Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.06.2003, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 20.06.2003, Qupperneq 4
4 20. júní 2003 FÖSTUDAGUR Hvernig líst þér á ráðningu Ás- geirs Sigurvinssonar sem lands- liðsþjálfara? Spurning dagsins í dag: Á Ísland að segja sig úr Alþjóðahval- veiðiráðinu? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 7,7% 19,4% Frekar illa 11,7%Mjög illa Frekar vel 61,2%Mjög vel Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is Hugsanlegar vísindaveiðar á hrefnu: Ekki vitað hverjir fengju að veiða HVALVEIÐAR Að sögn Árna Mathiesen sjávarútvegsráðherra hefur ekki verið tekin nein ákvörðun um það hvernig útdeilingu veiðileyfa yrði háttað ef til hrefnuveiða kemur. Árni bendir á að um vísindaveiðar yrði að ræða, a.m.k. fyrst um sinn, og því yrði líklega ekki notast við kvótakerfi í þessum veiðum. Jón B. Jónasson, skrifstofustjóri í sjávarútvegsráðuneytinu, bendir á að í tilviki vísindaveiða sé ekki ólíklegt að Hafrannsóknastofnun muni hafa umsjón og eftirlit með veiðunum. „Stundum þegar hún hefur gert slíka hluti hefur hún ein- faldlega boðið út verkefnið,“ segir Jón. Hann leggur þó áherslu á að málið hafi ekki verið rætt. Hrefnubátar notuðu ekki mikinn útbúnað til að veiða hrefnu á sínum tíma, og ef notast yrði við sambæri- legan útbúnað nú, sem felst einkum í byssu sem sett er framan á bátinn, ættu hrefnuveiðar að geta hafist með skömmum fyrirvara. „En hins vegar gætu menn ef til vill hugsað sér að hafa stærri báta í þessu nú og aðrar aðferðir,“ segir Jón. „Norðmenn eru til dæmis með stærri skip í hrefnuveiðum. Við höfum ekkert fetað okkur áfram í þessu síðan þetta lagðist af hér á landi.“ ■ Neyðarhnappur kom ekki að notum Neyðarhnappur virkaði ekki þegar afgreiðslustúlka ýtti á hann í vopnuðu ráni í söluturni við Kópavogsbraut. Markaðsstjóri Securitas segir fyrirtæk- ið ekki bera ábyrgð þar sem aðeins sé um tengingu við stjórnstöð að ræða. ÖRYGGI „Neyðarhnappurinn var ekki tengdur öryggiskerfi sölu- turnsins,“ segir Bjarni Ingólfs- son, markaðsstjóri Securitas, um ástæður þess að engin boð bárust til Securitas þegar vopnað rán var framið í s ö l u t u r n i n u m við Kópavogs- braut á miðviku- daginn. Í yfirlýsingu frá Securitas kemur fram að u m r æ d d u r neyðarhnappur hafi ekki verið tengdur innbrotskerfi Securitas. Upphaflega hafi hann verið tengdur en það hafi breyst eftir að aðrir tóku við þjónustu og við- haldi kerfisins. Árið 2002 var kerfið aftur tengt við stjórnstöð Securitas. Í millitíðinni hafi neyð- arhnappurinn verið aðskilinn frá öryggiskerfi söluturnsins. Þegar aftur var tengt til Securitas hafi hnappurinn ekki lengur verið tengdur og sé það ástæða þess að engin boð bárust þrátt fyrir að ýtt væri á hnappinn. Bjarni segir Securitas gera mismunandi samninga við við- skiptavini sína. Hægt sé að kaupa tengingu við stjórnkerfið eitt og sér. Hins vegar sé líka í boði, ásamt tengingu, viðhald og þjón- usta. Í þeim tilfellum sjái Securitas um að yfirfara öryggis- kerfið reglulega og taki ábyrgð á ástandi þess. Í þessu tilfelli