Fréttablaðið - 20.06.2003, Blaðsíða 37
37FÖSTUDAGUR 20. júní 2003
■ Jarðarfarir
Málning hf. hefur tekið þátt í viðamiklum rannsóknum á áhrifaþáttum
yfirborðsmeðhöndlunar með helstu sérfræðingum á þessu sviði hér
innanlands. Á rannsóknastofu Málningar er jafnframt haft strangt eftirlit með
framleiðslu og hráefnum og unnið kröftuglega að vöruþróun þar sem
nýjungar á sviði yfirborðsmeðhöndlunar með tilliti til íslenskra aðstæðna hafa
skapað málningu frá okkur algjöra sérstöðu.
ÞOL
- létt í notkun og myndar
sterka lakkfilmu.
- mikið veðrunarþol.
- fyrir bárujárnsþök og
aðra málmfleti utanhúss
Þakmálning sem þolir
íslenskt veðurálag
Akrýl - ÞOL
- létt í notkun.
- mjög gott veðrunarþol
- fyrir bárujárn, ýmsar gerðir af
klæðningum og aðra málmfleti
utanhúss.
Við erum sérfræðingar í útimálningu
fyrir íslenskar aðstæður.
Útsölustaðir Málningar:
Byko Kópavogi • Byko Hringbraut • Litaver Grensásvegi • Byko Hafnarfirði • Málningarbúðin Akranesi • Byko Akranesi •
Axel Þórarinsson, málarameistari, Borganesi • Verslunin Hamrar, Grundafirði • Litabúðin Ólafsvík • Núpur byggingavöruversl. Ísafirði
• Vilhelm Guðbjartsson, málarameistari, Hvammstanga • Verslunin Eyri, Sauðárkróki • Byko Akureyri • Versl. Valberg, Ólafsfirði •
Versl. Vík, Neskaupstað • Málningarþjónustan Selfossi • Miðstöðin Vestmannaeyjum • Byko Keflavík • Bláfell Grindavík.
Femínistafélag Íslands afhentihelstu ráðamönnum þjóðar-
innar bleika steina í gær í tilefni
af kvennadeginum 19. júní. „Við
viljum með þessu hvetja ráða-
menn til þess að hafa jafnréttis-
sjónarmið að leiðarljósi við alla
ákvarðanatöku,“ segir Erla
Hlynsdóttir frá Femínistafélag-
inu. „Félagið er þriðja bylgja
femínisma sem er að rísa, ekki
bara hér heldur um allan heim.“
19. júní er einmitt til að minnast
afraksturs fyrstu bylgjunnar, en
þann dag árið 1915 fengu ís-
lenskar konur kosningarétt.
Erla segir að hver tími kalli
vissulega á sínar baráttuaðferð-
ir. „Lykilverkefnið í okkar huga
er jafnrétti. Það virðast margir
halda að við göngum með hug-
myndir um kvenréttindi ofar
karlréttindum, en það er stór
misskilningur. Það er jafnrétti
sem við erum að berjast fyrir.“
Erla segir að innan félagsins
séu starfandi margir málefna-
hópar sem ræði ýmis málefni út
frá sjónarhóli jafnréttisins.
Femínistafélagið hefur verið
áberandi upp á síðkastið og
bleiki liturinn sem er táknlitur
þess verið áberandi. „Við viljum
auðvitað vekja athygli. Ekki fyr-
ir félagið, heldur fyrir málstað-
inn,“ segir Erla.
Í gær tóku Jón Kristjánsson
heilbrigðisráðherra, Þórólfur
Árnason borgarstjóri og herra
Karl Sigurbjörnsson biskup við
steinunum. Ritari forseta Ís-
lands tók við steini fyrir hans
hönd, þar sem forsetinn er ekki
á landinu. Í bréfi sem fylgdi
steinunum eru þeir hvattir til
þess að kynna sér femínisma,
því grundvallarþekking á þeim
fræðum sé forsenda þess að geta
unnið skilvirkt að jafnréttissjón-
armiðum.
