Fréttablaðið - 26.06.2003, Page 2
2 26. júní 2003 FIMMTUDAGUR
“Já, hún er á Klaustri en ég veit
ekki alveg hvort hún ætlar suður-
eða norðurleiðina.
Hallgrímur Helgason fæst við skriftir sumar, vetur,
vor og haust.
Spurningdagsins
Hallgrímur, er ný bók á leiðinni?
■ Viðskipti
■ Lögreglufréttir
ÍSRAEL, AP Leiðtogar palestínskra
vígasamtaka hafa samþykkt að
hætta árásum á Ísraela í þrjá
mánuði, að sögn Kadoura Fares,
háttsetts embættismanns innan
Fatah-hreyfingarinnar. Samn-
ingamenn hafa ekki staðfest þess-
ar yfirlýsingar en Mohammad al-
Hindi, leiðtogi samtakanna Ís-
lamskt Jihad á Gaza-ströndinni,
fullyrðir að leiðtogar Hamas hafi
samið um vopnahlé og leiti nú
samþykkis annarra vígasamtaka.
Undanfarna daga hafa margir
gert því skóna að vopnahlé sé á
næsta leiti. Al-Hindi segir að leið-
togar Hamas hafi samþykkt að
leggja niður vopn gegn því að
Ísraelar hættu herferð sinni gegn
liðsmönnum samtakanna og létu
palestínska fanga í Ísrael lausa úr
haldi. Háttsettur ísraelskur ráða-
maður segir að viðbrögð Ísraela
ráðist af því hvort árásirnar hætti
í raun og veru. Bendir hann á að
þó leiðtogarnir séu fylgjandi
vopnahléinu geti þeir átt erfitt
með að hafa hemil á vígamönnum
á Vesturbakkanum og Gaza.
Í gær skutu ísraelskir hermenn
tvo liðsmenn Hamas-samtakanna
til bana á Gaza-ströndinni. Að
sögn ísraelsku lögreglunnar
höfðu mennirnir í hyggju að ráð-
ast á ísraelska borgara en tals-
menn Hamas segja að þeir hafi
ráðist gegn ísraelskum hermönn-
um. ■
LEIKA SÉR Í RÚSTUM
Palestínskir drengir leika sér í húsarústum í Rafah á Gaza-ströndinni. Ísraelskir hermenn
jöfnuðu húsið við jörðu þar sem þeir töldu að undir því lægju göng sem notuð væru til
að smygla vopnum frá Egyptalandi.
Friðarviðræður fyrir botni Miðjarðarhafs:
Sáttatónn hjá vígasamtökunum
KOMIN Í 1.500 STIG Úrvalsvísi-
talan hækkaði um 0,54% í gær og
stendur nú í 1.500 stigum. Vísital-
an var síðast í 1.500 stigum 2.
október árið 2000.
MP BIO HÆKKAR Gengi bréfa í
líftæknisjóðnum MP BIO hækk-
aði um 43,3% í gær í kjölfar já-
kvæðra frétta um niðurstöður
rannsóknar á nýju lyfi.
LONDON, AP Alastair Campbell, upp-
lýsingafulltrúi og einn nánasti ráð-
gjafi Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, játaði fyrir breskri
þingnefnd í gær að mistök hefðu
verið gerð þegar skýrsla um ger-
eyðingarvopn Íraka var unnin.
Skýrslan hafði mikil áhrif þeg-
ar breska þingið samþykkti að
taka þátt í hernaðaraðgerðum
gegn Írak. Campbell sagði að það
hefðu verið mistök að taka inn í
skýrsluna kafla úr tíu ára gamalli
ritgerð námsmanns sem aðgengi-
leg var á Netinu.
Skýrslan var önnur tveggja sem
bresk stjórnvöld unnu um gereyð-
ingarvopn í Írak og vó þungt þegar
Bretar samþykktu að taka þátt í af-
vopnun Íraka. Þvert á fullyrðingar
skýrslunnar, hafa engin gereyðing-
arvopn fundist í Írak.
