Fréttablaðið - 20.06.2003, Side 10
10 20. júní 2003 FÖSTUDAGUR
Reyndist saklaus:
Frjáls eftir
átján ár
MARYLAND, AP Bandarískur karl-
maður sem sat á bak við lás og slá í
átján ár var látinn laus úr haldi þeg-
ar DNA-rannsókn leiddi í ljós að hár
sem fundust á vettvangi glæpsins
tilheyrðu honum ekki.
Christopher Conover var dæmd-
ur í lífstíðarfangelsi árið 1985 fyrir
tvö morð og vopnað rán. Í ljósi ofan-
greindra upplýsinga átti hann rétt á
nýjum réttarhöldum. Conover, sem
ávallt hefur haldið fram sakleysi
sínu, tók þann kost að semja við sak-
sóknara. Fallið var frá morðákær-
unum og þar sem hann hafði þegar
setið af sér dóm fyrir vopnað rán
ákvað dómari að láta hann lausan. ■
Þjóð gegn þunglyndi:
Markvissar aðgerðir skila árangri
ÞUNGLYNDI „Við ætlum að gera al-
menning meðvitaðri um hvað
þunglyndi er,“ segir Salbjörg
Bjarnadóttir, verkefnisstjóri
Þjóðar gegn þunglyndi, langtíma-
verkefnis Landlæknisembættis-
ins í samvinnu við heilsugæsluna,
félagsþjónustuna, skóla, presta,
lögreglu og Hjálparsíma Rauða
krossins.
Að sögn Salbjargar fremja 40-
50 manns sjálfsvíg árlega, og hafa
80% þeirra þjáðst af þunglyndi á
árs tímabili áður en þeir grípa til
þessa örþrifaráðs. „Sjálfsvígum
hefur verið að fjölga á Íslandi,“
segir Salbjörg, „en það hefur sýnt
sig erlendis að þegar tekið hefur
verið markvisst á vandamálinu af
öllum sviðum samfélagsins hefur
bæði sjálfsvígum og sjálfsvígstil-
raunum fækkað.“
Meðalaldur fórnarlamba sjálfs-
víga hefur verið að lækka og eru
ungir karlmenn 20% þeirra sem
fremja sjálfsvíg. Ungt samkyn-
hneigt fólk er í sérstökum áhættu-
hópi. „Við getum fækkað sjálfsvíg-
um,“ segir Salbjörg. „Þetta er ekki
bara heilbrigðisvandamál heldur
samfélagsvandamál.“ ■
ÞUNGLYNDI
Sjálfsvígum á Íslandi hefur fjölgað og því
hefur langtímaverkefninu Þjóð gegn þung-
lyndi verið hrundið af stað.
Svonaerum við
AÐSÓKN AÐ SÖFNUM
Á ÍSLANDI
Gestir
1997 939.000
1998 970.000
1999 960.000
2000 1.010.000
2001 957.000
Heimild: Hagstofa Íslands
Ráðherrar gagnrýndu sjóræningjaveiðar:
Pólitískan vilja skortir
FISKVEIÐAR Sjávarútvegsráðherrar
ríkja við Norður-Atlantshaf eru
sammála um að pólitískan vilja
skorti innan margra ríkja til að
koma í veg fyrir ólöglegar veiðar á
úthafsmiðum. Undanfarið hefur
fjöldi erlendra skipa, sem sjávar-
útvegsráðuneytið kallar sjóræn-
ingjaskip, stundað ólöglegar veið-
ar á úthafsmiðunum á Reykjanes-
hrygg. Skipin eru frá ríkjum sem
eru ekki aðilar að samningum um
verndun úthafsstofna og verður
ekki komið í veg fyrir þær nema
fyrir tilstilli yfirvalda heimalands
þeirra.
Þetta kom fram á áttundu ráð-
stefnu sjávarútvegsráðherra ríkja
við Norður-Atlantshaf sem haldin
var í Halifax í Kanada 16. til 18.
júní. Auk Árna Mathiesen sóttu
ráðstefnuna sjávarútvegsráðherr-
ar Noregs, Færeyja, Grænlands,
Rússlands og framkvæmdastjóri
sjávarútvegsmála ESB.
Ákveðið hefur verið að næsta
ráðstefna ráðherranna verði hald-
in á Íslandi og fjallar hún um að-
ferðir til að auka verðmæti fiskaf-
urða. ■
ÓLÖGLEGAR VEIÐAR
Landhelgisgæslan hefur undanfarið orðið
vitni að ólöglegum veiðum fjölda erlendra
skipa, svokallaðra sjóræningjaskipa, á al-
þjóðlega hafsvæðinu á Reykjaneshrygg.
SJÁVARÚTVEGUR Höfuðborgar-
svæðið og Vesturland styrktu
verulega stöðu sína í aflaheim-
ildum í sjávarútvegi frá árinu
1991 til ársins 2002. Á sama
tíma og kvóti landsmanna í
heild dróst saman
um 2,5% jókst
hann um 14% á
á ð u r n e f n d u m
svæðum.
