Fréttablaðið - 20.06.2003, Page 27

Fréttablaðið - 20.06.2003, Page 27
27FÖSTUDAGUR 20. júní 2003 Í KVIKMYNDAHÚSUM ÞESSA VIKUNA Morgunblaðið DV IMDb Empire Rottentomatoes Meðaltal (af 4) (af 4) (af 10) (af 5) (af 100%) (af 10) Nói Albínói 3 1/2 3 1/2 7.7 X X 8,3 X-Men 2 3 1/2 3 7.8 4 80% Fersk 8,1 Respiro 3 1/2 3 7.4 X 83% Fersk 8 Narc 3 3 7.4 X 85% Fersk 7,7 The Matrix Reloaded X 2 7.4 4 75% Fersk 7 Identity 3 3 7.0 2 66% Fersk 6,5 Töfrabúðingurinn X X 5.8 X X 5,8 Anger Management 2 1/2 X 6.0 3 42% Rotin 5,6 Johnny English X 2 1/2 5.7 3 6% Rotin 5,4 Agent Cody Banks 2 1/2 X 5.4 X 42% Rotin 5,3 They 2 1/2 X 4.0 X X 5,1 Old School X 1 6.7 2 58% Rotin 4,8 Bringing Down... X 2 5.9 2 35% Rotin 4,6 How to lose a guy... X 1 1/2 6.2 X 39% Rotin 4,6 2Fast2Furious 1 1/2 2 5.0 X 32% Rotin 4,2 View from the Top X 2 4.9 X 11% Rotin 3,7 Darkness Falls X 2 4.6 X 9% Rotin 3,5 Skógarlíf 2 X X 5.1 1 21% Rotin 3 Kangaroo Jack 2 X 2.8 X 8% Rotin 2,9 Bræðurnir Bobby og PeterFarrelly kynntu hálfvitana Lloyd Christmas og Harry Dunne til sögunnar fyrir níu árum síðan í gamanmyndinni Dumb & Dumber. Leikararnir Jim Carrey og Jeff Daniels fóru á kostum í hlutverkum vitleysinganna sem hengsluðust í gegnum lífið í full- komnu tilgangsleysi og úr öllu sambandi við raunveruleikann og umhverfi sitt. Dumb & Dumber var fyrsta leikstjórnarverkefni bræðranna og gaf þann gróteska tón sem er eitt helsta höfundareinkenni þeirra en þeir gengu síðan enn lengra í subbuskapnum í hinum kostulegu myndum Kingpin og There’s Something About Mary. Þeir bræður fengu Jim Carrey svo aftur til liðs við sig í geðklofagrín- inu Me, Myself & Irene árið 2000 en virðast einhverra hluta vegna ekki hafa séð ástæðu til þess að gera sér frekari mat úr þeim Lloyd og Harry. Það breytir því þó ekki að vinirnir eru mættir aftur til leiks í bíó, tæpum áratug eftir að þeir komu fram á sjónarsviðið. Þar sem bræðurnir koma ekki nálægt nýju myndinni og þeir Carrey og Daniels endurtaka hlut- verk sín ekki hefur verið brugðið á það ráð að láta framhaldsmynd- ina gerast á undan fyrri mynd- inni. Þar voru þeir félagar at- vinnulausir og á barmi gjaldþrots þegar þeir lögðust í ferðalag til þess að koma tösku fullri af pen- ingum til bráðhuggulegrar konu sem leikin var af Lauren Holly, sem var til skamms tíma eigin- kona Carreys. Dumb & Dumberer gerist átta árum áður og þar fáum við að fylgjast með fyrstu kynnum þeirra félaga, sem eru enn í skóla og langan veg frá því að ná þeim áfanga í lífinu að missa vinnuna. Ævintýrin eru þó alltaf á næsta leyti þegar Harry og Lloyd eru annars vegar og fíflagangurinn er síst minni en á síðustu öld. ■ JIM CARREY OG JEFF DANIELS Upprunalegu erkifíflin eru ekki með í framhaldsmyndinni um þá félaga Harry og Lloyd. Þeir lögðu á magnaðan flótta með tösku fulla af peningum fyrir níu árum og kepptu um ást sömu stúlkunnar. Nú fáum við hins vegar að fylgjast með brokkgengri skólagöngu þeirra