Fréttablaðið - 20.06.2003, Síða 1

Fréttablaðið - 20.06.2003, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Tónlist 24 Leikhús 24 Myndlist 24 Bíó 28 Íþróttir 22 Sjónvarp 28 KVÖLDIÐ Í KVÖLD FÖSTUDAGUR 20. júní 2003 – 137. tölublað – 3. árgangur FÓTBOLTI Öll félög vilja Eyjólf bls. 22 AFMÆLI Dekur frá toppi til táar bls. 36 STA Ð R EY N D UM MEST LESNA DAGBLAÐIÐ Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í mars/apríl 2003 22,1% 52,3% 61,7% FR ÉT TA B LA Ð IÐ M O R G U N B LA Ð IÐ D V Kópavogsslagur FÓTBOLTI ÍBV tekur á móti FH í Landsbankadeild kvenna klukkan 20. Fjórir leikir fara fram í 1. deild karla á sama tíma. Þór tekur á móti Víkingi á Akureyrarvelli, Keflavík fær Leiftur/Dalvík í heimsókn, Stjarnan og Njarðvík mætast í Garðabæ og HK þarf ekki að fara langt til að sækja Breiðablik heim. Í nótt sefur dagurinn MYNDLIST Marý opnar myndlistar- sýningu sína „Í nótt sefur dagur- inn“ í versluninni 12 tónum á Skóla- vörðustíg klukkan 16.30. Flest verk- in eru olíumálverk þar sem leikið er með ýmis form. Á sama tíma og sama stað leikur hljómsveitin SK/UM fyrir gesti og gangandi. Blús og djass TÓNLIST Andrea Gylfa, Seth Sharp og Davíð Þór Jónsson halda tón- leika á fjölmenningarstaðnum Caffe Kulture í kvöld og hefjast þeir klukkan 23. Á dagskránni er blús og djass. FLÓÐ EFTIR HELLIRIGNINGU Það var engin smá rigning sem féll í New Orleans og nágrenni í gær. Atgangurinn var slíkur að eftir rigninguna í gær voru hlutar borgarinnar á floti eins og sjá má á þessari mynd. M YN D /A P REYKJAVÍK Norðvestan 5-10 m/s, skýjað með köflum og stöku skúrir, einkum síðdeg- is. Hiti 9 til 14 stig. VEÐRIÐ Í DAG + + VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 3-8 Skýjað 11 Akureyri 8-13 Skýjað 9 Egilsstaðir 3-8 Skýjað 10 Vestmannaeyjar 5-10 Bjartviðri 10 ➜ ➜ ➜ ➜ + + í fullum gangi Kringlu kast GATNAGERÐ Árni Johnsen, fyrrver- andi alþingismaður, hefur ritað bæjarstjórn Vestmannaeyja harð- ort bréf þar sem hann gagnrýnir oftöku bæjarins á gatnagerðar- gjöldum vegna húss síns, Höfða- bóls, í Vest- m a n n a e y j u m . Árni lýsir því í bréfinu að fimm árum eftir að hann flutti inn í hús sitt að Höfðabóli hafi r e i k n i n g a r borist frá bæn- um um að honum bæri að greiða svokölluð gatnagerðargjöld vegna gangstétta og þjónustu. Hann seg- ist þá hafa löngu fyrr fullgreitt öll gjöld og vísar til þess að hafa feng- ið þær skýringar að þetta væri með sama hætti og á Selfossi. Höfðaból stendur utan byggðar Vestmannaeyjabæjar og ætti að mati Árna að vera skilgreint við þjóðveg í þéttbýli og þar með bæn- um óviðkomandi. Árni segist hafa spurst fyrir og komist að því að slík gjaldtaka hefði ekki átt sér stað á Selfossi. Í bréfinu lýsir hann því að hann hafi rætt málið við Guðjón Hjörleifsson, þáverandi bæjarstjóra, sem hafi sagt að gjaldtakan væri hvergi annars staðar á landinu innheimt utan þéttbýlis. Höfðaból stendur utan þéttbýlis í Eyjum og Árni segir að ekki standi til að leggja þar gang- stéttir. Árni staðhæfir að Guðjón hafi margsagt sér að ekki stæði til að innheimta gjaldið. Hann er harðorður í garð flokksbróður síns og arf- taka á Alþingi. „Hringlið í fyrrum bæj- arstjóra í þessum efnum er einnig með ólíkindum. Hann hafði margsagt við mig og fleiri Ofan- byggjara að þetta gjald yrði ekki innheimt, það væru mistök,“ segir í bréfi Árna. Seinna í bréfinu ber hann fram þá ósk að „þessu áreiti“ bæj- aryfirvalda ljúki. Mál þetta var tekið fyrir á fundi bæjarráðs fyrr í þessum mánuði. Þar lagði meirihlutinn til að af- greiðslu málsins