Fréttablaðið - 20.06.2003, Síða 12
12 20. júní 2003 FÖSTUDAGUR
LÖGREGLUNEMAR VIÐ ÆFINGU
Palestínsk stjórnvöld leggja aukna áherslu
á að þjálfa nýjar lögreglusveitir til að sinna
öryggismálum. Æfingabúnaðurinn er ekki
allur sá tæknivæddasti.
VERSLUN Innfluttar mat- og drykkj-
arvörur hafa lækkað í takt við
lækkun á verði erlendra gjald-
miðla samkvæmt greiningardeild
Íslandsbanka.
Verð á á bifreiðum, fötum,
skóm og fleiri vörum hefur hins
vegar ekki breyst mikið. Greining-
ardeildin telur að ekki sé hægt að
nefna eina skýringu á ólíkri verð-
þróun vöruflokkanna samfara
styrkingu krónunnar. Líklega sé
um að ræða samband kerfisbreyt-
inga, stöðu markaða, hagræðingar,
notkunar gengisvarna, samdráttar
og vaxta.
Líkleg skýring á verðlækkun
innfluttra mat- og drykkjarvara er
talin sú að vöruvelta sé mikil í sölu
þessara vara og því megi ætla að
breytingar skili sér hratt inn í smá-
söluverðið. Hvað verð á bifreiðum
snertir telur greiningardeildin að á
tímabili lækkandi gengis krónunn-
ar og mikils samdráttar í sölu hafi
fyrirtækin tekið á sig talsvert af
áhrifum hækkandi gengis erlendra
gjaldmiðla á innkaupsverð. Þetta
hafi fyrirtækin síðan verið að bæta
sér upp á síðustu mánuðum.
Talið er að lækkun á gengi er-
lendra gjaldmiðla eigi að einhverju
leyti enn eftir að skila sér til neyt-
anda. Tíminn sem það taki gengis-
breytingar að skila sér út í hag-
kerfið sé allt frá 12 upp í 24 mán-
uði. Hækkun krónunnar kunni því
að vera að skila sér inni í verðlagið
eitthvað fram á næsta ár. ■
FJÖLMIÐLAR „Markverðasta niður-
staðan er sú hversu mikill munur
reyndist vera á Fréttablaðinu
annars vegar og Morgunblaðinu
og DV hins vegar. Það voru mun
fleiri neikvæðar fréttir í garð R-
listans í Morgunblaðinu og DV, en
mikill meirihluti frétta í Frétta-
blaðinu var hins
vegar hlutlaus,“
segir Dagný
Ingadóttir há-
skólanemi. Hún
mun útskrifast
með BA-próf í
stjórnmálafræði
frá Háskóla Ís-
lands á morgun.
Í lokaritgerð
sinni gerði hún
innihaldsgreiningu á fréttaflutn-
ingi dagblaðanna fyrir borgar-
stjórnarkosningarnar 2002. Alls
voru greindar 326 greinar sem
birtust í Morgunblaðinu, DV eða
Fréttablaðinu á tímabilinu 28.
apríl til 25. maí.
Dagný lagði viðurkenndar al-
þjóðlegar aðferðir til grundvallar
athugun sinni, auk þess sem hún
studdist við aðferðafræði IMG-
fjölmiðlavaktarinnar. Skoðaðar
voru fréttir, fyrirsagnir, ritstjórn-
arpistlar og aðrir pistlar. „Ég leit-
aði að jákvæðum og neikvæðum
lýsingarorðum og einnig að setn-
ingum sem greinilega voru já-
kvæðar eða neikvæðar í garð ann-
ars listans,“ segir Dagný. Að sögn
hennar varð hver umfjöllun að
vera afdráttarlaust neikvæð eða
jákvæð til að teljast hlutdræg.
Dagný segir niðurstöðuna hafa
komið sér á óvart. „Það kom mér á
óvart hversu mikill munur var á
Fréttablaðinu annars vegar og
hinum blöðunum tveimur,“ segir
hún. „Nær allar fréttirnar í Frétta-
blaðinu voru hlutlausar í garð list-
anna tveggja.“
Hún segir athyglisverðan mun
einnig felast í mismunandi efn-
isvali blaðanna. Þannig eyddi
Morgunblaðið talsverðu púðri í að
fjalla um málefni Heilsuræktar-
miðstöðvarinnar í Laugardal og
voru þær fréttir í miklum meiri-
hluta neikvæðar í garð R-listans.
