Fréttablaðið - 26.06.2003, Síða 8
KALIFORNÍA Nýkjörinn ríkisstjóri
Kaliforníu á það á hættu að verða
vikið úr embætti í krafti umdeildra
laga sem kveða á um að boða skuli
til nýrra kosninga ef tólf prósent
kosningabærra manna skrifa undir
beiðni þar að lútandi.
Auðkýfingurinn Darrell Issa,
ö l d u n g a d e i l d a r þ i n g m a ð u r
repúblikana, stendur fyrir undir-
skriftasöfnun til þess að knýja
fram kosningar. Issa hefur gagn-
rýnt Gray Davis ríkisstjóra harð-
lega fyrir að hafa ekki brugðist við
efnahagsvanda Kaliforníu og seg-
ist tilbúinn að leggja allt í sölurnar
til koma honum frá völdum. Issa og
félagar hans segjast hafa safnað
hátt í 800.000 undirskriftum en
talið er að þeir þurfi um 300.000 í
viðbót.
Í gegnum tíðina hafa verið gerð-
ar margar misheppnaðar tilraunir
til að koma ríkisstjóra frá völdum
með þessum hætti. Aldrei áður hef-
ur málið þó verið sótt af þvílíkum
krafti og nú. Andstæðingar undir-
skriftasöfnunarinnar segja hana
ógn við lýðræðið og stjórnskipun
landsins og bera vott um það vald
sem fólgið sé í peningum. Issa
heldur því aftur á móti fram að
markmið sitt sé að koma frá van-
hæfum ríkisstjóra og bjarga efna-
hag Kaliforníu. ■
HEILSUFAR „Offita er verulegt og
vaxandi vandamál og óhætt að
fullyrða að offitan er annar
tveggja stórra faraldra 21. ald-
arinnar. Hinn er tóbaksreyking-
ar. Hvort tveggja er verulegt
lýðheilsuvandamál í vestrænum
löndum,“ segir Sigurður Guð-
mundsson landlæknir.
Tilfellum sykursýki 2, sem
oft er nefnd öldrunarsýkursýki,
hefur fjölgað
mjög á Íslandi á
síðustu árum.
S j ú k d ó m u r i n n
greinist einnig
oftar hjá yngra
fólki en áður og er skýringanna
meðal annars að leita í vaxandi
offitu.
„Um það bil 20% níu ára
barna eru of þung og það hlut-
fall fer vaxandi hröðum skre-
fum. Manneldisráð hefur fylgst
með þessu allt frá árinu 1938 og
það virðist ekkert lát á. Þetta er
raunar sama þróun og í öllum
öðrum vestrænum löndum. Við
erum kannski 5 til 10 árum á
eftir Bandaríkjamönnum en
erum á góðri leið með að ná
þeim. Svo ört vex vandamálið
hjá okkur. Offitan fylgir svo
meirihluta barna og unglinga á
fullorðinsárin, með tilheyrandi
sálarkvölum, heilsufarslegum
vandamálum og minni lífslík-
um,“ segir Sigurður Guðmunds-
son.
Vaxandi offitu má skýra með
minni hreyfingu og aukinni
neyslu, fleiri kaloríur fara ofan
í ungmennin í dag og brennslan
er minni. Erfðir hafa reyndar
mikið að segja hjá stórum hópi.
„Við höfum vakið athygli á
þessu að undanförnu en við vilj-
um gera enn betur. Einfaldasta
lausnin er að hreyfa sig meira
og borða minna en það er hæg-
ara um að tala en í að komast.
Umhverfið er mjög breytt og
það þarf að verða vakning með-
al almennings. Útivera og
hreyfing hefur vikið fyrir sjón-
varpi og tölvuleikjum, skyndi-
bitastaðir eru allsráðandi. Þetta
og fleira stuðlar að offitu.
Þetta er ekkert einkamál
heilbrigðiskerfisins heldur
kemur þetta okkur öllum við,“
segir Sigurður Guðmundsson.
the@frettabladid.is
8 26. júní 2003 FIMMTUDAGUR
■ Úrskurður
■
Offitan er
annar tveggja
stórra faraldra
21. aldarinnar.
Björn var þá Pippin fjórði
Vilhjálmur V. (les fimmti, hann
er nr. fimm í leitarröðinni hjá
íhaldinu) verður ekki konungur,
Íhaldið þarf að leita allt að Hin-
rik VIII, eða hvað?
Jón Ármann Héðinsson fyrrverandi
alþingismaður. Morgunblaðið, 25. júní.
Og Vilhjálmur miklu seinna
Hins vegar langar mig til að
benda Bjarna á að siðfræði var
ekki til á undan Guði því hann
kom fyrstur.
Jónína Benediktsdóttir. Morgunblaðið, 25. júní.
Einfalt og gott
Ef hann passar inn í mínar fjár-
festingar, þá er það gott mál, ef
hann gerir það ekki þá verður
það einhver annar.
Baldur Sigurðsson fótboltafjárfestir
um Guðjón Þórðarson. DV, 25. júní.
Orðrétt
!"!# $%&'($%&')
ELÍSABET ENGLANDSDROTTNING
Hér eftir þurfa breskir sendiherrar ekki að
klæðast kjólfötum þegar þeir fara á fund
drottningar.
Klæðnaður sendiherra:
Of dýrt að
leigja kjólföt
LUNDÚNIR, AP Elísabet Englands-
drottning hefur samþykkt að leyfa
breskum sendiherrum að koma á
fund sinn í venjulegum jakkafötum
til að ríkið komist hjá því að eyða
hundruðum þúsunda í að leigja
handa þeim viðhafnarklæðnað.
