Fréttablaðið - 20.06.2003, Síða 19
19FÖSTUDAGUR 20. júní 2003
■ Asía
INDÓNESÍA, AP Tíu uppreisnarmenn
létu lífið þegar stjórnarhermenn
veittu þeim fyrirsát í þorpinu
Matang Kruet í Aceh-héraði í
Indónesíu. Einnig féllu tveir her-
menn í átökunum, sem eru einhver
þau blóðugustu síðan stjórnvöld
lýstu yfir stríði á hendur aðskilnað-
arsinnum fyrir mánuði síðan.
Herinn hefur nú á valdi sínu öll
helstu vígi uppreisnarmanna, að
sögn Sutarto herforingja. Vígamenn
aðskilnaðarsinna eru aðeins um
5.000 talsins á móti 30.000 manna
liði stjórnarhersins.
Yfir 200 uppreisnarmenn og 26
hermenn hafa fallið í átökunum í
Aceh-héraði auk á annað hundrað
óbreyttra borgara. ■
Stálpípuverksmiðja:
Tvö hund-
ruð störf
ATVINNUMÁL Bandaríska fyrirtæk-
ið International Pipe and Tube
hefur byggingu á stálpípuverk-
smiðju í Helguvík, norðan Kefla-
víkur, í október næstkomandi.
Reiknað er með að við verk-
smiðjuna starfi um tvö hundruð
manns, og geta margfeldisáhrif
leitt til tvö til þrjú hundruð
starfa til viðbótar. Árni Sigfús-
son, bæjarstjóri í Reykjanesbæ,
segir verksmiðjuna hafa átt að
vera lið í sókn bæjarfélagsins, en
sé nú liður í vörn bæjarfélagsins
vegna yfirvofandi samdráttar
hjá varnarliðinu á Keflavíkur-
flugvelli. ■
Innritun mennta-
skólanna lokið:
130 manns
sóttu um í
Hraðbraut
SKÓLAR Um 130 umsóknir bárust
um skólavist í Menntaskólanum
Hraðbraut, sem tekur til starfa í
haust. Að sögn Ólafs Hauks John-
son, skólastjóra skólans, verður
þó ekki öllum boðin skólavist.
„Við ákváðum að fara af stað með
heldur minni hóp en við höfðum
áætlað, en mjög traustan hóp.“ Að
sögn Ólafs hefur ekki enn verið
ákveðið hvort 60 eða 75 nemend-
um verður hleypt inn í skólann.
Þorsteinn Þorsteinsson, skóla-
meistari Fjölbrautaskólans í
Garðabæ, telur ekki að sam-
keppni á skólamarkaðnum hafi
aukist. „Það ruglar fólk í ríminu
að skólarnir eru farnir að auglýsa
meira,“ segir hann, „en sam-
keppnin er búin að vera lengi.“ Að
sögn Þorsteins sóttu mjög margir
um skólavist nú í ár, og neyðist
skólinn því til þess að vísa all-
mörgum nemendum frá. ■
FÍLAHJÖRÐ RÉÐST Á ÞORP Fjórir
létust og 20 slösuðust þegar fíla-
hjörð réðst á þorp í suðaustur-
hluta Bangladesh. Dýrin, sem
voru 20 talsins, jöfnuðu við jörðu
yfir 50 kofa. Þorpsbúar voru
flestir í fastasvefni þegar fílarnir
létu til skarar skríða. Að minnsta
kosti fjórtán manns hafa látið líf-
ið í árásum fíla á svæðinu á und-
anförnum sex mánuðum.
FERJUSLYS Í KÍNA Að minnsta
kosti þrír fórust þegar ferja
sigldi á vöruflutningapramma og
sökk á Yangtze-ánni í Kína. Tíu
manns var bjargað úr ánni en allt
að 20 er enn saknað. Siglingar á
ánni höfðu verið bannaðar vegna
þoku áður en slysið átti sér stað.
Yangtze-áin er ein af aðalsam-
gönguæðum Kínverja.
HITABYLGJA KOSTAR 400 MANNS-
LÍF Hátt í 400 manns hafa látist í
hitabylgju í Pakistan í júnímán-
uði. Hitinn
er nú tekinn
að lækka
samfara
monsún-
rigningum
en er þó enn
yfir 40 gráð-
ur. Þegar
verst lét
náði hitinn
53 gráðum í Punjab-héraði í aust-
urhluta landsins.
INDÓNESÍSKUR LANDGÖNGULIÐI
Að minnsta kosti 40.000 óbreyttir
borgarar hafa orðið að flýja
heimili sín vegna átakanna í
Aceh-héraði síðasta mánuðinn.
Átök í Aceh-héraði:
Uppreisnarmönnum veitt fyrirsát