Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.06.2003, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 26.06.2003, Qupperneq 26
■ ■ ÚTIVIST  20.00 Fimmtudagsganga á Þingvöll- um. Adolf Friðriksson fjallar um forn- leifarannskóknir á Þingvöllum.  20.00 Þriðja gangan í göngusyrp- unni “Sumargöngur Skógræktarfé- laganna“ í fræðslusamstarfi skóg- ræktarfélaganna og Búnaðarbankans. Gangan er á vegum Skóræktarfélags Reykjavíkur. Að þessu sinni er gangan um Heiðmörk. Þáttakendur safnast saman á Víglundsflög við Heiðarveg. Vignir Sigurðsson, Framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur, leiðir gönguna. ■ ■ SÝNINGAROPNUN  16.00 Opnun á sýningu í Þjóðar- bókhlöðunni. Sýningin hefur þann til- gang að sýna sögulega þróun barna- bóka og draga fram samspil texta og myndskreytinga í barnabókum. ■ ■ TÓNLIST  20.00 Lúðrasveitin logandi Fan- fare Ciocarlia er með tónleika þar sem hún leikur dillandi sígaunatólist. Fanfare Ciocarlia er að mörgum talin fremst hljómsveita sem leika balk- anska danstónlist. Tónleikarnir eru á veitingastaðnum Nasa við Austur- völl.  20.30 Tónleikar í minningu Jóns Kaldal. Hann var stjórnarmaður í Jazzvakningu í mörg ár og kunnur fyrir áhuga sinn á jazztónlist. Tónleikarnir eru haldnir í Súlnasal Hótel Sögu og ætla vinir hans að heiðra minningu hans með þessum tónleikum.  22.00 Halldór Bragason og Guð- mundur Pétursson halda blústónleika á Vídalín við Aðalstræti.  Blúshljómsveitin Kentár verður með útgáfutónleika á Grand Rokk í tilefni plötu sem hljómsveitin hljóðrit- aði á fyrrnefndum stað í mars sl. og hefur nú hljómað á öldum ljósvakans um nokkurt skeið.  Bandaríska rokksveitin Sick Of It All er með tónleika á Gauknum. Mínus og Botnleðja hita upp. Tónleikarnir eru lið- ur í tónleikaröðinni X-Slash sem haldin er í tilefni af 10 ára afmæli útvarpsstöðv- arinnar X-ins. ■ ■ LEIKLIST  20.00 Grease sýnt í Borgarleikhús- inu á stóra sviðinu. ■ ■ FUNDIR  20.30 Sameiginlegur fundur Sagn- fræðingafélags Íslands og Reykjarvíkur Akademíu. Fyrirlesari er Magnús Þ. Bernharðsson, lektor í Mið-Austur- landafræðum við Hofstra-háskólann í New York. Hann flytur erindi um sögu og framtíð Íraks. Fundurinn er í fundar- sal RA á fjórðu hæð í JL-húsinu við Hringbraut 121. ■ ■ KVIKMYNDASÝNINGAR  22.10 Kvikmyndaklúbbur Alliance française - Filmundur sýnir „L’enfer“/ de Claude Chabrol með Emanuelle Bé- art, François Cluzet og André Wilms. Hún er sýnd í Háskólabíói. ■ ■ SÝNINGAR  María Svandís er með sýningu á Energia Bar í Smáralind. Sýningin stendur til 1. ágúst. 26 26. júní 2003 FIMMTUDAGUR hvað?hvar?hvenær? 23 24 25 26 27 28 29 JÚNÍ Fimmtudagur Ég var mikill aðdáandi Greaseþegar ég var lítil stelpa og horfði á myndina í ótal skipti. Ég var vön að syngja hástöfum með í hárburstann og læra sporin. Mig óraði hins vegar aldrei fyrir að ég ætti eftir að fara með hlutverk í sýningunni,“ segir Tinna Hrafns- dóttir leikkona. Draumur Tinnu hefur ræst því hún fer með hlut- verk Tottu í nýrri uppfærslu á Grease sem frumsýnd verður í Borgarleikhúsinu í kvöld. „Vinnan er búin að vera mjög skemmtileg og hópurinn er góður. Það koma saman listamenn úr öll- um áttum, leikarar, söngvarar og dansarar. Það er líka allt öðruvísi að taka þátt í söngleik þar sem tæknivinnan er mikil og tengja þar saman allt þrennt, leik tónlist og dans.“ Að sögn Tinnu er verkið stað- fært yfir á Ísland og nútímann. „Við ákváðum að fara aðra leið en í myndinni því við vildum alls ekki setja upp einhvers konar eftiröpun. Einnig verður að líta til þess að það er mjög stutt síðan verkið var sett upp á Íslandi og til þess að for- senda sé fyrir því að setja það upp aftur er skemmtilegra að fara nýja leið. Persónurnar í verkinu eiga heima á Íslandi í dag og ganga í Verkmenntaskólann í Grafarvogi eða Verkó Graf og Sandí og Danni kynnast í Munaðarnesi.“ Aðspurð um sitt hlutverk í sýn- ingunni segir Tinna að Totta, sem hún leikur, sé skrautlegur karakt- er. „Totta á sér draum um að verða förðunarfræðingur og gengur nokkuð langt í útfærslum á sínu eigin útliti. Hún leiðir einnig Sandí inn í stelpuklíkuna og er sú sem Sandí leitar alltaf til.