Fréttablaðið - 20.06.2003, Side 21
VEIÐAR „Veiðin hér hefur farið bet-
ur af stað en nokkru sinni áður svo
mig minni til,“ sagði Hólmfríður
Jónsdóttir veiðivörður á Hofi sem
stendur við eitt kunnasta urriða-
svæði veraldar í Laxá í Aðaldal.
„Það stafar að einhverju leyti af
hlýindum og snjóleysi í vetur en
svona góð hefur veiðin aldrei verið
síðan ég man eftir fyrir 30 árum
síðan. Veiðimennirnir eru náttúru-
lega kátir með það en annars virð-
ist litlu breyta hvort vel veiðist
eður ei, það er fullbókað hér langt
fram í tímann. Þeir vita af þessum
staðbundna urriða sem hér er og
svæðið nær alla leið niður að Lax-
árvirkjun.“
Hómfríður sagði að langflestir
veiðimennirnir kæmu að sunnan,
frá Reykjavík og nágrenni, en
færri erlendis frá. „Það hefur ver-
ið mikil ásókn í veiði hér nú um
langt skeið og það hefur verið full-
bókað eitt ár fram í tímann núna
um nokkurt skeið. Þannig að það er
ekki hlaupið að því að komast hér
að, einna helst mögulegt í gegnum
vini og kunningja sem þegar hafa
pantað.“ ■
21FÖSTUDAGUR 20. júní 2003
hvað?hvar?hvenær?
17 18 19 20 21 22 23
MARS
Föstudagur
FÓTBOLTI „Við drifum í því að ráða
Ásgeir og Loga þegar ljóst var að
þeir unnu ötullega sín verk og ár-
angurinn var eftir því,“ sagði
Eggert Magnússon formaður
Knattspyrnusambands Íslands
um ráðningu Ásgeirs Sigurvins-
sonar og Loga Ólafssonar sem
landsliðsþjálfara til næstu tvegg-
ja ára.
„Það er meira en að segja það
að ráða erlenda þjálfara eins og
hugmyndin var. Í fyrsta lagi eru
ekki allir sem gera sér grein fyrir
okkar umhverfi hér á Íslandi. Svo
eru peningamál annar þröskuldur
því þeir eru flestir mun dýrari
kostur en venjan er hér heima.
Okkur finnst eðlilegt að landsliðs-
þjálfarinn sé hæstlaunaðasti ís-
lenski þjálfarinn í landinu en er-
lendur þjálfari sem venjulega
hefur reynslu af að stýra stórum
félögum í Evrópu fer fram á mun
meira en það.“
Ráðning Ásgeirs og Loga var
upphaflega tímabundin á meðan
leit að hæfum erlendum þjálfara
stóð yfir. „Það voru mörg nöfn
sem komu til greina og eitt sem
stóð þar upp úr en eftir góðan ár-
angur í fyrstu tveim landsleikjun-
um var ákveðið að ráða Ásgeir og
Loga enda góð framtíð í því.“ ■
MANCHESTER UNITED
Titilvörnin hefst 16. ágúst með leik gegn
Bolton.
Enska knattspyrnan:
Hefst 16.
ágúst
FÓTBOLTI Enska deildakeppnin hefst
laugardaginn 16. ágúst. Englands-
meistarar Manchester United leikur
heima gegn Bolton, bikarmeistarar
Arsenal fá Everton í heimsókn og
Liverpool mætir Chelsea á Anfield.
Nýliðar Úlfanna mæta Black-
burn á útivelli, Leicester leikur
heima gegn Southampton og
Portsmouth heima gegn Aston Villa.
Birmingham leikur heima gegn
Tottenham, Charlton fær Manchest-
er City í heimsókn, Fulham og
Middlesbrough leika í Lundúnum
og Leeds og Newcastle mætast á El-
land Road. ■
17.45 Sýn
Olíssport. Fjallað er um helstu íþrótta-
viðburði heima og erlendis.
18.45 Sýn
Álfukeppni FIFA. Bein útsending frá leik
Frakklands og Japans.
20.00 Hásteinsvöllur
ÍBV og FH keppa í 6. umferð Lands-
bankadeildar kvenna.
20.00 Akureyrarvöllur
Efstu liði 1. deildar, Þór og Víkingur
mætast á Akureyri.
20.00 Kópavogsvöllur
Grannaslagur Breiðabliks og HK í 1.
deild karla.
20.00 Keflavíkurvöllur
Keflavík fær Leiftur/Dalvík í heimsókn
í 1. deild karla.
20.00 Stjörnuvöllur
Stjarnan mætir Njarðvík í 1. deild karla.
EGGERT MAGNÚSSON
Árangur Ásgeirs og Loga talar sínu máli.
KSÍ bárust margar fyrirspurnir og umsóknir:
Starf landsliðs-
þjálfara eftirsótt
MÝVATNSVEIT
Veiði í Mývatni sjálfu er dræm en Laxá er
að fara vel af stað.
Sjaldan meira af urriða í Laxá í Aðaldal:
Besta opnun í 30 ár