Fréttablaðið - 20.06.2003, Síða 24
■ ■ SÝNINGAROPNANIR
14.00 Heimildarmyndin What to
do about Whales verður heimsfrum-
sýnd á Íslandi í Þingsal 5 á Hótel Loft-
leiðum.
16.30 Opnun á myndlistarsýning-
unni “Í nótt sefur dagurinn“ eftir Marý.
Flest verkin eru olíumálverk þar sem
leikið er með hin ýmsu form. Sýningin
er í versluninni 12 tónum á Skólavörðu-
stíg.
20.00 Sýningin Nýir tímar í ís-
lenskri samtímaljósmyndun opnar í
Listasafni Reykjavíkur, Kjarvalsstöð-
um. Á sýningunni sem opnuð verður á
Kjarvalsstöðum getur að líta kjarnann ú
sýningu sem fór héðan til Moskvu með
aðaláherslu á samtímaljósmyndun.
■ ■ HÁTÍÐARHÖLD
Jónsmessuhátíð í Fiskiðjusundinu,
Vestmannaeyjum. Hátíðin er formleg
upphitun fyrir Þjóðhátíð. Sérstakir gestir
eru Made in China.
■ ■ LEIKLIST
20.00 Aukasýning á Veislunni í
Þjóðleikhúsinu. Verkið er eftir Thomas
Vinterberg og Mogens Rukov en leik-
gerð er í höndum Bo hr. Hansen.
■ ■ TÓNLIST
12.00 Hádegistónleikar í Hafnar-
borg sem kallast Létt og ennþá léttara í
hádeginu. Alda Ingibergsdóttir sópran
syngur og Antonía Hevesi leikur á píanó.
Á efnisskrá eru lög eftir Sigfús Halldórs-
son og óperettu- og söngleikjatónlist fyr-
ir sópran.
16.30 Í 12 tónum mun hljómsveit-
in SK/UM leika fyrir gesti og gangandi
en sveitin gaf nýverið út plötu.
20.00 Kór Flensborgarskólans
flytur ásamt einsöngvurum og hljóð-
færaleikurum úr röðum kórfélaga fjöl-
breytta og skemmtilega tónlist. Stjórn-
andi kórsins er Hrafnhildur Blomster-
berg.
20.00 Jónas Ingimundarson pí-
anóleikari og Ólafur Kjartan Sigurðar-
son barítónsöngvari standa fyrir dagskrá
í Hömrum Ísafirði sem nefnist Hvað
ertu, tónlist? og munu þeir þar fara á
kostum í tali og tónum. Tónleikarnir eru
liður í dagskránni Við Djúpið sem fram
fer á Vestfjörðum um helgina.
20.30 Fyrsta söngvaka sumarsins á
vegum Minjasafnsins á Akureyri í
Minjasafnskirkjunni. Á söngvökum er
farið í söngferðalag um íslenska tónlist-
arsögu. Flytjendur Íris Ólöf Sigurjóns-
dóttir og Hjörleifur Hjartarson.
21.00 Tónleikar Guðrúnar Gunn-
arsdóttur, Óður til Ellýjar, ásamt hljóm-
sveitarmeðlimunum Eyþóri Gunnarssyni,
Birgi Bragasyni, Sigurði Flosasyni, Erik
Qvick og gestasöngvaranum Friðriki
Ómari Hjörleifssyni. Tónleikarnir eru í
Ketilshúsinu.
80’s disco danssveifla að hætti
hússins í Leikhúskjallaranum.
Hljómsveitin Spútnik spilar í Pakk-
húsinu.
Steini í Quarashi sér um tónlistina á
skemmtistaðnum 11.
Fræbblarnir spila á Grand Rokk.
Rally-Cross verður að spila á
skemmtistaðnum 22.
23.00 Andrea Gylfa, Seth Sharp
og Davíð Þór Jónsson halda blús og
djass tónleika á fjölmenningarstaðnum
Caffe Kulture í kvöld.
Rokksveitin DYS heldur útgáfutón-
leika í Nýlistasafninu. Sveitin spilar
skemmtilegt rokk og er óhætt að lofa
miklu stuði á tónleikunum.
■ ■ SÝNINGAR
Í Rauða húsinu á Eyrarbakka sýnir
Lovísa Lóa Sigurðardóttir myndlistar-
maður 11 myndverk unnin í olíu og
blandaðri tækni á striga. Sýningin stend-
ur fram í ágúst.