Erla segir að meiningin sé að
afhenda slíka steina 19. júní ár
hvert. „Bleikur steinn fer varla
framhjá ráðamönnum og minnir
þá á jafnréttissjónarmiðin.“ ■
TEKIÐ VIÐ STEINI
Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra tók við
bleikum steini sem fulltrúi ríkisstjórnarinn-
ar. Steinninn á að minna ráðherrann á að
hafa jafnréttissjónarmið að leiðarljósi í
störfum sínum.
Bleikir leiðarsteinar
Femínismi
■ Hver kynslóð mótar sínar aðferðir til
að vekja athygli á málefnum sínum.
Femínistafélag Íslands hefur vakið athygli
fyrir frískleg uppátæki til þess að vekja
athygli á jafnréttismálum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Ingibjörg
borgarlista-
maður
VIÐURKENNING Ingibjörg Haralds-
dóttir skáld er borgarlistamaður
Reykjavíkur þetta árið. Borgar-
stjóri afhenti Ingibjörgu ágrafinn
stein og ávísun að upphæð ein millj-
ón króna og lét þess getið að borg-
arráð hefði á fundi sínum samþykkt
tillögu menning-
armálanefndar
um þá reglu-
breytingu að
hækka viður-
kenningarfram-
lagið úr hálfri í
eina milljón
króna í samræmi
við þann heiður
sem þessari til-
nefningu ætti að
fylgja.
I n g i b j ö r g
Haraldsdóttir hefur gefið út sex
ljóðabækur og hlaut hún Íslensku
bókmenntaverðlaunin 2002 fyrir
ljóðabókina Hvar sem ég verð.
Ingibjörg er, fyrir utan að vera
gott skáld, mikilvirkur þýðandi.
Liggja eftir hana þýðingar á heims-
bókmenntum, aðallega úr rúss-
nesku og spænsku. Má þar nefna
þýðingar á bókum rússneska stór-
skáldsins Dostojevski. Ingibjörg
þakkaði viðurkenninguna og kvaðst
leitast við að bera hana með sóma,
þannig að hvorki hún né borgin sem
fæddi hana þyrfti að skammast sín.
Við sama tækifæri var
Eþoskvartettinum veittur styrkur
tónlistarhóps. Kvartettinn hefur á
undanförnum árum ráðist í flutn-
ing merkilegra kvartetta helstu
tónskálda heims. Hann skipa: Auð-
ur Hafsteinsdóttir fiðluleikari,
Greta Guðnadóttir fiðluleikari,
Guðmundur Kristmundsson víólu-
leikari og Bryndís Halla Gylfadótt-
ir sellóleikari. ■
13.00 Lone Kastberg Rebsdorf, Sdr.
Moselvej 40, Hornslet, veður jarð-
sungin frá Hornsletkirku.
13.30 Ingvi Gunnar Ebenhardsson, Ár-
skógum 6, Reykjavík, verður jarð-
sunginn frá Selfosskirkju.
13.30 Sæunn Pétursdóttir, áður Ferju-
bakka 4, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju.
13.30 Þorkell Einarsson, Hlaðhömrum
2, Mosfellsbæ, verður jarðsunginn
frá Lágafellskirkju.
14.00 Jóhannes Bergmann Guð-
mundsson, Klapparstig 16, Ytri
Njarðvík verður jarðsunginn frá
Njarðvíkurkirkju.
15.00 Kristrún Þorsteinsdóttir Cortes
verður jarðsungin frá Fossvogs-
kapellu.
15.00 Ólafur Geirsson, Arnarási 6,
Garðabæ, verður jarðsunginn frá
Vídalínskirkju í Garðabæ.
Elínborg Jóna Jóhannsdóttir, Hjalla-
braut 6, Hafnarfirði, lést 16. júní.
Hulda Pálsdóttir, Álfaskeiði 64, Hafnar-
firði, lést 16. júní.
Rögnvald Kjartansson, Víðigrund 35,
Kópavogi, lést 16. júní.
■ Andlát
INGIBJÖRG
HARALDSDÓTTIR
Ljóðskáld og mikil-
virkur þýðandi er
borgarlistamaður
Reykjavíkur í ár.