sé ein- ungis um tengingu þangað að ræða ekki viðhald. Undanfarið hafa afbrot af þessu tagi færst í vöxt ásamt aukinni hörku. Því vill Securitas hvetja eigendur söluturna og annarra staða sem hafa orðið bitbein af- brotamanna af þessu tagi til að fara vandlega yfir sín öryggismál til að búa starfsfólki eins mikið ör- yggi og hægt er. „Við megum ekki keyra í forgangsakstri. Því er ekki tryggt að við komum á staðinn áður en nokkuð gerist. Bílar frá okkur geta verið í stuttu færi frá viðkomandi stað þar sem þeir eru alltaf á ferðinni. Þegar brotist var inn í Hans Petersen á sínum tíma tók okkur um fjörutíu sekúndur að koma á staðinn. Í samanburði við önnur öryggisfyrirtæki um heim allan erum við með mjög stuttan viðbragðstíma,“ segir Bjarni. Eigendur söluturnsins og sá sem hefur séð um viðhald örygg- iskerfisins undanfarin ár segja takkann aldrei hafa verið aftengd- an, heldur hafi verið bilun sem ekki kom fram, en því verði hins vegar kippt í liðinn. Gott sé að umræða um þetta fari af stað til að minna aðra á að ganga úr skugga um að sá öryggisbúnaður sem er til staðar sé í lagi. hrs@frettabladid.is Borgin hyggst spara 500 milljónir króna: Færri símtöl og ferðalög SVEITARSTJÓRNIR Reykjavíkurborg hyggst spara 500 milljónir króna með hagræðingu. Mesti niðurskurðurinn í krón- um talið er í stærstu málaflokkun- um. Í fræðslumálum á að draga úr útgjöldum um 200 milljónir. Und- ir liðnum lausafjárkaup, sem er kaup á ýmsum búnaði, á að spara 120 milljónir. Þá eiga 50 milljónir að dragast frá Félagsþjónustunni og sama upphæð frá Íþrótta- og tómstundaráði. Þriggja manna nefnd borgar- fulltrúanna Stefáns Jóns Hafstein og Árna Þórs Sigurðssonar auk Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra, síðar Þórólfs Árna- sonar, segir þróunina hafa verið þannig í nokkrum kostnaðarliðum að rétt væri að beina því til stjórn- enda að skera þá niður um 20%. Þetta eigi til dæmis við um síma- og fjarskiptakostnað, ráðstefnur, fundahöld, risnu og auglýsingar. Þá er lagt til að ferðakostnaður verði lækkaður um 30% og að dregið verði úr útgjöldum vegna aðkeypts sérfræðikostnaðar um 5%. Nefndin segir að örugglega sé gott svigrúm til að draga úr kostn- aði „þótt örugglega megi finna því stað að gengið sé hart nærri eðli- legri og þarfri starfsemi.“ ■ STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON Kosningabarátta Vinstri grænna kostaði samtals um 32 milljónir. Kosningabarátta Vinstri grænna: Kostaði 32,4 milljónir KOSNINGABARÁTTA Vinstrihreyfing- in – grænt framboð hefur sent frá sér bráðabirgðauppgjör vegna ný- afstaðinnar kosningabaráttu. Samkvæmt því varði flokkurinn 32 milljónum og 449 þúsund krón- um til baráttunnar. Stærsti liðurinn var 15,5 millj- ón króna styrkur til kjördæmafé- laga vegna kostnaðar við kjör- dæmabundin verkefni, en næst- mestur var kostnaður vegna aug- lýsinga, sem nam 6,6 milljónum króna. Kostnaður vegna hönnunar á auglýsingum var 2,7 milljónir. Kosningabaráttan fór 1,5 millj- ónir króna fram úr áætlun. ■ Bílvelta í Oddsskarði: Bílbeltin björguðu UMFERÐARSLYS Bíll lenti utan