Jack Straw, utanríkisráðherra
Breta, segir að á undanförnum
þremur árum hafi það kostað ríkis-
stjórnina sem nemur tæplega
hálfri milljón íslenskra króna að
leigja kjólföt fyrir sendiherrana.
Hefð er fyrir því að drottningin af-
hendi nýjum sendiherrunum trún-
aðarbréf sín áður en þeir halda af
landi brott. ■
ÚTBOÐ EKKI STÖÐVAÐ Kæru-
nefnd útboðsmála hafnaði kröfu
Hafnarbakka ehf. um að stöðva
útboð Landsvirkjunar vegna fær-
anlegra vinnubúða fyrir Kára-
hnjúkavirkjun. Hafnarbakki taldi
útboðið hafa verið svo óskýrt að
það varðaði við lög.
SVEITARSTJÓRNIR Sjálfstæðismenn í
borgarráði segja tillögu meiri-
hluta R-listans um 500 milljóna
króna sparnað lítt rökstudda.
Gagnrýnisvert sé að stærsta
hluta af 380 milljónum sem eigi að
spara í rekstri, 311,5 milljónir,
eigi að taka af fræðslu-, tóm-
stunda- og félagsmálum: „Á hinn
bóginn eiga yfirstjórn borgarinn-
ar, skipulags- og byggingarsvið og
umhverfis- og tæknisvið einungis
að spara 12,2 milljónir.“
Að sögn sjálfstæðismanna var
ekki haft samráð við forstöðu-
menn einstakra sviða og skýrir
það hversu lítt rökstudd sparnað-
artillagan sé.
Fulltrúar R-lista sögðu samráð
hafa verið haft við formenn fag-
nefnda. Nákvæm útfærsla sparn-
aðarins væri eftir. Áhersla væri á
almennt aðhald án þess að þjón-
usta við borgarbúa skertist svo
nokkru næmi, „en vitanlega kem-
ur í hlut stærstu málaflokkanna
að leita hagræðingar og gæta að-
halds í hlutfalli við stærð. Fyrst
og fremst er unnið að sparnaði í
ferðakostnaði, ráðstefnuhaldi,
símakostnaði, risnu, kynningar-
og útgáfumálum og stjórnun.“ ■
Ungir sjálfstæðismenn:
Gagnrýna
90% lán
ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR Stjórn Sambands
ungra sjálfstæðismanna varar við
hækkun lánshlutfalls Íbúðalána-
sjóðs í 90% og hækkun hámarks-
lánsupphæðar.
Telur stjórnin að þetta stuðli að
hækkun fasteignaverðs sem leiði til
aukinnar verðbólgu. Einnig bendir
hún á að útlánaaukning Íbúðalána-
sjóðs geti leitt til versnandi láns-
hæfismats íslenska ríkisins.
Ungir sjálfstæðismenn leggja til
að Íbúðalánasjóði verði komið úr
höndum ríkisins til einkaaðila, því
þannig megi spara ríkinu rekstrar-
útgjöld. Telja þeir að bankakerfið
geti vel boðið húsnæðiskaupendum
hagstæð vaxtakjör á húsnæðislán-
um. ■
RÚSTIR EINAR
Fólk hugar að persónulegum eigum sínum
í rústum húss í Deshler í Nebraska.
Nebraska:
Skýstrokkar
valda usla
NEBRASKA, AP Að minnsta kosti einn
lét lífið og nokkrir slösuðust þegar
fjórir skýstrokkar gengu yfir Nebr-
aska í miðhluta Bandaríkjanna.
Fjögur hús splundruðust og tugir
annarra skemmdust mikið. Raf-
magnslaust varð á nokkrum stöðum
í ríkinu. Strokkunum fygldi úrhellis-
rigning en úrkoman mældist víða
um og yfir 30 millimetrar og olli
flóðum. Þá gekk mikið haglél yfir
suðurhluta Nebraska og norðurhluta
Kansas þar sem stærstu höglin voru
á stærð við melónur, rúmir 16 sentí-
metrar í þvermál. ■
Indónesía:
Beinagrind í
móðurkviði
JAKARTA, AP Indónesísk kona sem
leitaði til læknis vegna kvið-
verkja reyndist hafa gengið með
beinagrind fósturs í móðurlífinu
í meira en sjö ár.
Konan hafði orðið þunguð
árið 1995 en aldrei fætt barnið.
Hún ákvað að láta það vera að
leita sér hjálpar af ótta við að
þurfa að greiða háan sjúkra-
kostnað. Rúmum sjö árum síðar
leitaði hún loks til læknis vegna
verkja í kviðarholi. Sérfræðing-
ar töldu að hún væri með æxli en
þegar konan var skorin upp kom
í ljós beinagrind fósturs í móður-
kviði. ■
RÁÐHÚS REYKJAVÍKUR
Sjálfstæðismenn vilja frekar spara í yfirstjórn en félags- og fræðslumálum.
Sjálfstæðisflokkur:
R-lista skortir sparnaðarrök
AP
M
YN
D
AP M
YN
D
SIGURÐUR GUÐMUNDSSON
Segir vaxandi offitu ekkert einkamál heilbrigðiskerfisins.
Offitan ekki einkamál
heilbrigðiskerfisins
Offita vex ört meðal íslenskra barna og ungmenna.
Fimmtungur 9 ára barna er of þungur og 5% teljast of feit.
Faraldur 21. aldarinnar, segir landlæknir.
SLAKAÐ Á MEÐAL VINA
Gray Davis, ríkisstjóri Kaliforníu, stendur
við hlið djasspíanóleikarans Dave Brubeck
í afmælisveislu níræðs vínframleiðanda.
Undirskriftasöfnun gegn ríkisstjóra Kaliforníu:
Andstæðingarnir
leggja allt í sölurnar