Fréttablaðið - 26.06.2003, Side 6

Fréttablaðið - 26.06.2003, Side 6
ÍRAK, AP „Við hyggjumst draga þá sem stóðu fyrir þessum árásum til ábyrgðar,“ sagði Paul Bremer, yf- irmaður bandaríska heraflans í Írak. Breskar hersveitir hafa gefið yf- irvöldum í íraska bænum Majar al- Kabir tveggja sólarhringa frest til að framselja þá sem skutu sex bres- ka herlögreglumenn til bana í bæn- um. Ekki er gefið upp hvernig Bret- ar bregðast við ef banamennirnir verða ekki framseldir. Staðfest er að óbreyttir Írakar í Majar al-Kab- ir skutu á herlögreglu og felldu sex manns. Heimamenn voru að mót- mæla veru Breta í bænum, en þeir hafa farið með löggæslu þar. Bret- arnir skutu á mótmælendur og féllu fjórir Írakar. Bæjarbúar urðu æfir, gerðu aðsúg að bresku herlögreglu- mönunum og féllu tveir strax. Fjór- ir lögreglumenn flúðu inn í lög- reglustöð. Bæjarbúar fóru þá heim, sóttu riffla og vélbyssur og réðust á Bretana á lögreglustöðinni. Eftir tveggja klukkustunda skotbardaga lágu bresku lögreglumennirnir í valnum. Geoffrey Hoon, varnarmála- ráðherra Bretlands, sagði breska þinginu eftir atburðina að þetta hefðu aðallega verið herlögreglu- menn sem hefðu verið að þjálfa íraska lögreglumenn. Haft er eftir Hoon að herafli Breta í Írak verði efldur vegna atburðanna. Þá sé verið að endurskoða allt skipulag friðargæslu í Suður-Írak. Bresk hermálayfirvöld segja hugsanlegt að breskum hermönnum verði á ný gert að bera hjálma og klæðast skotheldum vestum við eftirlits- störf. Að minnsta kosti 18 bandarísk- ir hermenn og 42 breskir hafa lát- ið lífið í árásum Íraka frá 1. maí sl. en þá lýstu Bandaríkjamenn því yfir að stríðinu í Írak væri í raun lokið. Árásirnar hafa einkum ver- ið gerðar í Bagdad og nágrenni. ■ 6 26. júní 2003 FIMMTUDAGUR GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 76.58 2.00% Sterlingspund 127.79 1.95% Dönsk króna 11.9 1.77% Evra 88.38 1.76% Gengisvístala krónu 124,24 0,21% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 293 Velta 5.459 milljónir ICEX-15 1.500 0,540% Mestu viðskipti Bakkavör Group hf. 354.100.692 Pharmaco hf. 271.144.368 Eimskipafélag Íslands hf. 73.032.013 Grandi hf. 54.747.991 Landsbanki Íslands hf. 42.908.239 Mesta hækkun Líftæknisjóðurinn MP BIO hf. 43,33% Sjóvá-Almennar tryggingar hf. 3,05% Nýherji hf. 2,50% Kaupþing Búnaðarbanki hf. 0,19% Kögun hf. 1,33% Mesta lækkun Þormóður rammi-Sæberg hf . -4,76% Samherji hf. -2,34% Síldarvinnslan hf. -2,13% Vátryggingafélag Íslands hf. -1,52% Flugleiðir hf. -1,09% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ: 9137,0 0,3% Nasdaq: 1625,4 1,2% FTSE: 4067,9 0,2% Nikkei: 8932,3 0,1 S&P: 989,1 0,6% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 Veistusvarið? 1Hvaða Evrópuþjóð reykir mest og lifirjafnframt lengst, samkvæmt niður- stöðum nýrrar rannsóknar? 2Hvað borgaði samgönguminjasafnið íSinsheim í Þýskalandi fyrir Concorde- þotu Air France? 3Guðjón Þórðarson, fyrrverandi lands-liðsþjálfari, hefur augastað á ensku knattspyrnufélagi. Hvað heitir félagið? Svörin eru á bls. 39 TÆKNIHÁSKÓLI ÍSLANDS Miðað við fyrirhuguð fjárlög verður Tækni- háskólinn að vísa frá 140 umsækjendum af tvö hundruð, þrátt fyrir aukna þörf iðn- fyrirtækja fyrir tæknimenntað starfsfólk. Samtök iðnaðarins: Þörf fyrir fleiri tækni- menntaða ATVINNUMÁL Stjórn Samtaka iðnað- arins kallar á auknar fjárveiting- ar til tæknimenntunar í landinu og vill að ríkisstjórnin framfylgi ákvæðum í nýjum stjórnarsátt- mála um sókn á sviði starfs- og verkmenntunar. Könnun Samtaka iðnaðarins árið 2000 leiddi í ljós að fyrirtæki í iðnaði töldu nauð- synlegt að fjölga tæknifræðing- um og verkfræðingum um 80 pró- sent árin 2000 til 2005. Í ályktun frá stjórn Samtaka iðnaðarins kemur fram að tvö hundruð manns hafi sótt um skólavist í Tækniháskóla Íslands, en vegna fjárskorts verði að vísa 140 frá. Samtökin hvetja stjórn- völd til að tryggja fjárhagslegan grunn að tækninámi við háskól- ann í samræmi við þarfir iðnfyrir- tækja fyrir tæknimenntað starfs- fólk. ■ BAUGUR Aðeins eitt yfirtökutilboð er á borðinu en beðið er frétta af því hvort önnur berist. Yfirtökutilboð Baugs í Hamleys: Baugur með eina tilboðið HLUTABRÉFAMARKAÐUR Hlutabréf í Hamleys hafa selst á 208,5 pens, sem er 2,2 prósentum hærra en Baugur býður í