Fréttablaðið - 19.06.2003, Qupperneq 38
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
STEINUNNAR
STEFÁNSDÓTTUR
Mikil undur eiga sér stað umþessar mundir í veðurmálum
okkar Íslendinga. Rigningin er farin
að haga sér undarlega miðað við það
sem aðallega hefur þekkst hér á suð-
vestanverðu landinu. Það rignir stór-
um dropum, beint niður af himnum.
Það rignir lóðrétt eins og í útlöndum.
Þetta er heilmikið nýnæmi og kallar
á nýjar umgengnisreglur við rign-
inguna. Og hvað gerist? Fólk dustar
auðvitað rykið af regnhlífunum sín-
um og síkvikur regnhlífaskógurinn í
miðbænum gefur honum nýjan stór-
borgarbrag. Gaman.
HEIMA HJÁ MÉR hefur einmitt
safnast upp ógrynni af regnhlífum.
Þessar regnhlífar hafa verið keyptar á
ferðum í útlöndum þegar gert hefur
skyndilegar lóðréttar skúrir. Þeim hef-
ur svo verið pakkað niður í ferðatösk-
ur og farið með þær heim. Fyrst eftir
heimkomuna hefur maður stundum
ætlað að vera voðalega kosmópólítan
og tekið fram regnhlífina nýju í vætu-
tíð. Yfirleitt þó aldrei nema einu sinni
því fátt er minna heimsborgaralegt en
að standa í rífandi hvassviðri með
ranghverfa regnhlíf. Eftir svoleiðis
reynslu hefur regnhlífinni verið kom-
ið fyrir í fatahenginu þar sem hún hef-
ur dagað uppi með áður keyptum
systrum sínum.
SAFNIÐ hefur byggst upp á mörg-
um árum og er orðið dágott. Þarna
eru langar og rennilegar regnhlífar,
stuttar og kubbslegar og haganlegar
regnhlífar sem brjóta má saman og
geyma í tösku, allar keyptar eins og
andinn blés í brjóst í tiltekinni rign-
ingu í tilteknu landi. Ekki þarf að
taka fram að næst þegar farið er úr
landi gleymist að sjálfsögðu að fara í
regnhlífasafnið góða og kippa með
sér vel valinni regnhlíf.
NÚ HAFA ALLAR þessar regnhlíf-
ar allt í einu fengið hlutverk í hinu
nýja tíðarfari höfuðborgarsvæðisins.
„Mamma, hvar er rauða regnhlífin?“
„Hvar er regnhlífin með eplinu?“
Þessum spurningum rignir yfir mann
dag eftir dag meðan dropar falla af
himnum, lóðrétt. Regnhlífarnar eru
dregnar fram úr dimmustu skotum
fatahengisins og unglingsstúlkur
rölta út í rigninguna vel varðar, því
rigningin kemur að ofan. Það er ekki
laust við að maður sakni gamla góða
slagveðursins, eða hvað? ■
Regnhlífar fá
hlutverk
Fullkomin vörn með þeim
raka sem húðin þarfnast.
w
w
w
.js
h.
is
F le i r i ger› i r P ioneer b í l tækja á www.ormsson. is