Tony Blair fullyrti í breska
þinginu í gær að skýrslan um-
deilda væri kórrétt þótt hann hefði
á fyrri stigum ekki vitað að Camp-
bell hefði tekið hluta hennar af
Netinu.
Blair var krafinn svara um það
hve lengi breskir hermenn yrðu í
Írak. Forsætisráðherrann sagði að
breskum hermönnum hefði þegar
verið fækkað úr 46 þúsund í 14
þúsund en óvíst væri hvenær hægt
yrði að draga allt herliðið til baka.
Umfram allt ætluðu Bretar að
standa við loforð um að hjálpa
Írökum við að byggja upp að nýju.
Að öðrum kosti stafaði heiminum
áfram ógn af Írak. ■
JÁTAÐI MISTÖK
Alastair Campbell, upplýsingafulltrúi Blair,
játaði við yfirheyrslur hjá breskri þingnefnd
að mistök hefðu verið gerð við vinnslu
skýrslu um gjöreyðingarvopn Íraka.
Upplýsingafulltrúi Tony Blair:
Viðurkenndi mistök
við gerð Íraksskýrslu
DÓMSMÁL Bankaræninginn sem
framdi vopnuð rán bæði í Spari-
sjóði Hafnarfjarðar og Lands-
bankanum í Grindavík náði sam-
tals 2.606.048 krónum. Ákærur
vegna ránanna voru birtar hon-
um í Héraðsdómi Reykjaness í
gær.
Fyrri ákæran er
vegna ránsins í
Sparisjóði Hafnar-
fjarðar. Þar er
hann sakaður um
að hafa farið inn í Sparisjóðinn
með nælonsokk á höfði, ógnað
starfsfólki með búrhnífi og skip-
að því á brott, og hrifsað
1.692.000 krónur úr gjaldkera-
skúffunni og haft á brott með sér.
Í seinni ákærunni, vegna ráns-
ins í Landsbankanum í Grinda-
vík, segir að hann hafi tekið með
sér 914.048 krónur. Annars eru
ákærurnar áþekkar. Í Grindavík-
urmálinu segir í ákærunni að
ræninginn hafi hulið höfuðið með
hettu.
Ræninginn, sem er nítján ára
gamall, játar bæði ránin. Hann
segist ekki hafa ógnað nokkrum
með hnífunum. Ákæruvaldið tel-
ur hann sakhæfan en vill samt
sem áður hafa geðlækni sem
matsmann í málinu vegna að-
stæðna ræningjans og spurn-
ingar um andlegt heilbrigði hans.
Ránsfengurinn úr ráninu í
Grindavík komst nánast allur til
skila. Ræninginn var gripinn svo
skömmu eftir ránið að hann hafði
ekki færi á að eyða neinu af pen-
ingunum. Lögreglan hafði snör
handtök og lokaði vegum að og
frá bænum. Ræninginn hafði hins
vegar náð að eyða talsverðum
hluta ránsfengsins úr Hafnar-
fjarðarráninu. Hann náðist ekki
fyrr en nokkrum sólarhringum
síðar eftir það rán. Sjóvá Almenn-
ar krefjast bóta upp á 820.000 kr.
ásamt vöxtum vegna ránsins í
Sparisjóði Hafnarfjarðar.
hrs@frettabladid.is
BANKARÆNINGINN
Á rétt rúmum tveimur mánuðum rændi hann tvo banka og náði á þriðju milljón.
Ránsfengur á
þriðju milljón
Ungi maðurinn sem rændi bæði Sparisjóð Hafnarfjarðar og Landsbank-
ann í Grindavík náði samanlagt 2.606.048 krónum í ránunum tveimur.
Hann neitar að hafa ógnað nokkrum manni með hnífi en játar ránin.
■
Hann segist
ekki hafa ógn-
að nokkrum
með hnífunum.
Kaupin á Barnsley:
Munnlegt
samþykki
ÍÞRÓTTIR Líklegt er að Guðjón
Þórðarson, fyrrverandi landsliðs-
þjálfari, verði næsti knattspyrnu-
stjóri Barnsley þrátt fyrir allt.