átta árum áður. Bakkabræður: Aftur til fortíðar HILLARY DUFF Stúlkan skartaði sínu fínasta þegar hún mætti á frumsýningu Lizzie McGuire í Los Angeles. Myndin er frumsýnd á Íslandi í dag og stúlkan er því í tveimur myndum í bíó þessa dagana en hún fer með stórt hlutverk í Agent Cody Banks. Kurt Russell: Disneystrákurinn sem varð töffari Kurt Russell fer mikinn í löggu-dramanu Dark Blue, sem hefur göngu sína í kvikmyndahúsum í dag. Hann er 52 ára og á að baki rúmlega 50 kvikmyndir, enda hóf hann feril sinn aðeins 10 ára gamall í Presley-myndinni It Happened at the World’s Fair. Árið 1960 gerði Disney svo tíu ára samning við hann og festi hann í sessi sem barna- stjörnu. Hann lék Elvis Presley með miklum tilþrifum í sjónvarpsmynd leikstjórans John Carpenter árið 1979 og árið 1981 hristi hann það sem eftir var af barnastjörnuí- myndinni af sér þegar Carpenter fékk hann til að leika ofurtöffarann Snake Plissken í hinni sígildu Escape from New York og síðan þá hefur hann leikið hvern harðhaus- inn á fætur öðrum. Samstarf þeirra Russells og Carpenters varð býsna ábatasamt og þeir leiddu aftur saman hesta sína í hryllingsmyndinni The Thing árið 1982, Big Trouble in Little China 1986 og Escape from L.A. árið 1996. Russell kynntist leikkonunni Goldie Hawn við gerð myndarinnar Swing Shift árið 1983 og þau hafa verið saman síðan. Swing Shift gekk þó ekkert sérstaklega vel og það gerði gamanmyndin Overboard ekki heldur þannig að þeim hefur gengið betur í einkalífinu en á hvíta tjaldinu þó slúðurblöðin hafi gert nokkuð af því að flytja fregnir af brestum í sambandi þeirra síðustu misserin. Árið 1989 lék Russell á móti Sylvester Stallone í Tango & Cash og síðan þá hefur hann verið dug- legur að taka að sér hlutverk harð- ara nagla í myndum á borð við Star- gate, Tombstone, Backdraft og Soldier. ■ En La Puta Vida: Óvæntur smellur frá Úrúgvæ Kvikmyndin En La Puta Vida,eða Flókið líf, gerði stormandi lukku í heimalandi sínu, Úrúgvæ, í fyrra. Myndin þykir einkar metnaðarfull og hreppti meðal annars aðalverðlaunin á spænsku Iberoamerican-kvikmyndahátíð- inni í nóvember. Þá er hún eina myndin frá Úrúgvæ sem hefur verið tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta erlenda myndin og vel- gengni hennar á erlendri grundu hefur glætt vonir þarlendra um að hægt sé að blása lífi í kvikmynda- iðnaðinn í landinu, sem hefur ver- ið í hálfgerðum lamasessi undan- farin ár. Styrkur myndarinnar þykir ekki síst liggja í feikilega góðum leik aðalleikkonunnar Mariana Santangelo en hún er nánast í hverju einasta atriði myndarinnar og því ekki ofsögum sagt að hún beri hana uppi. ■ KURT RUSSELL Hefur verið iðinn við kolann í hasarmyndum síðustu áratugi. MARIANA SANTANGELO Þykir sýna frábær tilþrif í hlutverki vændis- konunnar Elisu í En La Puta Vida og talið er víst að myndin marki upphaf á glæstum leikferli hennar.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.