Ormarnir sýna í fyrsta sinn saman
listir sínar í húsnæði sem þeir fengu lán-
að Hafnarhvoli, Tryggvagötu 11 í
Reykjavík. Ormarnir eða The Worms er
nýr hópur myndlistarfólks sem ögra og
gleðja augað, þeir láta ljós sitt skína þó
að nú sé sá tími ársins sem birtuskilyrð-
in eru sem best. Sýningin nefnist Haf-
sýnir.
Þrjár nýjar sýningar í Safnasafninu –
Alþýðulistarsafni Íslands, á Svalbarðs-
strönd, Eyjafirði. Í Hornstofu verða sýnd
málverk eftir Sigurð Einarsson í Hvera-
gerði. Í garðinum er sýning á trjáköttum
eftir Aðalheiði Eysteinsdóttur á Akureyri
og nær ánni er samsýning 11 og 12 ára
nemenda í Valsárskóla.
Sýning sem nefnist Ferskt ungnauta-
hakk á Björtum dögum. Myndlistarsýn-
ingin er í nýjum sal í menningar- og
kaffihúsi fyrir ungt fólk í Gamla bóka-
safninu Mjósundinu.
24 20. júní 2003 FÖSTUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
17 18 19 20 21 22 23
JÚNÍ
Föstudagur
Hilmir Snær snýr aftur umhelgina og mun fara með sitt
gamla hlutverk í Veislunni,“ segir
Stefán Baldursson, leikstjóri sýn-
ingarinnar og Þjóðleikhússtjóri.
Aðspurður hver ástæða brott-
hvarfsins hafi verið segir hann að
Hilmir hafi fengið stórt hlutverk í
þýskri kvikmynd sem tekin var
upp nú í vor. „Við bjuggumst ekki
við að sýningin yrði ennþá í gangi
þegar hann þyrfti frá að hverfa,“
segir Stefán. Það var þó öðru nær
því Veislan er enn þann dag í dag
sýnd fyrir fullu húsi með nýjan
leikara innanborðs, Hilmar Jóns-
son.
„Sýningin breyttist í raun ekki
mikið eftir að Hilmar tók við hlut-
verkinu þrátt fyrir að persónan
hafi auðvitað verið sköpuð á ný í
samræmi við leikarann.“
Nú um helgina mun Hilmir
Snær hins vegar leika hlutverk
sitt á ný og að mati Stefáns er við
hæfi að hann taki þennan enda-
hnykk þar sem hann hlaut
Grímuna á dögunum fyrir leik
sinn. Aðspurður segir Stefán þó
að stóri vinningurinn hafi verið
fólginn í því að Veislan hafi verið
tilnefnd til ellefu Grímna og allt
annað hafi verði bónus, það má
því segja að sýningin hafi hlotið
tvöfaldan bónus þar sem Björn
Bergsteinn Guðmundsson fékk
Grímuna fyrir lýsingu auk Hilm-
is.
Tvær aukasýningar verða nú
um helgina en rétt þykir að upp-
lýsa að sökum mikillar eftirspurn-
ar eftir miðum munu nokkrar
aukasýningar verða í lok septem-
ber. ■
Þetta er ómiss-andi sýning,“
segir útvarps-
maðurinn Ólafur
Páll Gunnarsson
um Smekkleysu-
sýninguna í
Hafnarhúsinu. „Ég ætla að fara
aftur þar sem ég náði ekki að
skoða þetta allt nógu vel. Þarna
eru flottar myndir og þetta er
bara skemmtilegt fyrir alla sem
hafa gaman af popptónlist og öllu
þessu. Þetta er líka merkilegt fyr-
irbæri, Smekkleysa, og í raun al-
veg ótrúlegt hvað þetta lið er búið
að gera mikið. Ég segi bara til
hamingju með afmælið Smekk-
leysa og rock on.“
Mittmat
!
!
" #
$
%
&
'
! (
&
!
) !
*
+,-
.
*
/
0,1
2.3)
4
53
647
8698:;4
<98;/
<=3
9>;
?
@AB;>)8
49
9
>
.! C
CC
!
&
%
0,
$
Hilmir snýr aftur
■ LEIKLIST
HILMIR SNÆR
GUÐNASON
Fékk Grímuna fyrir
leik sinn í Veislunni.
✓
✓