Fréttablaðið - 20.06.2003, Qupperneq 17
FÖSTUDAGUR 20. júní 2003
!"##
$
%
& #
'
()*+,,
-(. "
,/
01
Vestfirðir:
Samið um sjúkraflug
SAMGÖNGUR Samningur ríkisins við
Íslandsflug um sjúkra- og áætlun-
arflug á Vestfjörðum hefur verið
framlengdur til ársloka 2005.
Fréttavefurinn bb.is hefur eftir El-
ínu Ingimundardóttur, skrifstofu-
stjóra Íslandsflugs, að líklegt sé að
félagið ráði undirverktaka til að
sjá um flugið líkt og gert hefur
verið síðustu tvö ár. Mýflug tók við
þjónustunni fyrir Íslandsflug eftir
að flugfélagið Jórvík missti flug-
rekstrarleyfi sitt síðastliðinn vet-
ur. ■
Grænlandsmótið 2003:
Ritstjórinn ólæs
á eigið blað
TÍMARIT Skákfélögin
Hrókurinn í Reykjavík
og Skák í norðri, sem
standa fyrir fyrsta al-
þjóðlega skákmótinu á
Grænlandi í næstu viku,
gefa út tímarit um skák
sem dreift verður víða
um Grænland. Þetta er í
fyrsta sinn sem skák-
tímarit er gefið út á
Grænlandi, þar sem skák
er lítt þekkt íþrótt. Bene-
dikte Thorsteinsson,
fyrrum félagsmálaráð-
herra grænlensku lands-
stjórnarinnar, þýðir allar
greinar blaðsins úr ís-
lensku á grænlensku og
dönsku. Þeirri vinnu
fylgdi að hún þurfti að
semja nýyrði tengd skák-
inni á grænlensku.
Hrafn Jökulsson, for-
seti Hróksins, er annar
tveggja ritstjóra blaðsins.
Hann segir að þetta sé í
fyrsta sinn sem hann rit-
stýri blaði þar sem hann
skilur ekki textann.
Hrafn stjórnar átaki um
að skákvæða grænlenskt
samfélag á næstu árum.
Þegar hafa verið stofnað-
ir skákklúbbar á Suður-
Grænlandi í tengslum við
átakið.
Prentsmiðjan Oddi hf.
styrkir framtakið og mun
prenta skákritið. ■
ÍSLANDSFLUG
Hefur samið um að halda áfram uppi
sjúkraflugi á Vestfjörðum.
HRAFN
JÖKULSSON
Forseti Hróksins og
Skákar í norðri er annar
tveggja ritstjóra tímarits
um skák sem gefið er út
á grænlensku.