yfirtökutilboði sínu í Hamleys-leikfangakeðjuna. Er hækkunin talist tengjast frétt- um af því að Tim Waterstone, stofnandi Waterstone bókabúð- anna, sé með tilboð á prjónunum. Þegar Fréttablaðið leitaði eftir viðbrögðum hjá Baugi vegna þessa fengust þau svör að aðeins eitt tilboð væri á borðinu og það væri frá Baugi. Það tilboð er gert með samþykki Hamleys og í sam- ráði við framkvæmdastjóra og fjármálastjóra. ■ FISKELDI Norsk laxeldisfyrirtæki kvarta sáran undir lágu verði á eldislaxi í Evrópu og er greint frá því í norska ríkisútvarpinu að búist sé við fjölda gjaldþrota í greininni á næstunni. Íslensk fyrirtæki sækja hins vegar fyrst og fremst á Ameríkumarkað, þar sem verðið er tæplega helm- ingi hærra. Guðmundur Valur Stefánsson, framkvæmdastjóri laxeldisfyrirtækins Sæsilfurs á Mjóafirði, segir áhrifin á Ísland óveruleg. „Verðið fer upp og nið- ur eins og sjávarföllin á milli ára. Við höfum stöðvað útflutn- ing tímabundið til Evrópu og bíð- um eftir að verðið hækki þar.“ Norðmenn hafa fjárfest veru- lega í laxeldi á uppgangstíma síðustu ára og eru að sögn kunn- ugra að súpa seyðið af því. ■ Húsavík: Eldur í verkstæði ELDSVOÐI Eldur kviknaði í tré- smiðju í Reykjahverfi sunnan við Húsavík. Slökkviliðið á Húsavík kom fljótt á staðinn og greiðlega gekk að slökkva eldinn. Ekki urðu meiðsl á fólki. Litlar skemmdir urðu af völdum elds en í gær var nokkuð óljóst hversu miklar skemmdir urðu af völdum reyks. Eldurinn átti upptök sín í sprautuklefa. Frekari rannsókn málsins er ólokið. ■ Hvalfjarðargöngin 5 ára: Ókeypis í göngin SAMGÖNGUR Stjórn Spalar ehf., sem á og rekur Hvalfjarðargöng, hefur ákveðið að bjóða vegfarendum að aka ókeypis undir Hvalfjörð 11. júlí næstkomandi, en þá verða fimm ár liðin frá því að göngin voru formlega opnuð. Ókeypis verður um göngin frá klukkan 7.00 að morgni til klukkan 7.00 að morgni 12. júlí. Þrátt fyrir að ekk- ert veggjald sé innheimt verður vakt og öryggisgæslu sinnt með venjulegum hætti í gjaldskýli. Gera má ráð fyrir mikilli umferð enda ber afmælið upp á föstudag. ■ LAXASLÁTRUN Nálega helmingi hærra verð fæst nú fyrir eldislax í Ameríku en Evrópu, sem knýr ís- lensk laxeldisfyrirtæki til að flytja laxinn í vaxandi mæli vestur um haf. Verð á eldislaxi hrynur í Evrópu: Ameríkuverð helmingi hærra VAXANDI SPENNA Írakar skoða sundurtætt farartæki breskra hermanna við Amarah. Mikil spenna er í samskiptum hersveita og heimamanna eftir að skotið var á breskar hersveitir þar sem sex létust og átta særðust, þar af þrír alvarlega. AP M YN D Bretar gefa Írökum tveggja daga frest Óbreyttir Írakar í Majar al-Kabir urðu æfir þegar bresk herlögregla skaut á óbreytta borgara sem voru að mótmæla veru herliðsins. Fjórir Írakar féllu og skutu bæjarbúar sex herlögreglumenn í hefndarskyni. GRIKKLAND, AP Skipstjóri og áhöfn flutningaskipsins Baltic Sky, sem Grikkir kyrrsettu um helgina, kom fyrir dómara í Messolongi á Grikk- landi í gær. Reynt er að skýra hver á farm skipsins, 680 tonn af sprengi- efnum, en grunsemdir eru uppi um að farmurinn tengist hryðjuverka- starfsemi. Súdönsk yfirvöld segja að svo sé alls ekki, farmurinn sé í eigu fullkomlega löglegs fyrirtækis í Súd- an og sé ætlaður til ýmissa fram- kvæmda í almannaþágu, svo sem vegagerðar. Grikkir taka það ekki trúanlegt og spyrja meðal annars hvers vegna skipið hafi dólað um Miðjarðarhafið í sex vikur en ekki siglt beint til Súdans. Utanríkisráð- herra Súdans kallaði sendiherra Grikklands í höfuðborginni Karth- oum á sinn fund og krafðist þess að skipinu yrði þegar í stað leyft að sigla. Utanríkisráðherrann segir grísk yfirvöld fara offari í málinu. „Ef til vill hafa Grikkir áhuga á að taka þátt í stríðinu gegn hryðju- verkum og vilja með þessu sýna hvar þeir standa,“ sagði Mustafa Osman Ismail, utanríkisráðherra Súdans. ■ HÖFUÐSTÖÐVARNAR Fyrirtækið umdeilda í Súdan sem kveðst eiga tæplega 700 tonn af sprengiefnum í flutn- ingaskipi sem Grikkir hafa kyrrsett lætur ekki mikið yfir sér. Súdanir krefjast þess að Grikk- ir leyfi skipinu að sigla, enda sé farmurinn ætlaður til framkvæmda í almannaþágu. AP /M YN D Sprengjuskipið í Grikklandi: Súdanir krefjast þess að skipið fái að sigla HVALFJARÐARGÖNG Vegfarendum boðið ókeypis 11. júlí.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.