Fréttablaðið - 20.06.2003, Qupperneq 16
16 20. júní 2003 FÖSTUDAGUR
Mjódd • Dalbraut • Austurströnd
Mjódd • Dalbraut • Austurströnd
1000 kr. tilboð
Aukaálegg að eigin
vali kr. 150
kr. 1.000
Stór pizza með
2 áleggstegundum
sótt
SEX VOPNUÐ RÁN Í ÁR
Lyfja í Lágmúla 16. mars
Maður á þrítugsaldri rændi verslun
Lyfju í Lágmúla
vopnaður kylfu
sem hann ógnaði
starfsfólki með.
Maðurinn fór inn í
lyfjageymslu versl-
unarinnar þar sem
hann hrifsaði
nokkurt magn lyfja með sér. Ók hann
því næst á brott á bifreið sem reyndist
stolin og fannst hún skömmu síðar
skammt frá Lágmúlanum. Málið telst
nú að fullu upplýst.
Sparisjóður Hafnarfjarðar 1. apríl
Nítján ára piltur rændi Sparisjóð Hafn-
arfjarðar. Ræninginn kom vopnaður
hnífi inn í sparisjóðinn á Reykjavíkur-
vegi skömmu eftir opnun. Hann hafði
hulið andlit sitt og lét greipar sópa í
hirslum eins gjaldkerans áður en hann
hvarf út aftur. Hvorki lögregla né
Sparisjóðurinn hafa viljað gefa upp
upphæðina sem rænt var. Ræninginn
beið hjá skósmiðnum við hlið spari-
sjóðsins áður en hann réðst til atlögu.
Málið telst upplýst.
Sparisjóður Kópavogs 16. maí
Maður um tvítugt ruddist inn í Spari-
sjóð Kópavogs við Hlíðarsmára vopn-
aður hnífi
skömmu eftir
opnun. Hann
svipti sér inn í
mannlausa
gjaldkerastúku
og hrifsaði pen-
inga úr skúffu.
Að því loknu
hljóp hann út. Vitni sáu til ræningjans
hlaupa til suðurs þegar hann kom út úr
sparisjóðnum. Öryggismyndavélar náðu
myndum af manninum, sem ekki huldi
andlit sitt. Málið telst upplýst.
Subway í Grafarvogi 3. júní
Tvær unglingsstúlkur rændu Subway-
veitingastað í Spönginni í Grafarvogi.
Þær höfðu verið inni á staðnum í
nokkra stund
áður en þær réð-
ust til atlögu
vopnaðar hnífum
og ógnuðu starfs-
mönnum. Þær
hrifsuðu til sín
farsíma og veski
starfsmanna. Síð-
an læstu þær starfsmenn í kæliklefa.
Eftir það tóku þær peninga úr af-
greiðslukassa. Málið telst upplýst.
Landsbankinn í Grindavík 5. júní
Sami maður og framdi vopnað rán í
Sparisjóði Hafnarfjarðar 1. apríl rændi
Landsbankann í Grindavík vopnaður
hnífi. Hann komst undan með þó
nokkra fjármuni, en lögreglan handtók
hann í bíl sínum þegar hann var á leið
út úr bænum. Þá hafði hann falið þýf-
ið, sem skömmu seinna komst í leit-
irnar þegar ítalskir ferðamenn fundu
það við Reykjanesvita. Málið telst upp-
lýst.
Söluturninn Biðskýlið í Kópavogi
18. júní
Tveir menn vopnaðir hnífum rændu
söluturn í Kópavogi. Þeir höfðu um
það bil 30.000 krónur upp úr krafsinu.
19 ára stúlka sem var ein á staðnum
þegar mennirnir frömdu ránið segir
neyðarrofa ekki hafa virkað. Mennirnir
flýðu í átt að höfninni í Kópavogi og
þegar Fréttablaðið fór í prentun hafði
lögreglan ekki haft upp á þeim.
RÁN „Vopnuð rán virðast koma í
bylgjum,“ segir séra Hreinn Há-
konarson fangaprestur.
Hann segir þau oft tengd ungu
fólki, háð vímu, til að fjármagna
eigin neyslu eða til að greiða skuld-
ir. Spurning sé hvort ránum sem
þessum sé að fjölga. Það þurfi að
skoða það í félagslegu samhengi til
lengri tíma.
„Mér sýnist við á Íslandi búa við
jafn harðan heim í þessum málum
og í útlöndum. Hjá okkur er það í
smærra sniði í þessu eins og öðru.“
Hreinn segir vopnuð rán vera
mjög alvarlega glæpi. Menn hafi
fengið mjög þunga dóma fyrir slíkt.
Vopnað rán séu alvarlegt mál þó
menn hafi lítið upp úr krafsinu. Það
snúist um að lífi manneskju sé ógn-
að.
