Fréttablaðið - 20.06.2003, Side 2

Fréttablaðið - 20.06.2003, Side 2
2 20. júní 2003 FÖSTUDAGUR Alveg eins. Ásgeir Elíasson þjálfar nýliða Þróttar í úrvalsdeild karla. Liðið hefur unnið þrjá leiki í röð, nú síðast gegn Fylki, og er í þriðja sæti eftir fimm umferðir. Spurningdagsins Ásgeir, áttirðu von á þessu? FASTEIGNIR Hæstiréttur hefur gert erfingjum Einars Sigurðssonar, útgerðarmanns í Vestmannaeyj- um, að greiða Samtökum um kvennaathvarf 4,5 milljónir króna með dráttarvöxtum vegna kaupa á húseigninni við Bárugötu 2 í Reykjavík. Samtök um kvennaathvarf stefndu erfingjum Einars Sig- urðssonar útgerð- armanns og kröfðu þá um greiðslu 4,5 milljóna króna, sem var mismunur þess verðs sem þau greiddu fyrir húseign á Báru- götu og rétts markaðsverðs eign- arinnar á þeim tíma. Kvennaathvarfið keypti húsið af nunnureglu St. Jósefssystra. Því er haldið fram að nunnurnar hafi vísvitandi selt húsið á undir- verði. Mismunurinn var sagður hugsaður sem styrkur til Kvennaathvarfsins. Erfingjar Einars Sigurðssonar áttu hins vegar forkaupsrétt að húsinu og neyttu hans að undan- gengnu dómsmáli gegn Kvenna- athvarfinu. Kvennaathvarfið keypti húsið á 39 milljónir króna í nóvember árið 2000. Í dómsmálinu vegna forkaupsréttarins kom hins veg- ar fram það álit dómkvaddra matsmanna að markaðsverð hússins hefði verið 43,5 milljónir króna. Í nóvember í fyrra krafðist lögmaður Kvennaathvarfsins, Jón Steinar Gunnlaugsson, þess að erfingjarnir greiddu mismun- inn. Þeirri kröfu var ekki svarað. Því stefndi Kvennaathvarfið erf- ingjunum til greiðslu upphæðar- innar. Hæstiréttur hefur nú fall- ist á kröfu samtakanna. Erfingj- arnir fá nú húsið á markaðsverði en Kvennaathvarfið fær gjöfina frá nunnunum eins og ætlunin var í upphafi. Í dómi Hæstaréttar segir að auðgun erfingjanna hafi verið óréttmæt þar sem eigandinn hafi ekki tekið ákvörðun um að styrkja erfingjana fjárhagslega. rt@frettabladid.is DÓMUR Hæstiréttur dæmdi í gær karlmann á sjötugsaldri í eins mánaðar fangelsi skilorðisbundið og svipti hann ökuleyfi í eitt ár. Maðurinn var dæmdur fyrir manndráp, líkamstjón af gáleysi og brot á umferðarlögum. Með þessu staðfestir Hæstiréttur dóm Héraðsdóms Suðurlands. Málsatvik eru þau að í janúar 2002 ók maðurinn fólksbifreið austur Suðurlandsveg á röngum vegarhelmingi á þeim vegarkafla þar sem vegurinn liggur í all- krappri beygju ofarlega í Kömb- um, án nægilegrar aðgæslu miðað við akstursskilyrði. Afleiðingarn- ar urðu þær að bifreiðin skall framan á jeppabifreið sem ekið var í vestur. Við árekstur bifreiðanna hlaut farþegi í framsæti bifreiðar mannsins svo mikla áverka að hann lést nær samstundis auk þess sem farþegar í báðum bif- reiðum urðu fyrir líkamstjóni. Að mati Hæstaréttar er það talið sannað að maðurinn hafi ekið bif- reiðinni án nægilegrar aðgæslu við slæm akstursskilyrði í krappri beygju og á röngum vegarhelm- ingi þegar áreksturinn varð. Ákærða er gert að greiða allan sakarkostnað í héraði og áfrýjun- arkostnað málsins, þar með talið málsvarnarlaun verjanda síns á báðum dómsstigum. Það eru sam- tals 400 þúsund krónur. ■ Suður-Írak: Fimmtungur mjög fátækur BAGDAD, AP Einn af hverjum fimm íbúum suðurhluta Íraks glímir við mjög mikla fátækt. Þetta er niður- staða Matvælaáætlunar Samein- uðu þjóðanna. Könnun hennar hefur leitt í ljós að 4,6 milljónir af 22,3 milljónum íbúa í sunnan- verðu Írak þurfa að reiða sig á matargjafir. Jafnvel þær duga ekki til þess að fullnægja matar- og vatnsþörfum fólks. Eins slæmt og ástandið er nú telja fulltrúar Matvælaáætlunar- innar að ástandið geti enn átt eftir að versna. Vísa menn þá sérstak- lega til þess að óstöðugleikinn eft- ir fall Íraksstjórnar hafi haft slæm áhrif á stöðu efnahagsmála. ■ Sjómaðurinn í Dubai: Fátt um svör FARBANN Flosi Arnórsson, sjómað- urinn í Dubai, er ekki enn viss um hvenær mál hans verður tekið fyrir. Hann segist ekki lengur taka mark á því þegar lögmaður hans segir að biðin sé farin að styttast, en samkvæmt