Miklar sviptingar hafa verið í
samskiptum Guðjóns við hóp fjár-
festa sem hefur gert tilboð í enska
2. deildarliðið. Á íþróttasíðu
Fréttablaðsins í dag er viðtal, sem
tekið var fyrir hádegi í gær, og
þar segist Guðjón ekki hafa áhuga
á að starfa með hópnum. Síðdegis
í gær varð hins vegar kúvending í
málinu. Í Ríkisútarpinu lýsti Bald-
ur Sigurðsson því yfir að náðst
hefði munnlegt samkomulag við
eiganda Barnsley um kaup á 60%
hlut í félaginu. Þá sagðist Baldur
reikna með því að Guðjón verði
ráðinn knattspyrnustjóri. ■
Ekið var á dreng í Fossvogi:
Alvarlega
slasaður
BÍLSLYS Tíu ára drengur á hlaupa-
hjóli varð fyrir jeppabifreið á
gatnamótum Ljósalands og Kúr-
lands í Fossvogi í gærdag. Hann
var fluttur mikið slasaður á slysa-
deild. Drengurinn liggur nú á gjör-
gæsludeild Landspítalans. Hann er
með alvarlega áverka og er í önd-
unarvél, að sögn Kristins Sigvalda-
sonar, læknis á Landspítalanum.
Að sögn lögreglunnar í Reykja-
vík liggur ekki fyrir með hvaða
hætti slysið gerðist en málið er í
rannsókn. Jeppinn var fjarlægður
af slysstað með dráttarbíl. Ekki
fékkst uppgefið hjá lögreglu hvers
vegna. ■
Tilraun til nauðgunar:
Átján mán-
aða fangelsi
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykjavík-
ur dæmdi í gær nítján ára mann
með nokkurn sakaferil í 18 mánaða
fangelsi fyrir tilraun til nauðgunar.
Þá var honum gert að greiða fórn-
arlambinu, konu um þrítugt, 300
þúsund í bætur.
Nauðgunartilraunin átti sér stað
á hestamannamóti á Vindheimamel-
um í Skagafirði í fyrrasumar. Mað-
urinn, sem var nýsloppinn úr gæslu-
varðhaldi, fékk konuna með sér inn
í tjald og reyndi þar að þröngva
henni til kynmaka. Hún neitaði
stöðugt, en maðurinn beitti hana
valdi og hleypti henni ekki út úr
tjaldinu. Það var ekki fyrr en fólk í
nágrenninu heyrði hvað fram fór og
opnaði tjaldið að konan slapp út. ■
Tollstjórinn í Reykjavík:
Rannsókn
Draumsins
til lögreglu
LÖGREGLUMÁL Rannsókn varðandi
ólöglegt áfengi og tóbak sem
fannst við húsleit í versluninni
Draumnum á Rauðarárstíg er
langt komin hjá rannsóknardeild
tollgæslunnar. Hjá tollstjóranum í
Reykjavík fengust þær upplýs-
ingar að þegar tollgæslan hefur
lokið öllum þáttum málsins verði
það sent til frekari meðferðar hjá
lögreglunni í Reykjavík. ■
LENTI UNDIR DRÁTTARVÉL Aftur-
hjól dráttarvélar fór yfir ung-
lingsdreng í Holtum í Rangár-
vallasýslu. Hann var fluttur með
sjúkrabíl á slysadeild Landspítal-
ans. Reyndust meiðsl hans ekki
vera meiriháttar. Að sögn lög-
reglunnar á Hvolsvelli virðist
dráttarvélin, sem var mannlaus,
hafa hrokkið í gír.
KARLAR
L U J T Mörk Stig
Fylkir 7 4 1 2 12:6 13
FH 7 3 2 2 12:9 11
KR 7 3 1 3 8:10 10
ÍA 7 2 4 1 9:6 10
ÍBV 6 3 0 3 12:10 9
Þróttur 6 3 0 3 9:9 9
Valur 7 3 0 4 10:13 9
Grindavík 7 3 0 4 9:12 9
KA 6 2 2 2 9:8 8
Fram 6 1 2 3 7:14 5
ÍA 1:1 Fylkir
KR 1:2 Grindavík
KA 1:2 Valur
FH 2:3 Fram