Fréttablaðið - 20.06.2003, Síða 25
MARÍN HRAFNSDÓTTIR
Ég er nú langt frá því að verahlutlaus og sérstaklega þessa
dagana þegar lífið hjá mér snýst
nær einvörðungu um lista- og
menningarhátíðina Bjarta daga í
Hafnarfirði,“ segir Marín
Hrafnsdóttir, menningarfulltrúi
Hafnarfjarðar. „Ég mun því að
sjálfsögðu mæta á Sólstöðutón-
leika Kórs Flensborgarskólans í
kvöld klukkan 20. Annars konar
tónlist mun svo verða allsráðandi
hjá mér á morgun en þá eru úti-
tónleikar á Norðurbakkanum í
Hafnarfirði frá 15 og fram undir
miðnætti.
Nú, mig eins og alla langar að
sjá sýningu Matthew Barney í
Nýló og vona að hún verði enn til
sýnis þegar ég fer í sumarfrí. Þá
þarf ég að finna mér gott næði til
að skoða betur sýningarnar á
Björtum dögum í Hafnarfirði, og
þá kannski sérstaklega Rambeltu
(vegasalt) sem er samsýning
áhugaverðra listamanna í Hafn-
arborg.“
Val Marínar
Þetta lístmér á!
FÖSTUDAGUR 20. júní 2003 25
Sjóvá-Almennar hafa
verið aðalstyrktaraðili
Kvennahlaupsins í 11 ár.
Vertu með í Kvennahlaupinu 21. júní. Nánari upplýsingar á www.sjova.is.
Þóra Sigurþórsdóttir leirlistarkona
er með myndlistarsýningu að Hvirfli í
Mosfellsdal. Sýningin er haldin utan-
dyra.
Díana Hrafnsdóttir og Elva Hreiðars-
dóttir eru með sýningu á grafíkverkum í
Óðinshúsi á Eyrarbakka. Sýningin nefnist
Hafsýnir.
Ljósmyndir Yann Arthus-Bertrand
eru sýndar á Austurvelli. Sýningin ber
nafnið Jörðin séð frá Himni og hefur
verið sýnd víðs vegar um heiminn.
Sýning á verkum Kristjáns Davíðs-
sonar og Þórs Vigfússonar í Listasafni
Árnesinga, Austurmörk 21 í Hveragerði.
Sýningin stendur til 31. júlí.
Sýning á verkum Matthew Barney
stendur í Nýlistasafninu. Sýningin
stendur til 29. júní.
Stóra norræna fílasýningin í sýning-
arsal Norræna hússins. Á sýningunni
eru verk eftir dönsku listamennina Peter
Hentze, Thomas Winding og Pernelle
Maegaard. Victoria Winding hefur gert
fræðslutexta.
✓
✓