna helgi var mikil umferð
á Norðurlandi og voru ökumenn
heldur mikið að flýta sér í góða
veðrinu. Við vonum að bílstjórar ró-
ist þegar líður á sumarið spenni
beltið og brosi framan í lífið og aðra
í umferðinni.
Góða ferð! ■
FIMMTUDAGUR 19. júní 2003 35
TÓNLIST Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands hefur næsta starfsár sitt
með glæsibrag þann 4. september
næstkomandi með viðhafnartón-
leikum Maxim Vengerov, sem er
án efa einn fremsti fiðluleikari
heims um þessar mundir.
Vengerov hélt eftirminnilega
einleikstónleika á vegum Listahá-
tíðar í Reykjavík síðasta vor og
heillaðist svo af landinu að hann
vildi ólmur koma hingað til frek-
ara tónleikahalds. Þessi önnur
heimsókn hans til landsins telst til
slíkra tíðinda að miðasala á tón-
leikana hefst strax í dag. Miðar
verða ekki teknir frá en þá má
kaupa á skrifstofu Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar og á heimasíðu henn-
ar www.sinfonia.is.
Maxim Vengerov er 28 ára
gamall. Hann vakti snemma at-
hygli fyrir leikni sína og var ekki
nema fjögurra ára þegar hann hóf
fyrst að leika á fiðlu og hefur á
ferli sínum hlotið fjölda viður-
kenninga, hreppt fyrsta sæti í tón-
listarkeppnum um víða veröld og
hlotið tvær Grammy-tilnefningar
svo eitthvað sé nefnt. ■
Bílbeltinn bjarga
ÍSLENSKU
LEIKLISTARVERÐLAUNIN
ÚTVARPSVERK ÁRSINS Stoðir samfélagsins eftir
Henrik Ibsen í þýðingu Einars Braga og í leikstjórn
Maríu Kristjánsdóttur. Hljóðvinnsla: Grétar Ævarsson.
BARNASÝNING ÁRSINS Völuspá eftir Þórarin Eld-
járn, í leikstjórn Peter Holst og í sviðsetningu
Möguleikhússins.
DANSVERÐLAUN ÁRSINS Erna Ómarsdóttir fyrir
Evu í þriðja veldi í sviðsetningu Dans leikhúss
með ekka.
DANSSÝNING ÁRSINS Eva í þriðja veldi í svið-
setningu Dansleikhúss með ekka.
BÚNINGAR ÁRSINS Þórunn Elísabet Sveinsdóttir
fyrir búningahönnun í Rómeó og Júlíu í sviðsetn-
ingu Íslenska dansflokksins, Leikfélags Reykjavíkur
og Vesturports.
LEIKMYND ÁRSINS Sigurjón Jóhannsson fyrir
leikmyndahönnun í sýningunni Sölumaður deyr í
sviðsetningu Leikfélags Reykjavíkur.
LÝSING ÁRSINS Björn Bergsteinn Guðmundsson
fyrir Grettissögu í sviðsetningu Hafnarfjarðarleik-
hússins og Hægan Elektra og Veisluna í sviðsetn-
ingu Þjóðleikhússins.
VINSÆLASTA SÝNINGIN Sellófon eftir Björk Jak-
obsdóttur.
TÓNLIST ÁRSINS Hjálmar H. Ragnarsson fyrir
frumsamda tónlist í Cyrano. Flutningur tónlistar:
Hljómsveitin Rússíbanar.
LEIKSKÁLD ÁRSINS Þorvaldur Þorsteinsson fyrir
handritið að leiksýningunni And Björk, of course...
í sviðsetningu Leikfélags Reykjavíkur.
LEIKKONA ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI Edda
Heiðrún Backman fyrir hlutverk sitt í Kryddlegnum
hjörtum í sviðsetningu Leikfélags Reykjavíkur.
LEIKARI ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI Ólafur Darri
Ólafsson fyrir hlutverk sín í Kvetch í sviðsetningu
Leikhópsins Á senunni og Rómeó og Júlíu í svið-
setningu Íslenska dansflokksins, Leikfélags
Reykjavíkur og Vesturports.
HEIÐURSVERÐLAUN Heiðursverðlaun Leiklistar-
sambands Íslands hlýtur Sveinn Einarsson fyrir
ævistarf í þágu leiklistar á Íslandi.
LEIKKONA ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI Edda
Heiðrún Backman fyrir hlutverk sitt í Hægan El-
ektra í sviðsetningu Þjóðleikhússins og Kvetch í
sviðsetningu Leikhópsins Á senunni.
LEIKARI ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI Hilmir Snær
Guðnason fyrir hlutverk sitt í Veislunni í
sviðsetningu Þjóðleikhússins.
LEIKSTJÓRN ÁRSINS Stefán Jónsson fyrir leik-
stjórn sína í leiksýningunni Kvetch í sviðsetningu
Leikhópsins Á senunni.
SÝNING ÁRSINS Leikhópurinn Á senunni fyrir
Kvetch eftir Steven Berkoff.
Sinfónían
■ Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur starfs-
ár sitt með glæsibrag í september með
tónleikum fiðluleikarans
Maxim Vengerov. Koma hans telst til
slíkra tíðinda að miðasala á tónleikana
hefst strax í dag.
1
7
8
10 11
12
14
18
15 16
13
17
2 3 4 5
9
6
MAXIM VENGEROV
Mun leika Symphony espagnole eftir
Edouard Lalo og Tzigane eftir Maurice Ra-
vel. Hljómsveitarverk á tónleikunum eru
eftir Victor Urbancic, Emmanuel Chabrier,
William Walton og Nikolaj Rimskíj-Korsa-
kov á viðhafnartónleikum Sinfóníunnar í
haust.
Vengerov snýr aftur
KANNA NOTKUN
Umferðarfulltrúi Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar og Umferðarstofu og Björgunarfé-
lagið Blanda fylgjast með því að ökumenn
noti bílbelti, sem margsannað er að bjarga
mannslífum.
Lausn:
Lárétt:1öskrar, 7starfa, 8kól,9ak,10
ullur, 12sa,14trosna,17taug,18varða.
Lóðrétt: 1öskustó,2stólar,3kall,4rr, 5
afar, 6rak,11ufsar, 13saga,15ota,16
nuð.
■ Krossgáta
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Hamleys.
Real Madrid.
Geirmundur Valtýsson.
Lárétt
l æpir, 7 vinna, 8 fraus, 9 keyr, 10 einn af
ásum, 12 átt, 14 slitna, 17 reipi, 18 vegvísir.
Lóðrétt
1 brunaleifar í arni, 2 húsgögn, 3 hróp, 4
tveir eins, 5 áar, 6 vísaði burt, 11 fiskar, 13
frásögn, 15 pota, 16 nöldur.
■ Leiðrétting
Að gefnu tilefni skal ítrekað að landvættirnar
fjórar eru Bush, Rumsfeld, Bjarnason og
Oddsson.