Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.06.2003, Qupperneq 23

Fréttablaðið - 26.06.2003, Qupperneq 23
■ Í ferðalagið 23FIMMTUDAGUR 26. júní 2003 Það var nú lengi framan afLondon,“ segir Júlíus Brjánsson leikari, aðspurður um uppáhalds- borg í útlöndum. „Ég hef hins vegar verið að færast örlítið sunnar í álf- unni nú seinni árin.“ Júlíus hefur komið oftar til London en hann hefur tölu á og seg- ist finna til mikillar samkenndar með Bretum. „Það er svo margt sem heillar við London, þar eru menn ekki alltaf að finna upp hjólið. Það er þetta gamla, skíturinn og hefð- irnar, að ógleymdu leikhúslífinu sem er engu líkt,“ segir Júlíus og kveðst vera gamall Breti, en er þó ekki viss hvort hann er gamall aristókrat eða hjú, eða jafnvel bara hvort tveggja. „En svo hef ég sumsé verið að færa mig sunnar í álfunni seinni árin. Suður-Þýskaland og Austurríki eru í uppáhaldi, München og Salzburg til dæmis. Það er náttúr- lega gjörólíkt London, allt svo „spik og span“ hjá Þjóðverjanum,“ segir Júlíus hlæjandi, „en ég er farinn að aðhyllast það meira núna.“ Júlíus segist þó vera á leið í 30 ára píla- grímsferð til London ásamt vini sín- um Gísla Rúnari. „Þangað fórum við saman okkar fyrstu utanlands- ferð, sem var ævintýri líkust. Það var svakalega gaman, við tókum meðal annars upp lengstu auglýs- ingu Íslandssögunnar þar sem Flug- leiðir, Herragarðurinn og fleiri aðil- ar sameinuðust um sömu auglýsing- una. Það verður örugglega ekki leið- inlegt að fara með Gísla Rúnari til London og rifja þetta upp,“ segir Júlíus, „hann er nefnilega sérfræð- ingur í borginni, eins og reyndar öllu sem hann kemur nálægt.“ ■ Uppáhaldsborgin: Gamall aristókrat frá London JÚLÍUS BRJÁNSSON LEIKARI Segir London standa hjarta sínu næst þó hann sé afar hrifinn af borgum í Þýskalandi og Austurríki nú seinni árin. Tímaritið Vestfirðir er komiðút. Blaðið, sem er frétta- og þjónustublað fyrir ferðafólk á leið um Vestfirði, kemur nú út í átt- unda skipti, en það er gefið út einu sinni á ári og er dreift ókeyp- is um land allt. Sem fyrr er mikið af áhuga- verðu efni í blaðinu, margs konar fróðleikur um allt það sem er að gerast á Vestfjörðum í sumar, greinar um áhugaverða og fallega staði og viðtöl við fjölda manns. Í leiðara blaðsins segir m.a.: „Það er von útgefenda að blaðið verði sem flestum ferðamönnum á leið um Vestfirði til gagns og gamans og að það veki áhuga hjá fleirum til að heimsækja þetta stókostlega landsvæði.“ Ritstjóri og ábyrgð- armaður blaðsins er Sigurjón J. Sigurðsson. ■ TÍMARITIÐ VESTFIRÐIR Blaðinu er dreift ókeypis um allt land. Tímarit: Vestfirðir sumarið 2003 Með þjóðskáldum við þjóðveg- inn heitir ný bók eftir Jón R. Hjálmarsson. Í henni er farið eftir hringveginum og heim- sóttir fæðingarstaðir 42 stór- skálda. Ævi þeirra er rifjuð upp og fléttað inn í frásögnina ljóð- um sem sum eru orðin órjúfan- legur hluti af þjóðarvitundinni. Samhliða þessu fjallar höfund- ur bókarinnar um ýmislegt merkilegt sem mætir ferða- manninum. Skógarganga á Heiðmörk fimmtudaginn 26. júní kl. 20. Farið verður frá Vígsluflöt og gengið um skógarstíga, skógurinn og lífríki hans skoðað. Léttar veitingar, allir velkomnir. Sjá nánar á www.skograekt.is Skógræktarfélag Reykjavíkur Reiðtúr og grill í Mosfellsbæ Frábær skemmtun fyrir stóra sem smáa hópa. Farið er í ca. 2 tíma reiðtúr um nágrenni Mosfellsbæjar á eftir er slegið upp grillveislu. Mjög hagstætt verð. s. 691-2388 og 695-8766 Reiðnámskeið Byrjendareiðnámskeið fyrir konur og karla á öllum aldri hefjast á næstunni í Hestamiðst. Hindisvík í Mosfellsbæ. Frábær undirbúningur fyrir komandi vetur. Kennt bæði inni og úti, útvegum hesta og reiðtygi. Upplýsingar: Ástmundur 691 2388 og Guðrún 695 8766, 568 0771

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.