Fréttablaðið - 20.06.2003, Síða 40

Fréttablaðið - 20.06.2003, Síða 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Bakþankar GUÐMUNDAR STEINGRÍMSSONAR Fyrir viku skrifaði ég bakþankahér í blaðið þar sem ég varaði við því að sólin og lognið sem þá hefðu verið viðvarandi í Reykjavík myndu án efa hafa eitthvað slæmt í för með sér. Ég talaði um miklar hamfarir í því sambandi. Ég ætla svosem ekkert að vera að velta mér mikið upp úr því, en það hefur auðvitað komið á daginn að ég hafði rétt fyrir mér. SÍÐAN ÉG SKRIFAÐI pistilinn hef- ur nánast verið látlaus rigning. Á þjóð- hátíðardag Íslendinga, 17. júní, rigndi heil ósköp og nú á miðvikudaginn þótti það heyra til sérstakra tíðinda í frétt- um hvað regndroparnir voru stórir og hvað það rigndi mikið. „Skýfall,“ sögðu menn. Vinur minn nánast drukknaði á leiðinni út í sjoppu. Ég sjálfur er kominn með hálsbólgu út af raka í fötum. Fólk um allan bæ varð að hætta að tala í símann út af regninu sem buldi á þökunum. Ég leyfi mér að vitna í orð mín frá því fyrir viku síð- an: „Og rigningin?“ spurði ég. „Hún verður ofsafengin.“ ÞETTA ER AUÐVITAÐ þörf áminning. Reyndar höfðu einhverjir á orði að þetta hefði ekki verið sú ís- lenska rigning sem ég boðaði, sem fýkur sífellt í andlitið á manni. Bent er á að þessi rigning hafi fallið beint niður eins og í steypibaði. Það kann vel að vera að þessi rigning hafi ver- ið dæmigerð miðevrópsk síðdegis- skúr, eins og sjá má í frönskum hryll- ingsmyndum. Margt bendir til að rigningin hafi þar með slegið Íslend- inga út af laginu á ákveðinn máta, því ekki vitum við hvernig við eigum að haga okkur í slíkri útlendri skúr, fremur en í mikilli sól og logni. En það breytir samt ekki því að af þessu má draga ákveðinn lærdóm. VIÐ EIGUM VITASKULD að kunna að halda okkur á mottunni. Ekki vera að rjúka í stuttbuxur við minnsta tilefni. Vera með úlpuna í bakpoka. Regnföt í bílnum. Horfa tor- tryggin til himins, full grunsemda. Sýna stillingu. En nú erum við búin að læra okkar lexíu, lesendur góðir. Það er nú alltaf gott. Allt er í heimin- um hverfult. Herir koma og fara. Bráðum kemur sólin aftur. Ég sé mik- ið sólskin í aðsigi. Svo mikið reyndar, að ég held að margir eigi eftir að verða mjög uggandi. Ég sagði ykkur það F le i r i ger› i r P ioneer b í l tækja á www.ormsson. is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.