vegar og valt í Blóðbrekkum í Odds- skarði. Klippa þurfti ökumanninn úr bílnum. Hann var í bílbelti og slapp lítið meiddur. Að sögn lög- reglunnar í Neskaupstað er með ólíkindum hvað ökumaðurinn slapp vel, þarna hafi bílbeltin sannað sig. Bíllinn er gjörónýtur og var fluttur af staðnum með dráttarbíl. ■ BJARNI INGÓLFSSON, MARKAÐSSTJÓRI SECURITAS Bjarni bendir eigendum söluturna og annarra staða á að ganga úr skugga um að öryggis- búnaður sé virkur. „ Í saman- burði við önn- ur öryggisfyr- irtæki um heim allan erum við með mjög stuttan viðbragðs- tíma. RÁÐHÚS REYKJAVÍKUR Nefnd um sparnað í borgarkerfinu segir í greinargerð með tillögum sínum að sér- stök þörf sé á að setja þak á símakostnað og farsímanotkun starfsmanna. Skilgreina beri þörf fyrir ferðir og fundahöld strangar. HVALVEIÐIBÁTAR Bátarnir eru í viðbragðsstöðu í Reykjavíkurhöfn ef til veiða á stærri hvölum kemur. Ekki þarf jafn mikinn útbúnað til veiða á hrefnu. HARRY SCHMIDT Varpaði sprengjum á kanadísku hermenn- ina eftir að hafa verið varaður við því að vinveittar hersveitir væru á svæðinu. Herflugmenn: Ekki réttað WASHINGTON, AP Tveir bandarískir flugmenn verða ekki leiddir fyrir herrétt fyrir að hafa varpað sprengjum á kanadíska hermenn í Afganistan. Ákvörðun bandaríska flughersins þessa efnis vakti furðu og reiði í Kanada þar sem margir vildu að flugmennirnir yrðu ákærðir fyrir að valda dauða fjögurra hermanna. Flugmennirnir tveir höfðu ver- ið kærðir fyrir manndráp af gá- leysi. Ef réttað hefði verið í máli þeirra hefðu þeir getað fengið allt að 64 ára langan fangelsisdóm. ■ KARLAR L U J T Mörk Stig KR 5 3 1 1 6:6 10 ÍBV 5 3 0 2 11:7 9 Fylkir 5 3 0 2 9:4 9 Þróttur 5 3 0 2 8:7 9 KA 5 2 2 1 8:6 8 FH 5 2 2 1 7:5 8 ÍA 5 1 3 1 5:4 6 Valur 5 2 0 3 7:9 6 Grindavík 5 1 0 4 5:10 3 Fram 5 0 2 3 4:12 2 ÍBV 5:0 Fram Samkynhneigðir Bandaríkjamenn: Giftast í Kanada DETROIT, AP Samkynhneigð banda- rísk pör eru farin að notfæra sér þann möguleika að geta ferðast yfir landamærin að Kanada og láta gefa sig saman í borginni Windsor í Ont- ario. Dómstóll í Ontario úrskurðaði í síðustu viku að stjórnvöldum væri ekki stætt á því að skilgreina hjóna- band sem samband karls og konu. Síðan þá hafa 13 samkynhneigð pör gengið í hjónaband. Þrjú paranna koma frá Bandaríkjunum og fleiri munu vera á leiðinni. Úrskurður dómstólsins gildir aðeins í Ontario en stjórnvöld hyggjast breyta lögum svo samkyn- hneigðir geti gengið í hjónaband hvar sem er í Kanada. ■ Hæstiréttur: Dómur fyrir kynferðis- brot DÓMSMÁL Hæstiréttur dæmdi mann í eins árs fangelsi, þar af níu mánuði skilorðsbundið, fyrir að hafa haft samræði við stúlku sem ekki gat spornað við verknað- inum vegna ölvunar og svefn- drunga. Héraðsdómur hafði áður dæmt manninn í tólf mánaða fangelsi, allt skilorðsbundið. Framburður stúlkunnar var talinn trúverðugur en framburður mannsins aftur á móti ekki. Hann kvað þau hafa haft samræði með hennar vilja. Hæstiréttur taldi næga sönnun þess að maðurinn hefði brotið 196. grein hegningar- laga og þyngdi dóminn. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.