Fréttablaðið - 20.06.2003, Síða 11

Fréttablaðið - 20.06.2003, Síða 11
11FÖSTUDAGUR 20. júní 2003 Áhöfnin á Skógafossi bjargaði tveimur Grænlendingum: Sátu fastir á eyju í rúman sólarhring BJÖRGUN Áhöfnin á Skógafossi, flutningaskipi Eimskips, bjargaði tveimur grænlenskum mönnum sem lent höfðu í hrakningum fjarri byggð á Grænlandi. Þegar skipið var að sigla inn Skógfjörðinn, á vesturströnd Grænlands, veitti áhöfnin því at- hygli að reyk lagði frá eyju norð- anmegin í firðinum. Þegar betur var að gáð sást að það logaði eldur og maður sást veifa appel- sínugulri veifu. Guðmundur Kr. Kristjánsson skipstjóri stöðvaði þegar ferð skipsins og lét sjósetja björgunarbát undir stjórn stýri- manns, sem siglt var að eyjunni. Þar hittu þeir fyrir tvo Grænlend- inga, 17 og 20 ára gamla, sem höfðu setið fastir í rúman sólar- hring eftir að bátur þeirra varð bensínlaus Mennirnir höfðu lagt upp frá Julianehaab á smákænu með utanborðsmótor til að skjóta sel og fugla. Báðir voru svangir og kaldir en að öðru leyti í þokka- legu ástandi og björguninni afar fegnir. ■ MÓTMÆLT Í PRAG Hundruð manna komu saman í Prag, höf- uðborg Tékklands, til að mótmæla hug- myndum stjórnvalda um umbætur í ríkis- fjármálum. Uppbygging ferðaþjónustu á hálendinu: Mikilvægt að bæta skipulagsmál HÁLENDIÐ Búast má við því að árið 2020 verði erlendir ferðamenn sem heimsækja landið árlega um ein milljón talsins, samkvæmt nið- urstöðum rannsóknar sem Rögn- valdur Guðmundsson vann fyrir Orkustofnun vegna rammaáætlun- ar um nýtingu vatnsafls og jarð- varma. Rögnvaldur segir mjög mikil- vægt að bæta skipulagsmál á há- lendinu. „Ef við ætlum að taka á móti milljón gestum eftir 17 ár gef- ur augaleið að eitthvað verður að gera til að skipuleggja hálendið,“ segir Rögnvaldur. „Menn hafa hing- að til ekki skoðað möguleika á ferðaþjónustu og útivist á hálend- inu, en það eru miklir möguleikar á uppbyggingu í ferðaþjónustu.“ Nokkur svæði voru tekin fyrir og framtíðargildi þeirra í ferða- þjónustu skoðuð. „Menn eru að reyna að forgangsraða virkjunar- kostum,“ segir Rögnvaldur. Þau svæði sem skoðuð voru sérstak- lega eru svæðin norðan Hofsjökuls og Vatnajökuls, Síðuvatnasvæði og Torfajökulssvæði. Lagt var mat á framtíðargildi útivistar og afþrey- ingar, sérstæð náttúrufyrirbæri, staðsetningu og aðsókn og var nið- urstaðan sú að af þessum svæðum hefði Torfajökulssvæðið mest framtíðargildi fyrir ferðaþjónustu og útivist. ■ KOMIÐ TIL HJÁLPAR Fimm áhafnarmeðlimir Skógafoss sóttu mennina á björgunarbát. ÞAKKLÁTIR FYRIR BJÖRGUNINA Mennirnir sem áhöfn Skógafoss bjargaði voru svangir og kaldir eftir vistina á eynni en að öðru leyti í góðu formi. HÁLENDISVEGUR Mjög mikilvægt er að bæta skipulagsmál á hálendinu, segir Rögnvaldur Guðmundsson, sem vann að nýrri rannsókn að framtíðarmöguleikum í ferðaþjónustu á hálendinu. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Ráðist gegn innrásar- hernum: Skotið á sjúkrabíl BAGDAD, AP Bandarískur hermaður lét lífið og tveir særðust þegar sprengju var skotið á sjúkrabíl innrásarhersins í al-Iskandariyah, skammt suður af Bagdad. Skömmu áður var sprengju varp- að á bækistöðvar íraska hersins í bænum Samarra með þeim afleið- ingum að einn Íraki lést og tólf særðust. Árásum á innrásarhermenn og bandamenn þeirra hefur farið fjölgandi að undanförnu. Ástæð- an er meðal annars talin reiði íraskra hermanna sem misstu vinnuna þegar stjórn Saddams Husseins var hrakin frá völdum. Bandaríski herinn hefur hvatt þessa menn til að aðstoða við löggæslu í Bagdad og Fallujah en fengið takmarkaðar undir- tektir. ■ Straumur kaupir 57% í Framtaki: Greiðir 2,8 milljarða króna fyrir VIÐSKIPTI Fjárfestingarfélagið Straumur hf. hefur gert samn- ing um kaup á meirihluta hluta- fjár í Framtaki Fjárfestingar- banka hf. Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki Fjár- málaeftirlitsins og Samkeppn- isstofnunar. Straumur hefur keypt 57% hlut í Framtaki fyrir tæpa 2,8 milljarða króna og fóru við- skiptin fram á genginu 1,9 krónur á hlut. Um 71% verður greitt með hlutum í Straumi á genginu 3,3 en 29% með reiðu- fé. Norvik hf. keypti einnig í gær stóran hlut í Framtaki, eða rúmlega 24%. ■

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.