„Mér hefur skilist af félags-
fræðingunum að afbrotatíðni hér
sé minni en í öðrum löndum, ef eitt-
hvað er. Oft hefur verið talið að of-
beldisglæpum fari fjölgandi. Ég
held þeir standi nokkuð í stað.“
Hreinn segir að hann haldi að
ekki sé mikil hætta á að vopnin sem
séu notuð færist frá eggvopnum
yfir í byssur. Hér sé ekki sama
byssuhefð og t.d. í Bandaríkjunum.
„Hættan að vopnum verði beitt
er alltaf fyrir hendi. Um leið og
ógnað er með einhverju er stutt í að
ógnunin gangi eftir í framkvæmd.
Sá sem ógnar er ekki í jafnvægi.
Athæfi sem þetta er stressandi fyr-
ir báða aðila þó með ólíkum hætti
sé. Í mörgum morðmálum verður
morðið vegna aðstæðna. Ásetning-
ur til morðs verður til á einhverju
augnabliki í aðstæðum sem meint-
ur morðingi býr til.“ ■
SÉRA HELGI HÁKONARSON FANGA-
PRESTUR
Helgi segir vopnuð rán alvarlegt mál þó
menn hafi lítið upp úr krafsinu.
Séra Helgi Hákonarson fangaprestur:
Þunn lína milli ógnunar og framkvæmdar
RÁN Erlendur Baldursson, afbrota-
fræðingur hjá fangelsismála-
stofnun, segir að allir sem fremji
vopnuð rán fái dóma. Sex slík rán
hafa verið framin
hérlendis fyrstu
sex mánuði ársins.
„Það er litið
mjög alvarlegum
augum þegar fólk
beitir vopnum eða
ofbeldi til að ná sér
í verðmæti,“ segir
Erlendur.
Hann segir að þegar dæmt sé í
málunum sé tekið tilliti til aldurs,
sakaferils, endurtekinna brota og
annars slíks. Dómur fyrir verkn-
að eins og vopnað rán geti verið
fangelsi í nokkur ár. Samkvæmt
almennu hegningarlögunum getur
hann verið allt að 16 ár.
„Enginn hefur meiðst í þessum
síðustu ránum, sem betur fer. Af-
sagaðar haglabyssur eru gjarnan
notaðar í ránum erlendis, en þær
eru sjaldan eða ekki notaðar hér.“
Erlendur segir að umfjöllun í
fjölmiðlum geti hugsanlega haft
áhrif. Menn heyri um ránin. Vit-
leysingar sem séu nokkuð sið-
blindir fari og geri slíkt hið sama
til að ná sér í peninga. Í gegnum
árin hafi svona komið í kippum,
kippurinn sé reyndar orðin nokk-
uð stór núna. Hann segir að í dag
sitji ekki margir inni fyrir vopnað
rán. Þeir sem hafi framið rán und-
anfarið bíði ýmist dóms eða
ákæru.
Að mati Erlends er ekki hægt
að rekja afbrotin undanfarna
mánuði til aukinnar stéttaskipt-
ingar í þjóðfélaginu.
„Ég held að þessi rán að undan-
förnu hafi ekki mikið með bil á
milli ríkra og fátækra að gera.
Eitthvað hefur þetta með fíkni-
efnaneyslu að gera, en þó held ég
að það sé heldur ýkt. Auðvitað er
ákveðið samhengi þarna á milli,
en ég held að það sé ekki eins mik-
ið og menn vilja vera láta. Margir
virðast hins vegar sætta sig við þá
skýringu. Ungu mennirnir segjast
hafa verið í mikilli neyslu og það á
að þýða allt. Ástæða fólks til að
gera svona er fljótfenginn gróði
og spenna. Margir fá útrás við
það, jafnvel kynferðislega útrás,“
segir Erlendur.
hrs@frettabladid.is
Fljótfenginn
gróði og spenna
Afbrotafræðingur Fangelsismálastofnunar segir marga ræningja fá út-
rás við verknaðinn, jafnvel kynferðislega útrás. Hann telur að tengslin
milli fíkniefna og ránanna undanfarið séu heldur ýkt.
■
Afsagaðar
haglabyssur eru
gjarnan notað-
ar í ránum er-
lendis, en þær
eru sjaldan eða
ekki notaðar
hér.
BANKARÆNINGI Í KÓPAVOGI
Öryggismyndavél í Sparisjóði Kópavogs náði mynd af unga manninum sem rændi bank-
ann í apríl. Maðurinn lét ekki þar við sitja heldur rændi Landsbankann í Grindavík tveimur
mánuðum síðar.
Hyrjarhöfði 7, sími 567 8730/6937154
www.teflon.is
LAKKVÖRN
BRYNGLJÁI
Á BÍLINN!
Blettun-djúphreinsun-alþrif.
Mörkinni 6, sími 588 5518.
Opið 9-18 virka daga og 10-15 laugardaga.
Síðar
heilsárskápur
29.900 kr.