Fréttablaðið - 26.06.2003, Side 27
Þrjár nýjar sýningar í Safnasafninu –
Alþýðulistarsafni Íslands, á Svalbarðs-
strönd í Eyjafirði. Í Hornstofu verða
sýnd málverk eftir Sigurð Einarsson í
Hveragerði. Í garðinum er sýning á
trjáköttum eftir Aðalheiði Eysteinsdóttur
á Akureyri og nær ánni er samsýning 11
og 12 ára nemenda í Valsárskóla.
Sýningin Ísjakar og Sahara opnar í
Hveragerði að Klettahlíð 7. Hún er í
Stúdíó-gallerí Jóhönnu Bogadóttur en
þar verða málverk og múrristur bæði úti
og inni. Sérstök áhersla er þó núna á
nýjar litógrafíur sem Jóhanna hefur unn-
ið að í vetur út frá skissum sem hún
hefur unnið á ýmsum stöðum í heimin-
um. Sýningin stendur frá 14. til 29. júní
frá kl. 14 til 18 alla daga.
Þrjár sýningar í Listasafni Reykjar-
víkur - Hafnarhúsinu. Sýningarnar
Humar eða frægð - Smekkleysa í 16 ár,
Innsýn í alþjóðlega samtímalist á Ís-
landi og Erró Stríð.
Sýngin Hvað viltu vita? Sýningin er
á vegum Þjóðskjalasafns Íslands og
Menningarmiðstöðvarinnar Gerðu-
bergi. Sýningin er byggð að nokkru leyti
á skjölum frá 18. og 19. öld sem varða
jörðina í Breiðholti og íbúa þar. Jafn-
framt er varpað ljósi á þróun Breiðholts
fram til dagsins í dag í máli og myndum.
FIMMTUDAGUR 26. júní 2003 27
föstudaginn 27. júní kl. 11:00
laugardaginn 28. júní kl. 13:00
SICK OF IT ALL
Þrátt fyrir nafnið á hljómsveitinni virðist
hún ekki hafa fengið nóg af Íslandi. Hljóm-
sveitin er komin hingað í annað skipti og
heldur tónleika á Gauknum í kvöld.
Fá ekki nóg
af Íslandi
TÓNLIST Bandaríska harðkjarna-
hljómsveitin Sick Of It All heldur
tónleika á Gauknum í kvöld.
Hljómsveitin hefur verið starf-
andi frá því um miðjan níunda
áratuginn og gefið út níu breið-
skífur.
Sveitin kemur nú í annað sinn
til Íslands en hún kom hingað
fyrst 1999 þegar hún hélt tónleika
í Útvarpshúsinu. Hljómsveitin er
nú við tónleikahald í Evrópu og
kemur hér við á þeirri för. Á tón-
leikunum í kvöld hyggst hún spila
úrval af sínum bestu tónleikalög-
um auk þess sem kynnt verður
nýtt efni af plötu sem væntanleg
er með haustinu.
Sick Of It All kemur fram
ásamt íslensku hljómsveitunum
Mínus og Botnleðju á Gauknum í
kvöld. Tónleikarnir eru þriðji
hlutinn í tónleikaröðinni X-Slash
sem haldin er í tilefni af 10 ára af-
mæli X-ins. ■
Það kom ekkert annað til greinaen að halda veglega tónleika í
minningu Jóns Kaldal,“ segir
Vernharður Linnet, einn skipu-
leggjandi tónleikanna.
Jón lést í febrúar síðastliðnum
og má með sanni segja að við frá-
fall hans hafi stórt skarð verið
höggvið í hóp íslenskra jazzáhuga-
manna. „Jón vann á teiknistofunni
ARKO við Laugarveg en þar hélt
hann ásamt félögum sínum ótal
jazzkvöld í risinu. Þessi kvöld
skipuðu brátt stóran sess í jazzlíf-
inu í Reykjavík og margir tónlist-
armenn stigu þar sín fyrstu skref.“
Tónleikarnir í kvöld eru mjög
glæsilegir og að sögn Vernharðs er
lagavalið litað af smekk Jóns. „Það
koma fram meðal annars félagar
hans úr Jazzvakningunni, Ellen
Kristjánsdóttir með ARKO-lof-
kvartettinum sem var vanur að
syngja í risinu og danska jazztríóið
Sophisticated Ladies með norsku
söngkonunni Hilde Hefta.“
Tónleikarnir eru í Súlnasal Hót-
el Sögu og hefjast klukkan 20.30. ■
Þóra Sigurþórsdóttir leirlistarkona
er með myndlistarsýningu að Hvirfli í
Mosfellsdal. Sýningin, sem er haldin ut-
andyra, verður opin kl. 14-16 alla daga
fram til næstu mánaðamóta.
Höggmyndalistamaðurinn Teddi
(Magnús Th Magnússon) verður með
sýningu á viðarhöggmyndum á vinnu-
stofu sinni til 1. júlí. Vinnustofan er á
horni Skúlagötu og Klapparstígs.
Ljósmyndir Yann Arthus-Bertrand
eru sýndar á Austurvelli. Sýningin ber
nafnið Jörðin séð frá Himni og hefur
verið sýnd víðsvegar um heiminn. Á
sama tíma verður upplýsingamiðstöð að
Kirkjustræti 12 (Skjaldbreið) þar sem sjá
má kvikmynd um tilurð verkefnisins.
Steinunn Marteinsdóttir er með
sýningu á Hulduhólum í Mosfellsbæ.
Þar sýnir hún málverk og verk úr leir.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
■ TÓNLIST
Í minningu Jóns Kaldal
JÓN KALDAL
Tónleikar verða í minningu Jóns
Kaldal í kvöld. Dagskrá tónleikanna
er fjölbreytt og skipar Chet Baker,
einn af uppáhalds jazzleikurum Jóns,
veglegan sess. Bæði íslenskir og er-
lendir tónlistarmenn koma fram.
Mér finnstsýningin á
Austurvelli vera
frábær að því
leyti að hún veitir
öllum aðgang að
listinni. Það er
líka skemmtilegt að í hvert skipti
sem maður gengur í gegnum mið-
bæinn er fólk að virða myndirnar
fyrir sér. Þetta er því gott aðdrátt-
arafl fyrir miðbæinn og Austur-
völl,“ segir Sæunn Stefánsdóttir,
aðstoðarmaður heilbrigðisráð-
herra.
Mittmat
✓
✓