“ En hvernig ætli það sé að hafa poppara eins og Birgittu og Jónsa með sér í söngleik? „Það er mjög gaman að hafa þau með. Við get- um líka lært mikið af þeim þeg- ar kemur að söngnum, en þar eru þau algerlega á heimavelli, og þau geta síðan á móti lært af okkur í leiknum. Það eru líka all- ir að standa sig ótrúlega vel og fólk hefur verið mjög duglegt að vinna sína vinnu.“ Grease er sjálfstæð uppfærsla og að sögn Tinnu hefur það mikil áhrif á andann í hópnum. „Það hefur þau áhrif að hópurinn verður þéttari og mikil samstaða myndast. Þetta hefur síðan auðvitað mjög jákvæð og smitandi áhrif á sýninguna sjálfa sem ætti vonandi að skila sér til áhorfenda.“ Sýningin er í leik- stjórn Gunnars Helga- sonar, tónlistarstjóri er Þorvaldur Bjarni Þor- valdsson og danshöf- undar eru systurnar Birna og Guðfinna Björsdætur. Sýning- in er í Borgarleik- húsinu. PÉTUR PÉTURSSON Það væri áhugavert að fara ífimmtudagsgöngu á Þingvöll- um í kvöld,“ segir Pétur Péturs- son, upplýsingafulltrúi Og Vodafone. „Ég þykist vita að Ad- olf sé hafsjór af fróðleik um þetta svæði og efni. Þetta væri þó stutt stopp á Þingvöllum þar sem Sagn- fræðingafélagið og Reykjavíkur- akademían standa að fyrirlestri Magnúsar Bernharðssonar um sögu og framtíð Íraks kl. 20.30. Þetta er áhugavert efni sem renn- ur saman við áhugasvið mitt; sagnfræði. Mér rennur líka blóðið til skyldunnar, ef svo má segja, þar sem ég er með pungapróf í sagnfræði, eins og einhver kallaði BA-próf í því fagi. Þá væri gaman að sækja Breiðholtssýningu Þjóð- skjalasafns og Menningarmið- stöðvarinnar í Gerðubergi aftur þar sem sonur minn 2ja ára var full óþolinmóður þegar ég sótti hana í fyrra skiptið. Þá væri skemmtilegt að fara með frúnni og skoða sýningarnar í Hafnar- húsinu og um leið að nýta frábæra farsímaleiðsögn safnsins, sem gestum gefst kostur á að nýta í boði Og Vodafone.“  Val Péturs Þetta lístmér á! ■ LEIKLIST TINNA HRAFNS- DÓTTIR Tinna fer með hlutverk Tottu í Grease og lýsir henni sem skrautleg- um karakter sem gengur langt í útfærslum á eigin útliti. Grease er frumsýnt í Borgarleikhúsinu í kvöld. Söng hástöfum í hárburstann vbe@frettabladid.is Hyrjarhöfði 7, sími 567 8730/6937154 www.teflon.is LAKKVÖRN BRYNGLJÁI Á BÍLINN! Blettun-djúphreinsun-alþrif. Mörkinni 6, sími 588 5518. Opið 9-18 virka daga og 10-15 laugardaga. ÚTSALA ÚTSALA Borgarskjalasafn Reykjavíkur www.rvk.is/borgarskjalasafn, sími: 563 1770 Hver var Lárus? Sýning um Lárus Sigurbjörnsson, skjala- og minjavörð Reykjavíkurbæjar 1954-1968 á 3. hæð, Tryggvagötu 15. Opin alla virka daga kl. 10-16. Aðgangur ókeypis. www.ljosmyndasafnreykjavikur.is • 563 1790 Frumefnin Fimm - Ferðadagbækur Claire Xuan 24. maí - 1. sept. 2003 Tekið er á móti hópum eftir samkomulagi, nánari upplýsingar í síma 563 1790. Afgreiðsla og skrifstofa opin virka daga frá 10-16. Opnunartími sýninga virka daga 12-19 og 13-17 um helgar. Aðgangur ókeypis www.listasafnreykjavikur.is Sími 590 1200 HAFNARHÚS, 10-17 Smekkleysa í 16 ár, Alþjóðleg samtímalist á Íslandi, Erró - Stríð Leiðsögn alla sunnud. kl. 15.00 KJARVALSSTAÐIR, 10-17 Íslensk samtímaljósmyndun Kjarval Leiðsögn alla sunnud. kl. 15.00 ÁSMUNDARSAFN, 10-16 Ásmundur Sveinsson – Nútímamaðurinn Minjasafn Reykjavíkur Árbæjarsafn - Viðey www.arbaejarsafn.is s: 577-1111 Tónleikar laugardag Byggingardagur sunnudag Ljúffengar veitingar í Dillonshúsi Fjölskyldunámskeið í næstu viku Viðey: Ganga þriðjudag kl. 19.30 Menningarmiðstöðin Gerðuberg www.gerduberg.is • sími 575 7700. Gagn og gaman: vikusmiðja fullbókuð. Nokkur laus pláss í þriggja vikna smiðju 18.6-8.7. Sýningar: Brýr á þjóðvegi 1 Gunnar K. Gunnlaugsson sýnir ljósmyndir af brúm á þjóðvegi 1. Hvað viltu vita? Sögusýning um Breiðholtið. Opnun 13. júní. Lokað um helgar frá 31. maí - 1. sept. s. 563 1717 BÆKUR Í FRÍIÐ til að lesa úti í sólinni eða inni í rigningunni. Hugmyndir að sumarlestri á heimasíðu Borgarbókasafns. Upplýsingar á heimasíðu safnsins www.borgarbokasafn.is Minjasafn Orkuveitunnar Minjasafn Orkuveitunnar í Elliðaárdal er opið sun. 13-17 og eftir samkomulagi í s. 567 9009 ✓ ✓ ✓ FRÉTTAB LAÐ IÐ /VILH ELM

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.