Fréttablaðið - 20.06.2003, Síða 8
8 20. júní 2003 FÖSTUDAGUR
■ Evrópa
Engin lánastarfsemi
Símanum var lokað hjá mér.
Elín Ása Ólafsdóttir. Morgunblaðið, 19. júní.
Þjóðtrúin blívur
Það er jafnan stórhætta á ferð-
um þegar álagablettum sem
þessum er raskað af manna-
völdum.
Eyjólfur Guðmundsson, sem veit lengra
nefi sínu um dulræn mál. DV, 19. júní.
Vel nýtt hátíðlegt tækifæri
Getur einhver í
fullri alvöru hald-
ið því fram að hún
hafi verið skýr
eða skynsamleg?
Davíð Oddsson um sjávar-
útvegsumræðu í kosninga-
baráttunni. Þjóðhátíðar-
ræða 17. júní.
Orðrétt
NEW HAMPSHIRE, AP „Hann blekkti
hvert og eitt einasta okkar,“ segir
John Kerry öldungadeildarþing-
maður um George W. Bush
Bandaríkjaforseta og yfirlýsingar
hans í aðdraganda innrásarinnar í
Írak. Kerry segir Bush hafa geng-
ið á bak orða sinna um að byggja
upp samstöðu á alþjóðlegum vett-
vangi og það sé ein ástæða þess að
Kerry sækist eftir forsetaemb-
ættinu.
Kerry er einna sigurstrangleg-
astur þeirra níu frambjóðenda
sem hafa tilkynnt að þeir sækist
eftir útnefningu Demókrata-
flokksins fyrir forsetakosning-
arnar á næsta ári. ■
Níu ára stúlka:
Giftist hundi
INDLAND, AP Á annað hundrað gesta
mættu í brúðkaup níu ára stúlku í
austanverðu Indlandi sem giftist
flækingshundi. Með brúðkaupinu
átti að bægja frá henni mikilli
ógæfu. Ógæfuna sáu foreldrar
stúlkunnar fyrir þegar tönn óx á
innanverðum gómi hennar. Slíkt
þykir boða ógæfu á þessum slóð-
um en forða má henni með því að
gifta stúlkur.
Venjulega hefði stúlkan gifst
strák en þar sem foreldrar hennar
eru fátækir höfðu þau ekki efni á
því. Faðir hennar brá því á það
ráð að gifta hana flækingshundi.
Ákveði stúlkan að giftast aftur
síðar þarf hún ekki að sækja um
skilnað við hundinn. ■
BYGGÐAKVÓTI „Nú þegar sveitar-
stjórnin á Kópaskeri fer fram á
meiri byggðakvóta vegna gjald-
þrots rækjuverksmiðjunnar, þá
finnst mér rétt að það komi fram
að Kópasker fékk byggðakvóta
fyrr á árinu, sem hefur ekki verið
nýttur í sveitarfélaginu,“ segir
Pétur Geir Helgason, sjómaður á
Kópaskeri. Pétur segir að þvert á
móti hafi kvótinn sem ætlaður var
Kópaskeri allur farið til útgerðar
á Raufarhöfn.
Elvar Árni Lund, sveitarstjóri
á Kópaskeri, sagði í blaðinu í gær
að kvótinn sem merktur var
Kópaskeri hafi farið til útgerðar
Hólmsteins Helgasonar á Raufar-
höfn af þeirri ástæðu að ætlunin
hafi verið að veiða rækju fyrir
kvótann sem kæmi til vinnslu á
Kópaskeri. Af því varð hins vegar
ekki.
Pétur gagnrýnir mjög að
byggðakvótinn hafi ekki komið í
hlut smábáta á Kópaskeri, sem
hefðu hæglega getað veitt fyrir
hann þorsk og ýsu og þar með
haldið uppi atvinnulífi sem hefði
gagnast byggðarlaginu. Örn Páls-
son hjá Landssambandi smábáta-
eigenda tekur undir þá gagnrýni
aðspurður. Sveitarstjóri hefur aft-
ur á móti bent á að bæði smábáta-
eigendur á staðnum og hreppur-
inn hafi sótt um byggðakvótann á
sínum tíma en ekki fengið frá
ráðuneytinu. Það hafi verið
ákvörðun þess að veita Hólm-
steini Helgasyni kvótann. ■
John Kerry:
Bush
blekkti
KERRY Í KOSNINGABARÁTTU
John Kerry var á kosningaferðalagi í New
Hampshire.
SMÁBÁTAR
Úthlutun og meðferð á byggðakvóta á Kópaskeri liggur undir gagnrýni. Nær hefði verið að
deila honum á smábáta í byggðarlaginu, segir sjómaður á staðnum. Það hefði gagnast at-
vinnulífinu betur.
Sjómaður á Kópaskeri gagnrýnir sveitarstjórn út af
atvinnumálum:
Segir byggðakvóta
ekki hafa gagnast
LÖGREGLUBIFREIÐ EKIÐ YFIR
JARÐSPRENGJU Þrír lögreglu-
menn létu lífið og að minnsta
kosti sex særðust þegar rútu var
ekið yfir fjarstýrða jarðsprengju
í Norður-Ossetíu í Rússlandi. Yf-
irvöld segja að um hryðjuverk
hafi verið að ræða. Átök hafa
margsinnis brotist út á milli þjóð-
arbrota á svæðinu. Ekki er talið
að tsjetsjenskir uppreisnarmenn
hafi staðið á bak við ódæðið.
FLUGVÉLAR AÐ VERÐMÆTI 370
MILLJARÐAR Talsmenn Qatar
Airways hafa lýst því yfir að
flugfélagið hafi pantað 32 flug-
vélar að verðmæti sem svarar
um 370 milljörðum íslenskra
króna af Airbus-verksmiðjunum
evrópsku. Flugvélarnar verða af-
hentar á næstu sjö árum, þær
fyrstu á næsta ári en þær síðustu
árið 2010.