yrði frestað og „bæjarstjóra verði falið að kanna hvaða útgjöld bæjarsjóð- ur hefur orðið fyrir vegna gatnagerðarframkvæmda við hvert eitt hús sem deilurnar standa um, enn fremur hvaða fjárhæðir deilt er um, hvernig gatnagerðargjöldum hjá öðrum sem bréfritari nefnir er háttað, og hvern- ig þau mál voru afgreidd hjá bæjarsjóði“. Í ályktun meirihlutans er skorað á fyrrverandi bæjar- stjóra að upplýsa fyrir næsta bæj- arráðsfund „hvort og þá hvaða lof- orð hafi verið gefin“. Guðjón hafði ekki svarað þessu á síðasta fundi en þá var ítrekuð sú krafa að hann svaraði ávirðingum Árna Johnsen. rt@frettabladid.is Alþjóðahvalveiðiráðið: Hvalveiði- þjóðum ögrað BERLÍN, AP Minoru Morimoto, for- maður japönsku sendinefndarinn- ar á ársfundi Alþjóðahvalveiði- ráðsins í Berlín, lét enn liggja að því við lok ársfundarins að Japanir myndu segja sig úr ráðinu vegna þess hversu áhrifamiklar hvalfrið- unarþjóðir séu orðnar innan þess. Hann sagði líklegt að fundarins í ár yrði minnst fyrir það að þjóð- um sem vildu veiða úr stórum hvalastofnum hefði verið ögrað til að kanna aðrar leiðir til að tryggja að þær nytu sögulegs réttar síns. Hann beindi gagnrýni sinni sér- staklega að Bandaríkjamönnum, sem voru í fararbroddi þeirra sem beittu sér gegn hvalveiðum. Þeir hefðu snúið við blaðinu eftir að ráðið hefði samþykkt hvalveiði- kvóta til handa frumbyggjum í Alaska. ■ Árni Johnsen sakar samherja um hringl Í bréfi þingmannsins fyrrverandi til bæjarstjórnar Vestmannaeyja er því lýst að bæjaryfirvöld áreiti hann stöðugt með kröfu um óréttmætt gangstéttargjald. Árni Johnsen er þreyttur á hringlandahætti Guðjóns Hjörleifssonar, fyrrverandi bæjarstjóra. „Hringlið í fyrrum bæjar- stjóra í þess- um efnum er einnig með ólíkindum. VIÐSKIPTI Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, varaþingmaður Samfylk- ingarinnar, hyggst nota sumarið til að velta fyrir sér framtíðar- stöðu sinni í flokknum. „Það er margt í stöðunni. Spurningin snýst um formennsku, varafor- mennsku, formennsku í fram- kvæmdastjórn flokksins eða að láta mér nægja að vera formaður í framtíðarnefnd,“ segir Ingi- björg. Á flokksfundi Samfylkingar- innar í gær lýsti Ingibjörg því yfir að hún myndi gegna þeim störfum sem flokksmenn fælu henni og hygðist sækja umboð sitt til landsfundar. Sumir stuðnings- menn hennar túlkuðu það sem vísbendingu um að hún kynni að gefa kost á sér í embætti for- manns. „Ég ákveð þetta ekki og tel ótímabært að ræða það frekar núna, enda er langt í landsfund- inn. Mér liggur ekkert á og ég ætla að nota sumarið í að hugsa. Hins vegar hef ég engan áhuga á því að efna til formannsslags í Samfylkingunni, það er ekki það sem hún þarf,“ segir hún. Össur Skarphéðinsson, sitjandi formaður, hefur lýst því yfir að hann muni bjóða sig fram að nýju til formanns á komandi lands- fundi flokksins í haust. Þá hefur Margrét Frímannsdóttir varafor- maður gefið í skyn að hún kunni að draga sig í hlé. ■ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hyggst íhuga framtíð sína í sumar: Útilokar ekki formannsframboð ÁRNI JOHNSEN Ósáttur við „hringl- andahátt“ fyrrver- andi bæjarstjóra. bíó o.fl. bakkabræður ● disneystrákurinn En La Puta Vida: ▲ SÍÐUR 26-27 Óvæntur smell- ur frá Úrúgvæ Söngferðalag SÖNGVAKA Fyrsta söngvaka sum- arsins á vegum Minjasafnsins á Akureyri hefst í Minjasafnskirkj- unni klukkan 20.30. Á söngvökum er farið í söngferðalag um íslenska tónlistarsögu. Flytjendur eru Íris Ólöf Sigurjónsdóttir og Hjörleifur Hjartarson.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.