Hins vegar beindi DV sjónum sín-
um mest að Orkuveitu Reykjavík-
ur og Alfreð Þorsteinssyni. Þær
fréttir voru nánast allar neikvæð-
ar í garð R-listans. Fréttablaðið
fjallaði mest um skipulagsmál og
reyndust þær fréttir hlutlausar,
samkvæmt ritgerðinni. Í útdrætti
ritgerðarinnar segir að hægt sé að
„leiða líkum að því að bæði Morg-
unblaðið og DV hafi verið hlut-
dræg í umfjöllun sinni,“ en að
„Fréttablaðið hafi verið hlutlaust“.
gs@frettabladid.is
JERÚSALEM, AP Ísraelskur kaupmað-
ur lét lífið þegar palestínskur
karlmaður sprengdi sig í loft upp
í ísraelskri matvöruverslun í
bænum Dseh Trumot, skammt frá
Vesturbakkanum. Samtökin Ís-
lamskt Jihad hafa lýst ábyrgð á
tilræðinu á hendur sér.
Talið er að árásarmaðurinn
hafi ætlað að sprengja upp stræt-
isvagn en farið inn í verslunina á
meðan hann beið eftir næsta
vagni. Eiganda verslunarinnar
fannst maðurinn grunsamlegur
en þegar hann ætlaði að gefa sig á
tal við hann sprengdi hann sig í
loft upp. „Kaupmaðurinn fórnaði
lífi sínu til að bjarga öðrum,“
sagði talsmaður lögreglunnar.
Skömmu eftir sjálfsmorðsárás-
ina hófu ísraelskir her- og lög-
reglumenn að brjóta niður land-
nemabyggðir Ísraela á Vestur-
bakkanum. Um 200 landnemar
reistu vegatálma úr tjöldum, bíl-
um og brennandi dekkjum til að
reyna að hindra framför hers og
lögreglu. Til ryskinga kom og
hlutu nokkrir landnemanna
minniháttar áverka.
Eyðilegging landnemabyggða
og stöðvun árása palestínskra
vígamanna á ísraelska borgara
eru fyrstu skrefin í vegvísinum til
friðar. Colin Powell, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, kemur til
Ísrael í dag til að reyna að miðla
málum á milli leiðtoga Ísraela og
Palestínumanna. ■
Samkynhneigður biskup:
Tákn um von
LUNDÚNIR Samkynhneigður guð-
fræðingur, sem nýverið var skipað-
ur í embætti biskups í Englandi,
segist líta á sig sem tákn um von
fyrir samkynhneigða um heim all-
an. Í viðtali við The Times of
London lýsir Jeffrey John því yfir
að hann ætli að búa áfram með
sambýlismanni sínum til 27 ára en
leggur áherslu á að sambandið sé
ekki lengur kynferðislegt.
Skipun John í embætti hefur
verið gagnrýnd af kirkjunnar
mönnum. „Ég íhuga stöðugt að láta
af embætti. Mér finnst það hræði-
leg tilhugsun að verða valdur að
klofningi innan biskupakirkjunn-
ar,“ sagði John. Hann stefnir þó að
því að þrauka, meðal annars til að
styðja málstað samkynhneigðra.■
Styrking krónunnar skilar sér misjafnlega til neytenda:
Mat- og drykkjarvara hefur lækkað
DAGNÝ INGADÓTTIR
Útskrifast með BA-próf í stjórnmálafræði frá HÍ á morgun. Kannaði umfjöllun dagblað-
anna í borgarstjórnarkosningunum í lokaritgerð sinni. Fréttablaðið reyndist bera af hinum
í hlutleysi.
Hlutlausar fréttir
í Fréttablaðinu
Samkvæmt lokaritgerð í stjórnmálafræði reyndist Fréttablaðið nánast
alltaf hlutlaust í umfjöllun sinni um D- og R-lista fyrir kosningarnar
2002. Umfjöllun hinna blaðanna var í miklum meirihluta neikvæð í
garð Reykjavíkurlistans.
„Nær allar
fréttirnar í
Fréttablaðinu
voru hlutlaus-
ar í garð list-
anna tveggja.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
RÚSTIR MATVÖRUVERSLUNAR
Ísraelskur lögreglumaður rannsakar rústir
matvöruverslunar sem sprengd var til
grunna í þorpinu Dseh Trumot á Vestur-
bakkanum.
Sjálfsmorðsárás í Ísrael:
Kaupmaður fórnaði lífi sínu