lögmann- inum ætti biðinni um að mál hans verði tekið fyrir að vera lokið eða ljúka á næstu dögum. Í vikunni stytti Flosi sér stund- ir í sundi í 48 stiga sól, sem var heldur heitt að hans mati. ■ Femínistabolir seldust vel: Manneskja ekki söluvara FEMÍNISTAR „Það þýðir ekkert að setja gínurnar í bolina, því þá þurfum við bara alltaf að vera að rífa þær úr,“ segir Jóhanna Sigurð- ardóttir, af- greiðslukona í versluninni GK á Laugavegi. Bleik- ir bolir með ýms- um áletrunum sem tengjast femínisma seld- ust mjög vel í búðinni, en í gær- dag voru einungis fáeinir bolir eftir. M i s m u n a n d i áletranir eru á bol- unum, en meðal áletrana má nefna „Ég er femínisti“ og „Manneskja ekki söluvara“. Að sögn Jóhönnu voru það nær eingöngu konur sem festu kaup á femínistabolum. ■ Ránið í Biðskýlinu: Lögga leitar ræningja RÁN Enginn er grunaður sem stendur vegna vopnaðs ráns í söluturninum Biðskýlinu við Kópavogsbraut. Á miðvikudag komu tveir menn inn í söluturninn, báðir með hníf. Annar lagði hníf að þind afgreiðslustúlku og sagði henni að koma með peningana. Hún sagði hnífinn vera eins konar „rambó- hníf“ með um það bil tuttugu sentímetra blaði. Að sögn Þóris Steingrímssonar hjá rannsóknarlögreglunni í Kópa- vogi er ekki enn vitað hverjir voru að verki. Unnið er hörðum hönd- um að rannsókn málsins. ■ HVALVEIÐAR „Þessi niðurstaða er eft- ir öðru og kemur ekki sérstaklega á óvart,“ segir Árni Mathiesen sjáv- arútvegsráðherra um niðurstöðu atkvæðagreiðslu í Alþjóðahval- veiðiráðinu þar sem ráðið greiddi atkvæði gegn vísindaveiðum á hval. Árni bendir hins vegar á, að hann telji skýrslu Vísindanefndar ráðsins að mörgu leyti jákvæða fyr- ir Íslendinga. „Það sem ég hef heyrt af skýrslu Vísindanefndar- innar er jákvætt,“ segir Árni, „sér- staklega varðandi hrefnustofninn. Í skýrslunni er sagt að hrefnustofn- inn myndi þola veiðar bæði okkar og Norðmanna.“ Þrátt fyrir að ekkert sérstakt hafi gerst á fundinum sem hann hafi ekki átt von á, að sögn Árna, er hann ekki reiðubúinn að lýsa því yfir að Íslendingar muni hefja vís- indaveiðar. „Það er ekki þar með sagt,“ segir Árni. „Við verðum að skoða afstöðu Vísindanefndarinnar, afstöðu ráðsins og afstöðu einstakra ríkja til þessara atriða sem skipa máli áður en ákvörðun er tekin.“ Hann segir markmiðið að kom- ast að niðurstöðu sem fyrst. „Það er best fyrir alla.“ ■ HÆSTIRÉTTUR Dæmdi mann á sjötugsaldri fyrir að valda mannsláti með því að keyra án nægilegrar aðgæslu. Sakfelldur fyrir að valda dauða farþega í bíl sínum: Maður dæmdur fyrir manndráp af gáleysi FLOSI ARNÓRSSON Hér er Flosi ásamt norska konsúlnum í Dubai, Thor Haseid. Auðgun erfingja dæmd óréttmæt Hæstiréttur dæmdi erfingja Einars Sigurðssonar til að greiða Samtök- um um kvennaathvarf 4,5 milljónir króna. Í dómsorði segir að nunn- urnar hafi ekki ætlað að styrkja erfingjana fjárhagslega. BÁRUGATA 2 Erfingjarnir halda húsinu en verða að greiða Samtökum um Kvennaathvarf þá upphæð sem munar á kaupverði og markaðsverði. ■ Samtök um kvennaathvarf stefndu erfingj- um Einars Sig- urðssonar út- gerðarmanns. ÁRNI MATHIESEN Segir ætla að taka ákvörðun um vísindaveiðar sem fyrst. Sjávarútvegsráðherra um niðurstöðu Alþjóðahval- veiðiráðsins: Kemur ekki á óvart Fáskrúðsfjörður: Rambaði á gröf afa síns FERÐAMENN Franskur siglinga- kappi gekk fram á gröf týnds afa síns á Fáskrúðsfirði í fyrradag, en hann var þar ásamt löndum sínum sem taka þátt í siglingakeppninni „Skippers d’Islande“. Fjölskylda franska sjómannsins hefur ekki vitað til þessa hver örlög hans voru, önnur en þau að hann fórst annað hvort við strendur Íslands eða Nýfundnalands. Að því er fram kemur á vef- miðlinum faskrudsfjordur.is var afinn einn 4-5.000 skútusjómanna sem hafa týnst á Íslandsmiðum og eru grafir þeirra víða um suður- og austurströndina. ■ FEMÍNISTA- BOLUR Bolir með áletr- unum sem tengj- ast femínisma hafa selst mjög vel í versluninni GK á Laugavegi. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.