Við úthlutun
1991 komu tæp
104 þúsund
þorskígildistonn í
hlut eigenda skipa á ofan-
greindu svæði. Við síðustu út-
hlutun, fyrir fiskveiðiárið sem
hófst 1. september í fyrra, nam
úthlutunin nærri 119 þúsund
tonnum.
Akurnesingar hafa bætt við
mestum kvóta allra sveitarfé-
laga á þessu svæði. Aflaheim-
ildirnar fóru úr tæpum 15.600
tonnum í nærri 24.500 tonn.
Aukningin nemur meira en 9
þúsund tonnum, eða 57%.
Kvótaeignin hefur sömuleið-
is tekið kipp upp á við í Hafnar-
firði. Þar hafa bæst 3.500 tonn
við þau 17.200 tonn sem þar
voru 1991.
Kópavogur hefur séð á bak
nærri 90% af sínum kvóta. Eftir
eru aðeins 232 af 1.606 tonnum.
Þó að höfuðborgin hafi siglt
tiltölulega lygnan sjó í kvóta-
sviptingum síðasta áratugar
hafa bæst 5% við aflaheimild-
irnar frá 1991. Í þorskígildum
talið er aukningin rúm 2000
tonn. Kvótaeign
skipa í Reykja-
vík er nú 40 þús-
und tonn.
Þó að í ein-
stökum sveitar-
félögum hafi
bæst við mikill
kvóti hafa önnur
misst talsvert
frá sér. Í magni
talið hefur mest
færst frá Ólafs-
vík, eða rúm
2.700 tonn af 10
þúsund tonna
aflaheimildum.
Önnur byggðar-
lög í næsta ná-
grenni hafa hins
vegar styrkt
stöðu sína að
sama skapi.
Á Rifi hafa
bæst tæp 2.200
tonn við 3.500
tonna kvóta og á
Hellissandi juk-
ust aflaheimild-
irnar úr 1.300
tonnum í tæp
2.200 tonn.
Skip í Grund-
arfirði er nú
með hátt í 1.900
tonnum meira
en þar var skráð
árið 1991 og standa heimildirn-
ar í 10.200 þorskígildistonnum.
Í Stykkishólmi hefur frekar
hallað á. Þar eru nú 13% minni
aflaheimildir en voru 1991; hafa
minnkað úr 5.900 tonnum í
5.150.
Hinu megin á Snæfellsnesi
hefur kvótinn í smábátaútgerð-
inni á Arnarstapa nærri fimm-
faldast og er nú upp á 568 tonn.
Á Hellnum er hins vegar 130
tonna kvóta nærri að engu orð-
inn.
gar@frettabladid.is
HERJÓLFUR
Ferjan er sjaldan fullnýtt þótt fullbókað sé,
þar sem oft bregst að bókaðir farþegar
mæti.
Breytingar hjá Herjólfi:
Borgi bílinn
fyrir fram
FERJA Samkvæmt breytingum á
bókunarkerfi ferjunnar Herj-
ólfs milli lands og Vestmanna-
eyja þurfa farþegar á bílum að
staðfesta bókanir með fullnað-
argreiðslu fyrir hádegi daginn
fyrir brottför. Að öðrum kosti
verða þeir felldir út af bókunar-
lista.
Ákvörðun um breytingarnar
réðist af því að bókaðir farþeg-
ar mæta oft ekki þegar til taks
kemur og er ferjan því sjaldn-
ast fullsetin, þótt fullbókað sé.
Nýja fyrirkomulagið tekur gildi
1. júlí. ■
Landsbankinn fjár-
magnar bankakaup:
Seldi fyrir 18
milljarða
VIÐSKIPTI Landsbankinn hefur
lokið við útboð skuldabréfa að
upphæð 18 milljarða króna á al-
þjóðamarkaði. Bréfin eru til
tveggja ára og fór þriðjungur
þeirra til Ítalíu, auk þess sem
stór hluti fór til Frakklands, Ben-
elux-landanna og Þýskalands.
Tilgangur útgáfunnar var annars
vegar endurfjármögnun eldri
lána og hins vegar fjármögnun
vegna kaupa á Búnaðarbankan-
um International í Luxemborg. ■
VESTURLAND OG HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Á landsvæðinu frá Hafnarfirði að Búðardal hefur bæst verulega við aflaheimildir skipa sem þar eru skráð til
hafnar.
Mikil kvótasöfnun
víða vestanlands
Aflaheimildir skipa á Vesturlandi og höfuðborgarsvæðinu hafa aukist um 15 þúsund
tonn frá 1991. Akurnesingar hafa bætt langmestu við sig, 9 þúsund tonnum.
■
Þó að í einstök-
um sveitarfé-
lögum hafi
bæst við mikill
kvóti hafa önn-
ur misst tals-
vert frá sér.